Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 66
 29. september 2006 FÖSTUDAGUR34 Samtök kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum, Women in Film and Television, voru stofnuð í Los Ang- eles á sjöunda áratugnum með það aðalmarkmið að stuðla að fjöl- breytni í myndrænum miðlum með því að virkja konur, gera þær sýnilegri og styðja þátttöku þeirra í öllum hlutverkum í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis. Samtökin starfa nú í rúmlega fjörutíu löndum og eru með yfir 10.000 skráða meðlimi. Íslenskar konur sem starfa við kvikmyndir og sjónvarp ætla að koma saman á laugardaginn og stofna formlega Íslandsdeild WIFT með málþingi sem haldið verður í tengslum við- Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík. „Við vonumst með þessu til að geta búið til öflugt tengslanet,“ segir Hrönn Kristinsdóttir, sem er í undirbúningsstjórn stofnfundar- ins. „Það starfa fjölmargar konur við þessa miðla og þetta er stór stétt þannig að við höfum sent fundarboðið til mörg hundruð kvenna. Við erum dreifðar út um allt og erum ekki jafn sýnilegar og við teljum æskilegt og viljum gjarnan bæta úr því.“ Hrönn segir það löngu tíma- bært að konur í kvikmyndum og sjónvarpi bindist sterkari böndum og þessi hugmynd sé því ekki ný af nálinni þó hún sé fyrst núna að verða að veruleika. „Við byrjuðum á því að hóa saman nokkrum konum fyrir tveimur árum. Þá fórum við yfir stöðuna og þetta var rætt en konur eru sem betur fer uppteknar þannig að það hefur ekki gefist tími til að láta verða af þessu fyrr.“ Hrönn telur víst að efling sam- skipta kvikmyndagerðar- og sjón- varpskvenna á Íslandi við stall- systur þeirra úti í heimi muni skila margvíslegum ávinningi, ekki síst þegar kemur að hugmyndavinnu og fjármögnun verkefna. „Þetta er ung grein og því er oft þannig farið að það tekur okkur lengri tíma að komast inn í slíkar greinar. Það er til fullt af karla- samtökum sem byggja á tengsla- netum og með því að bindast sam- tökum getum við til dæmis hjálpað konum sem eru að koma nýjar inn í bransann að komast að. Með stofnun samtakanna skapast einn- ig vettvangur fyrir almenn mál- þing og uppákomur tengdar kvik- myndum og sjónvarpi. Þessar uppákomur verða auðvitað öllum opnar og allir eru velkomnir, ekki síst karlmenn, en þeim stendur til boða að gerast stuðningsaðilar samtakanna.“ WIFT eru sem fyrr segir býsna umfangsmikil samtök og eðli málsins samkvæmt eru stór og þekkt nöfn úr skemmtanabrans- anum í félagatalinu. Tyra Banks, Renée Zellweger og Kathleen Turner eru í hópi verndara sam- takanna, sem hafa ekki ómerkari konur en leikstjórana Jane Camp- ion, Liv Ullman og Susanne Bier og leikkonurnar Susan Sarandon og Cate Blanchett innan sinna vébanda. Íslandsdeildin mun láta kné fylgja kviði og fylgja stofnfundin- um á laugardaginn rösklega eftir en þegar er byrjað að undirbúa annað málþing í tengslum við fyrir- hugaðan framhaldsstofnfund. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu- maður Kvikmyndamiðstöðvar, setur málþingið á laugardaginn og á eftir henni munu fagkonur með mikla reynslu bæði innanlands og erlendis taka til máls. Í þessum hópi eru sérstakir gestir Alþjóð- legu kvikmyndahátíðarinnar, þær Barbara Albert, handritshöfund- ur, framleiðandi og leikstjóri, og Vijaya Mulay, indversk heimildar- myndagerðarkona sem er 86 ára gömul og enn í fullu fjöri. Dagskráin á laugardaginn hefst klukkan 11 á Q-bar á Ingólfsstræti 3 og að loknu málþinginu tekur við gleði sem mun standa fram á nótt. thorarinn@frettabladid.is Konur í sjónvarpi og kvik- myndum safna liði KOLBRÚN JARLSDÓTTIR, HRÖNN KRISTINSDÓTTIR OG ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR Verða allar eldhressar á stofnfundi WIFT á laugar- daginn þar sem Ilmur mun troða upp ásamt stöllum sínum úr Stelpunum en eins og gefur að skilja eru leikkonur að sjálfsögðu fullgildir meðlimir í samtökunum. Hljómsveitin Mimra Frenzy held- ur tónleika á Café Rósenberg við Lækjargötu kl. 22 í kvöld. Sveitin leikur laglega blöndu af djass, blús og smá fönki ásamt frum- sömdu efni. Sveitina skipa María Magnús- dóttir söngkona, Egill Antonson sem leikur á hljómborð, Ingólfur Magnússon sem spilar á bassa og Þorvaldur Ingveldarson sem lemur húðir. Hljómsveitin heldur aðra tón- leika á sama stað annað kvöld og hefjast þeir á sama tíma. Allir vel- komnir og er aðgangur ókeypis. Æði á Rósenberg HLJÓMSVEITIN MIRMA FRENZY Frumsamið efni og fönk í Lækjargötunni í kvöld. LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800 TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600 Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Sýningar í Landnámssetri í september og október Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti Föstudagur 6. október kl. 20 Laus sæti Laugardagur 7. október kl. 20 Uppselt Sunnudagur 8. október kl. 20 Örfá sæti laus Fimmtudagur 12. október kl. 20 Laus sæti Föstudagur 13. október kl. 20 Laus sæti Laugardagur 14. október kl. 20 Örfá sæti laus Sunnudagur 15. október kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 19. október kl. 20 Laus sæti Föstudagur 20. október kl. 20 Laus sæti Laugardagur 21. október kl. 20 Laus sæti Sunnudagur 22. október kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 26. október kl. 20 - Síðasta sýn- Líka fyrir þig; lífið, fréttirnar og fjörið á ensku
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.