Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 63
FÖSTUDAGUR 29. september 2006 31
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Hvað er svo sem hægt að segja
um Beyoncé sem ekki hefur
verið sagt áður? Hún er glæsi-
leg, frábær söngkona og hingað
til hefur aldrei verið hægt að
setja út á frammistöðu hennar á
sviði eða á plasti. Því miður er
ekki hægt að segja það sama
þegar kemur að kvikmyndaleik.
Eða, ef satt skal segja, öllu því
sem hún velur sér að gera þegar
hún er ekki að syngja. Hún dett-
ur heldur ekkert úr sölukonu-
hlutverkinu á nýju plötunni.
Heil síða í bæklingnum er til-
einkuð nýju fatamerki hennar
og síðasta lagið á plötunni er
auglýsing fyrir væntanlega bíó-
mynd sem hún leikur í. Ég er
kannski gamaldags, en mér
finnst ennþá listamenn geta
eyðilagt trúverðugleika sinn
með því að nota nafn sitt í að
selja hluti sem koma tónlist
þeirra ekkert við. Fyrir vikið
verður líka bara erfiðara að taka
stúlkuna alvarlega þegar hún er
að röfla á milli laga um hversu
miklum hughrifum hún hafi
orðið þegar hún var að leika í
nýju myndinni. Mér leið eins og
ég hafi verið með sölumann í
stofu hjá mér.
Allt þetta myndi auðvitað
ekki skipta neinu máli ef nýja
platan hennar væri góð. Svo er
ekki. Svo virðist sem Beyoncé
sé með sama fjöldaframleiðslu-
hugarfar þegar kemur að tón-
listarsköpun og hún hefur í
öllum öðrum. Flest lögin hljóma
eins og tilraun til þess að endur-
skapa þá fáu slagara sem hún
hefur átt á sólóferli sínum. Jay-
Z er allt of áberandi í þeim
lögum sem hann kemur fyrir í
(var hann ekki annars hættur?)
og restin er svo ógripandi að ég
gæti ekki raulað lag af þessari
plötu til þess að bjarga lífi mínu,
þó að ég sé búinn að renna henni
í gegn fjórum sinnum. Hefði
ekki getað orðið fyrir meiri von-
brigðum með þessa plötu, held
ég.
En ég hlýt að hafa rangt fyrir
mér, því á disknum sem ég er
með er límmiði þar sem stendur
að platan innihaldi „risaslagar-
ana“ (eða the massive hits) Deja
Vu, Check on It og Ring the
Alarm. Finnst það örlítið stórt
til orða tekið miðað við þá stað-
reynd að það er enn töluverður
tími þangað til tvö þeirra verða
send í útvarpsspilun. Hvernig
fer annars framleiðandinn að
því að vita svona fyrir fram?
Kannski við ættum að spyrja
manninn sem forritar “shuffle”-
lagalista útvarpsstöðvanna?
Birgir Örn Steinarsson
Stjarna Beyoncé fellur
BEYONCÉ
B‘DAY
Niðurstaða: Fyrir þremur árum síðan hefði
Beyoncé getað unnið forsetakosningarnar
í Bandaríkjunum. Með þessu áframhaldi
kæmist hún ekki einu sinni í ritarastöðu í Hvíta
húsinu. Önnur breiðskífa hennar er arfaslöpp.
Pólska matvörubúðin
Minimarket í Breiðholtinu
er þegar komin með fastan
kúnnahóp, en hún var opnuð
fyrir um fjórum mánuðum.
„Það eru margir Íslendingar sem
versla hér, en Pólverjar eru meiri-
hluti viðskiptavinanna,“ sagði
Stanislaw Kowal, annar eigandi
pólsku matvörubúðarinnar Mini-
market í samtali við Fréttablaðið.
„Margir kaupa allt inn hjá okkur
og vilja frekar versla hér en ann-
ars staðar,“ sagði Stanislaw. Í búð-
inni má fá mikið af pólskum mat-
vörum, þó að einnig megi sjá
kunnugleg vörumerki á hillunum.
Úr hátölurum óma fréttir af
pólskri útvarpsstöð, sem Stani-
slaw segir vera vinsælt meðal við-
skiptavina sinna. „Það er eitthvað
af mönnum hérna í nágrenninu
sem heyra aldrei fréttir, eða skilja
þær ekki. Þeir koma hingað að
versla og fá fréttir á pólsku í leið-
inni,“ segir hann.
Stanislaw rekur innflutnings-
fyrirtæki og heildsölu ásamt
samstarfsmanni sínum, Piotr
Jakubek. „Við byrjuðum á því að
flytja inn pólskan bjór, svo opn-
uðum við heildsöluna og loks
búðina,“ útskýrði hann. Þeir eru
með umboðið fyrir Tymbark-
ávaxtasafa sem Stanislaw segir
hafa vakið mikla lukku hjá skóla-
krökkunum í nágrenninu. „Hann
fæst hvergi annars staðar,“ segir
Stanislaw og mælir sérstaklega
með kókoshnetu-banana-ananas
safanum. Aðspurður hvaða vörur
séu vinsælastar meðal Pólverj-
anna bendir Stanislaw á saltar
agúrkur í ýmsum myndum.
„Niðursoðið kjötálegg er líka
mjög vinsælt, og svo flaki.“ Stani-
slaw útskýrir að flaki sé svíns-
garnir í kjötsoði, en bætir því
snögglega við að hann borði þær
ekki sjálfur.
Í hillunum má líka finna niður-
soðna piparrót og rauðrófur, hvers
kyns krydd sem Stanislaw segir
ekki fást annars staðar á landinu
og innflutt vatn í flöskum, en það
gæti komið íslenskum viðskipta-
vinum nokkuð undarlega fyrir
sjónir. Aðspurður hvort vatnið
seljist vel skellir Stanislaw upp úr.
„Það selst ekki. Þetta er meira til
gamans,“ bætir hann við.
Stanislaw segist stefna á að
gera meira fyrir íslenska við-
skiptavini sína. „Ég ætla jafnvel
að vera með sýnishorn af vörun-
um í boði um helgar,“ segir hann.
Þar sem pólsk menningarvika
stendur nú yfir í Reykjavík er
kannski ekki úr vegi að bregða sér
í menningarlegan matarleiðangur
í Breiðholtið. sunna@frettabladid.is
Svínsgarnir í kjötsoði
vinsælar í pólskri verslun
STANISLAW KOWAL Stanislaw hefur komið víða við síðan hann flutti til landsins fyrir
sex árum og meðal annars verið tryggingaráðgjafi hjá KB banka og VÍS.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FLAKI Svínsgarnir í soði eru vinsælar hjá
pólskum viðskiptavinum Minimarket.
NIÐURSOÐIÐ KJÖTÁLEGG Á hillunum má
finna ýmsa framandi rétti.
Fágun er orðið sem lýsir nýja E-Class bílnum
einna best. Nálægt 40% af bílnum hafa verið
endurhönnuð með fullkomnun í huga. Meðal helstu
nýjunga er skynvæddur ljósabúnaður (Intelligent
Light System) sem gerir aðalljósunum kleift að lýsa
betur upp umhverfi bílsins en áður hefur þekkst
án þess að trufla aðra umferð. Einnig má nefna
háþróað stöðugleikakerfi og aðrar framúrskarandi
öryggislausnir sem hafa skilað honum betri
niðurstöðum í bílprófunum en nokkrum öðrum bíl.
E-Class bíllinn fæst með allt að 514 hestafla vél og
dísilvélarnar skila allt að 314 hestöflum. Það er ljóst
að Mercedes-Benz E-Class er einstakur akstursbíll
sem þú verður að upplifa.
E-Class í nýju ljósi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nýr E-Class
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz bifreiða á Íslandi.