Fréttablaðið - 29.09.2006, Síða 68
29. september 2006 FÖSTUDAGUR36
tonlist@frettabladid.is
Nú styttist óðum í að áttunda Airwaves-hátíðin skelli á okkur. Í fjóra
daga verður Reykjavík tónlistarstórborg og við tónlistarfíklarnir
förum á ærlegt fyllerí. Eins og vanalega á maður ekki eftir komast yfir
allt það áhugaverða sem er í boði. Sumu missir maður af, en gleðst yfir
því að hafa fengið að upplifa annað.
Airwaves hefur þróast mjög skemmtilega undanfarin ár. Í stað þess
að eltast við stór og þekkt nöfn í tónlistarheiminum einbeitir hátíðin
sér í æ ríkara mæli að grasrótinni. Heitu böndin í dag koma ekki endi-
lega á Airwaves, heldur heitu böndin á morgun. Það eru yfir 40 erlend
nöfn á dagskránni í ár, en fæst þeirra hafði maður heyrt um áður en
þau boðuðu komu sína og flest þeirra hafa ekki gefið út nema eina
plötu. Sum enga. Stærsta nafnið á Airwaves 2006 er sennilega breska
hljómsveitin Kaiser Chiefs. Hún á aðeins eina plötu að baki. Fína plötu
reyndar ...
Í upphafi voru stór nöfn á
meðal flytjenda (t.d. Suede
og Flaming Lips árið 2000),
en áherslurnar hafa breyst.
Undanfarin ár hafa nokkur
af flottustu nöfnunum í tón-
listarheiminum spilað á Air-
waves áður en þau fóru að
vekja einhverja athygli að
ráði. Þar má nefna The Rapt-
ure (2002), TV on the Radio
(2003), The Bravery og Hot
Chip (2004), José Gonzales,
Architecture in Helsinki og
Clap Your Hands Say Yeah
(2005).
Þróunin hvað íslensku
tónlistarmennina varðar
hefur verið í sömu átt. Nýjar
og upprennandi sveitir eru
að verða ennþá fyrirferðar-
meiri í dagskránni. Gamlir stríðshestar eins og Mínus og Apparat eru
þarna ennþá, en líka glænýjar sveitir eins og Toggi og Últra Mega
Teknóbandið Stefán.
Og nú er bara að fara að spá í hvernig maður raðar saman þessum
dögum. Brazilian Girls, Dälek, Islands, Klaxons, The Go! Team, Love
Is All, Wolf Parade, Whomadewho, Spektrum, Seabear, Biggi, Mr. Silla
og Pétur Ben eru t.d. allt nöfn sem maður má ekki missa af...
Airwaves - Tónlist
morgundagsins í dag
> Plata vikunnar
Toggi:
Puppy
„Puppy er óvenju vönduð og vel unnin
frumsmíð. Toggi er greinilega mjög hæfi-
leikaríkur tónlistarmaður þó að hann
eigi enn eftir að skapa sér sérstöðu.” - TJ
Justin Timberlake sendi
fyrr í mánuðinum frá sér
sína aðra sólóbreiðskífu,
FutureSex/LoveSounds.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
grennslaðist aðeins betur
fyrir um plötuna og vinnslu
hennar.
Aðeins fjórtán ára að aldri hafði
Justin Timberlake skrifað undir
plötusamning ásamt hljómsveit
sinni N‘Sync. Síðan þá hefur líf
Justins verið eins og í draumi
hvaða miðríkjapilts sem er, allt
frá því að afmeyja Britney Spears
og yfir í að koma breiðskífu sinni í
efsta sæti Billboard-listans fræga.
Metnaður hefur skinið í gegnum
allan hans ferill, sem núna virðist
hafa komið honum á toppinn.
684 þúsund eintök á viku
Nýjasta breiðskífa Justins, Future-
Sex/LoveSounds (plötuheitið
hljómar reyndar óþægilega líkt
Outkast-skífunni Speakerboxxx/
The Love Below), fylgir eftir
gríðarlegum vinsældum fyrstu
plötu kappans, Justified, sem kom
út árið 2002 og hafði að geyma
smelli á borð við Cry Me a River,
Like I Love You og Rock Your
Body. Nýjasta skífan hefði samt
ekki getað beðið um betra start;
fyrstu vikuna seldist hún í 684
þúsund eintökum í Bandaríkjun-
um einum, þar sem hún flaug að
sjálfsögðu í fyrsta sæti Billboard-
listans. Fyrsta smáskífa, Sexy-
back, hefur síðan ómað á heitum
klúbbum og bylgjum útvarps-
stöðva víða um heim.
Góðar fyrirmyndir
Justin sjálfur þakkar einum manni
þessari velgengni sinni (fyrir utan
að sjálfsögðu sjálfan sig), nefni-
lega upptökustjóranum Timba-
land. Justin segir sjálfur að hann
hafi beðið Timbaland um að gera
með sér plötu sem átti að hljóma
„...ólík nokkru öðru sem þeir höfðu
heyrt áður.”
Platan eru vissulega frábrugð-
in fyrirrennara sínum, minna af r-
i og b-i en meira af fönki og rokki
þó hún sé ekki einstök í sinni röð.
Fyrir fyrstu plötu sína fór
Justin ekki leynt með aðdáun
sína á fyrrverandi konungi
poppsins, Michael Jackson, en á
FutureSex/LoveSounds leitaði
Justin í smiðjur Prince og David
Bowie (!) að hans eigin sögn.
Áhrif meistara Prince eru ein-
mitt greinileg, ekki þarf annað en
að lesa hin kynæsandi og kynlífs-
tengdu heiti á bæði plötunni og
lögum hennar.
Ógnvænlegt upptökustjóratríó
Þessi viðleitni Justins í að sækja í
smiðjur gömlu poppkónganna
sýnir og sannar það sem virðist
vera takmark hans, að verða
ókrýndur konungur poppsins. Fer-
ill Justins hefur einnig alltaf verið
á leið upp á við. Hann hætti akkúr-
at á réttum tíma í N‘Sync, gerði
sólóplötu með heitustu upptöku-
stjórum þess tíma, Neptunes, og
sendir núna frá sér aðra breið-
skífu þar sem metnaðurinn skín í
gegn. Timbaland er greinilega
höfuðpaurinn en auk hans tóku
einnig þátt í vinnslu plötunnar
goðsögnin Rick Rubin og for-
sprakki Black Eyed Peas, will.
i.am, sem hafði þetta að segja um
Justin í nýlegu viðtali við heima-
síðu Billboard: „Hann kom mér
aftur á óvart. Ég var undrandi á
því að mér ætti jafnvel eftir að
líka vel við Justin Timberlake.
Síðan gerði hann mig að aðdáanda,
sem ég er núna. Það þýðir að hann
er svo hæfileikaríkur að hann
breytir orðaforða manneskjunn-
ar.” Meira að segja stílistinn hans
og hárgreiðslumaður eru sérstak-
lega titlaðir í kringum plötuna og
sýna enn og aftur að Justin vill að
allt sé alltaf pottþétt.
Toppdómar úr óvæntri átt
Platan hefur auk þess að rokselj-
ast og fá afbragðs spilun fengið
fína dóma. Það sem er líka einna
skemmtilegast við þá er að bestu
dómarnir koma frá tónlistarmiðl-
um sem eru þekktastir fyrir
umfjöllun sína um indítónlist og
grasrót tónlistarbransans. Má þar
til dæmis nefna Stylus Magazine,
NME, Prefix Magazine og
Pitchfork. Á meðan hafa Vibe, E!
Online, Billboard og Entertain-
ment Weekly einungis gefið Future-
Sex/LoveSounds meðalgóða dóma.
Hvort Justin sé orðinn of megin-
straums að hann hafi snúist í hálf-
hring og sé kominn í grasrótina
verður hins vegar látið liggja á
milli hluta. Enginn efast hins vegar
um það að poppheimurinn er eign
Justins Timberlake eins og staðan
er núna og fátt virðist í augsýn
sem getur steypt honum af stóli
sem konungur poppsins í dag.
Ókrýndur konungur poppsins
JUSTIN TIMBERLAKE Fátt virðist geta steypt honum af stóli sem konungi poppsins í
dag.
WOLF PARADE
Í SPILARANUM
Tilly and the Wall: Bottoms of Barrels
Jens Lekman: Oh You’re So Silent Jens
The Killers: Sam‘s Town
Spank Rock: Yoyoyoyoyo...
Kelis: Kelis Was Here
„Við fréttum að hann væri staddur hérna á
Íslandi að byggja sér sumarbústað og datt í
hug að honum leiddist þar sem hann er
búinn að vinna í hljóðverum á Bretlandi
undanfarin ár en ekki við húsasmíðar,“
segir Ágúst Bogason, gítarleikari Jan
Mayen, um fyrirhugað samstarf hljómsveit-
arinnar og tónlistarmannsins Ebergs. Fyrir-
hugað er að Eberg, sem heitir Einar Töns-
berg en gerir sjálfur tónlist undir
Eberg-nafninu, taki upp sex lög með hljóm-
sveitinni á næstunni.
„Við vorum hrifnir af því sem hann var að
gera úti og hringdum bara í hann til að sjá
hvort hann væri ekki til í að taka aðeins upp
með okkur. Síðan hittumst við, ræddum
málin, komumst að því að hann væri líka fínn
gaur þannig að þá var bara ákveðið að kýla á
þetta. Síðan erum við bara að fara að taka
upp á næstu dögum, svona aðallega til að sjá
hvernig þetta samstarf mun ganga,“ segir
Ágúst. Hann segir enn fremur að ekkert hafi
verið ákveðið með útgáfu, en allt sé opið. „Ef
vel tekst til fer eitthvað í spilun í útvarpi, ef
virkilega vel tekst til kýlum við á plötu. Við
eigum lager af lögum en ekki eins mikið af
peningum. Það er stærsta vandamálið.“
Taka upp plötu með Eberg
JAN MAYEN Á leiðinni í stúdíó.
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
9
HVER VIN
NU
R
!
MOBILE
FRUMSÝND 29//09//06
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
SENDU SMS SKEYTIÐ JA TNF
Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
Íslendingar og útlendingar fá allar upplýsingar á ensku um allt það sem heimsborgin Reykjavík státar af á hverjum
tíma.; menningarviðburðir, tónleikar, skemmtistaðir, veitingastaðir, söfn, gallerí, tíska, verslanir og næturlíf.
Íslendingar þurfa líka að fylgjast með!