Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 70

Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 70
 29. september 2006 FÖSTUDAGUR38 Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að sumarið hafi verið svakalega gott, mér hafi tekist að slaka vel á og vetrarstressið byrji frekar rólega, var kominn tími til að breyta aðeins til. Ég þurfti að ná úr mér sumrinu og undirbúa mig fyrir umskipti vetrarins. Eins og ég hef sagt ykkur áður eru margir eins og ég sem þurfa tilbreytingu til að halda lífi og geðheilsu. Ég var svo heppin að komast af landi brott í eina fimm daga. Áfangastaðurinn í þetta sinn var spænska menningarborgin Barcelona. Ég skal viðurkenna að þangað fór ég um helgina í fimmta sinn og var enn sem áður jafn hrifin. Þessi borg er bara einhvern veginn svo lifandi, full af spennandi viðburðum og skemmtilegu fólki. Um leið og ég steig út úr vélinni, um klukkan þrjú að nóttu á spænskum tíma, helltist yfir mig þrúgandi gleði og ómæld ánægja með að hafa skellt mér burt. Á sama tíma söng kroppurinn halelúja yfir hitanum, já og rakanum. Að sjálfsögðu stökk ég á fætur fyrsta morguninn af einskærri eftirvæntingu yfir að komast í búðirnar sem ekki er að finna á Íslandi. Aumingja kortin mín fengu svo sannarlega að svitna fyrir vikið, svo ekki sé minnst á Barcelona-félagann sem fékk að halda á öllum pokunum svo ég gæti keypt sem mest. Þið hefðuð átt að sjá glottið á andlitinu á mér þennan dag. Það hélst svo sem á mér allan tímann en fyrsti dagurinn var einfaldlega himneskur. Eftir erfiðan dag í búðunum var að sjálf- sögðu farið út og borðaður álíka himn- eskur spænskur og katalónskur matur sem er ekki í líkingu við neitt sem hægt er að fá sér hér heima. Ætli ég verði ekki að viðurkenna líka að það var ekki bara borðaður góður matur úti á veitingahús- um á kvöldin heldur líka á morgnana, í hádeginu og seint á kvöldin. Eins og maður segir; „When in Rome“... eða „sértu í Barce- lona“! Hápunktur ferðarinnar var þó ansi sérstæð- ur atburður. Ekkert annað en fyrstu tónleikar George Michael síðan á síðustu öld! Ég get sagt ykkur að tilfinningin sem helltist yfir mig þegar brilljantíngreiddi ofurtöffarinn steig á sviðið var ólýsanleg. Eftir upphitunar- lögin og eina tvo „cerveza“ var ég farin að syngja hástöfum og dilla mér í takt. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa hálfvitasvipn- um á mér þegar „Careless Whisper“ barst til eyrnanna. Þvílík og önnur eins nostalgía! Ég get að minnsta kosti sagt ykkur það að þessir fimm dagar gerðu veturinn fyrir mig! Nú get ég ekki annað en hellt mér af fullum krafti í verkefni vetrarins með endurnærðan kropp og full af spenningi yfir næsta míní- flótta. REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR STAKK AF TIL AÐ UNDIRBÚA SIG FYRIR VETURINN Himnesk helgi í Barcelona ��������������� ������ ����� ��� ��������� �� �������� ������ ����������� ���� ���������� ������ ��� ������ ������ ������ ����������� ������ ����� ����� ��� ������ ������ ���������������� ������ � ������ ������� ��� ��������� ����� ������������ ������� ��� ������� ��������� � ���������� ������� �� ���������� ��� ��� ���� �������� ��� ������� ��������� ��������� ������ �������� ������ ������ ������ ������ �������� �������� ��� ����� ������� ����������� ������������ ����������� ���������� ��� ����� ����������� ���� ����� �� ������ ��� �������������� ������ ����������� ����� ���������������� � ��� ������� �������� �� ��������� ���� ������ ����������� ����� ���������� ��� ����� �������� �������� � �� ������� �������� ���� ����������� ������ ��� ���� ������� ��������������� ������� ������� ���� ����� ���� ��� ������� ������ �������������� �������� ������������ ������������������ �������� �������� ���� ����� �� �������������� ��� ������ �� � � ��� � �� � � ��� � ������ ����� Vinsælasta prinsessa Dana, Alexandra, hefur eignast nýjan kærasta, ljósmyndar- ann Martin Jörgensen, og danska þjóðin talar varla um neitt annað. Að morgni miðvikudags birtu danskir fjölmiðlar frétt þess efnis að Alexandra hefði látið mynda sig með Jörgensen í fyrsta skipti í brúðkaupi hjá sameiginlegum vinum hennar og fyrrverandi eigin- manns hennar, Jóakims prins. Síðar sama dag voru danskir fjölmiðlar uppfullir af fréttum um hvað myndi gerast ef Alexandra tæki upp á því að giftast þessum manni sem er fimmtán árum yngri en hún. Það sem verra er í augum frændur vora í Danmörku; þeir gætu hugsanlega misst hana úr þjónustu sinni því ef Alexandra giftir sig missir hún prinsessu- titilinn og verður sjálfkrafa greifynjan af Fredriksborg. Væntanlega yrði drottningin Margrét Þórhildur heldur ekkert par hrifin af því að láta fyrrverandi tengda- dóttur sína ferð- ast um heiminn með einhverjum friðli sínum fyrir hönd landsins. Danska blaðið B.T. birti á dög- unum úttekt á því hversu miklum peningum Alexandra myndi tapa ef hún gengi í það heilaga með ást- manni sínum. Hún þyrfti að fara að borga skatt af þeim tekjum sem hún fær frá danska ríkinu vegna samkomulags sem Alexandra og Jóakim gerðu fyrir tveimur árum síðan þegar þau skildu auk þess sem hún glatar töluvert af þeim fríðindum sem prinsessan nýtur vegna tignar sinnar. B.T. reiknast til að Alexandra missi rúmlega helming allra tekna sinna ef hún ákveður að giftast ljósmyndaran- um en þarf væntanlega ekki að kvíða fyrir því að eiga salt í graut- inn, húsið hennar eitt er metið á 15 milljónir danskra króna eða um 150 milljónir íslenskra króna. Danska þjóðin hefur bundist Alexöndru miklum tryggðarbönd- um á undanförnum árum og fátt virðist geta rofið þau. Þegar Jóa- kim kynnti hana sem eiginkonu sína ráku margir landar hans upp stór augu og veltu vöngum yfir því hvernig í ósköp- unum honum hefði tek- ist að ná sér í jafn myndarlega og gáfaða konu. Jóakim hefur ætíð staðið í skuggan- um af eldri bróð- ur sínum Friðriki krónprins og þykir hvergi nærri jafn alþýðlegur og hann eða Mar- grét Þórhildur heldur sver sig frekar í ætt við föður sinn Henrik, sem hefur haft orð á sér fyrir að vera lokaður og snobbaður. Sam- kvæmt könnun netútgáfu B.T. styð- ur meira en helmingur landsmanna hjónabandshugleiðingar Alex- öndru, ef þær eru einhverjar, og um 60 prósent landsmanna telja Alexöndru hafa komið vel út úr skilnaðinum við Jóakim en mun færri styðja við bakið á honum. Alexandra trónir því enn í efsta sæti hjá dönsku þjóðinni þegar kemur að vinsældum hirðarinnar. freyrgigja@frettabladid.is Dramatík við dönsku hirðina ÚTI ER ÆVINTÝRI Skilnaður Jóakims og Alexöndru var tilkynntur fyrir tæplega tveimur árum síðan og nú er prinsessan komin með nýjan mann sér við hlið. ALEXANDRA Nýtur mikillar hylli í Dan- mörku og má vinsældir hennar rekja til þess að á sínum fyrsta blaðamanna- fundi sagði hún nokkrar setn- ingar á nánast lýtalausri dönsku. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Söngvarinn og hjartaknúsarinn Ricky Martin er vakinn og sofinn í baráttunni gegn mansali. Hann skipulegg- ur nú símasöfn- un til stuðnings fórnarlömbum mansals og safn- ar liði á opinber- um fundum. „Gangið til liðs við okkur,“ sagði Martin á opnum fundi. „Raddir fleiri þurfa að heyrast. Það er sameiginleg skylda okkar að berjast gegn þrælahaldi samtímans.“ Sjálfur er Ricky frá Púertó Ríkó en mansal er sérstaklega algengt meðal fólks frá Rómönsku Ameríku. Berst gegn mansali RICKY MARTIN Er á móti mansali. Leikararnir George Clooney og Renée Zellweger sáust saman á stefnumóti nýlega í Los Angeles. Þau voru einu sinni par og því lítur allt út fyrir að kviknað hafi í göml- um glæðum hjá þeim. Fór vel á með parinu og segja sjónarvottar að Zellweger og Clooney hafi virst ansi náin á veitingastaðnum. Clooney er þekktur kvennabósi og hefur ekki verið við sömu konu kenndur lengur en í nokkrar vikur. Zellweger hefur hins vegar verið gift einu sinni og var lengi með söngvara White Stripes, Jack White. Saman á ný? GEORGE CLOONEY Það sást til hans á stefnumóti með leikkonunni Renée Zell- weger en þau voru eitt sinn par. Leikarinn Tom Cruise er í óða önn þessa dagana að leita að handriti sem passar fyrir sig og unnustu sína Katie Holmes. Skötuhjúin hafa áhuga á að reyna fyrir sér saman á hvíta tjaldinu í þeim til- gangi að breyta ímynd sinni. Tom Cruise var rekinn fyrr í þessum mánuði frá Paramount-kvik- myndasamsteypunni vegna fram- komu sinnar á síðasta ári og vill nú gera mynd með unnustu sinni svo að áhorfendur öðlist álit á þeim á ný eftir viðburðaríkt ár. Katie Holmes hefur ekki leikið í mörgum kvikmyndum og er þekktust fyrir leik sinn í sjón- varpsþáttaröðinni Dawson´s Creek. Haft var eftir henni í tíma- ritinu InTouch að hún treysti Tom til að finna gott handrit sem kæmi þeim báðum á kortið á ný í kvik- myndaheiminum. Parið eignaðist sitt fyrsta barn saman í sumar og hyggst ganga í það heilaga á næst- unni. Gera mynd saman TOM CRUISE OG KATIE HOLMES Parið er þessa dagana í óða önn að leita að handriti að kvikmynd sem þau geta bæði leikið í og mun koma þeim á kortið á ný í kvikmyndaheiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.