Fréttablaðið - 29.09.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 29.09.2006, Síða 74
42 29. september 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Ný rekstrarstjórn meist- araflokks og 2. flokks ÍA í knatt- spyrnu var ekki lengi að ráða sér þjálfara og var tilkynnt um ráðn- ingu Guðjóns Þórðarsonar í gær. Fréttablaðið greindi frá því fyrr í mánuðinum að Gísli Gíslason myndi taka við formennsku í rekstrarstjórninni og að hann og Guðjón hefðu rætt saman um að sá síðarnefndi myndi taka að sér starf þjálfara. Gísli sagði í gær að aðeins Guð- jón og tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hefðu komið til greina í starf þjálfara en þeir tveir síðastnefndu tóku við af Ólafi Þórðarsyni um mitt sumar þegar staðan var slæm og björguðu lið- inu frá falli. „Allir í stjórninni eru sammála um að fá til starfa reyndan og far- sælan þjálfara og byggja upp félagið til lengri tíma litið,“ sagði Gísli á blaðamannafundinum í gær aðspurður um málið. Hann vildi þó ekki viðurkenna að ráðn- ing Guðjóns hefði verið svo gott sem frágengin áður en hann tók við formennskunni. „Við höfum rætt þetta enda þekkjumst við vel og höfum spjallað um margt og mikið. Til að mynda hvað væri hægt og hvað ekki fyrir félagið. En það var ekki gengið frá neinu formlegu þar til í gærkvöldi.“ Guðjón sagði að viðræðurnar hefðu tekið skamman tíma. „Þetta var ekki erfið fæðing. Skaginn er í þeirri stöðu að öll aðstaða til æfinga og iðkunar er mjög góð allt árið um kring og þar er líka hópur góðra og ungra leikmanna sem ég tel að hægt sé að styrkja og bæta. Þetta félag er á þeim stað nú sem er ekki ásættanlegur fyrir ÍA og stuðningsmenn liðsins.“ Hann sagði að öll leikmannamál ætti eftir að skoða betur en að ÍA ætlaði sér ekki að keppa við stærstu félögin á landinu, svo sem FH, Val og KR, um stærstu bitana á mark- aðnum. Gísli bætti því við að meg- inhluti leikmanna væri enn með gildandi samning en að Igor Pesic væri farinn af landi brott með laus- an samning og eftir ætti að ræða frekar við þá Arnar og Bjarka. Arnar staðfesti þó í samtali við Fréttablaðið í dag að þeir ætluðu sér ekki að spila fyrir ÍA aftur. Þá á eftir að ganga frá ráðn- ingu aðstoðarmanns Guðjóns en þar er talinn helst koma til greina Sigurður Jónsson sem og Pétur Pétursson, báðir gamlir Skaga- menn. Guðjón sagði að hans verkefni lægi ljóst fyrir. „Það er að setja knattspyrnufélag ÍA aftur í fremstu röð á Íslandi. Það verður erfitt og mun kosta mikla vinnu. En við erum vanir því og höfum þurft að hífa félagið nánast úr kjallaranum og setja það aftur á toppinn.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is GÍSLI OG GUÐJÓN Nýr formaður rekstrarstjórnar meistaraflokks og 2. flokks ÍA, Gísli Gíslason, fyrrum bæjarstjóri Akraness, og Guðjón Þórðarson, nýráðinn þjálfari ÍA. FREÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Verkefnið að koma ÍA aft- ur í fremstu röð á Íslandi Guðjón Þórðarson var í gær formlega ráðinn sem þjálfari ÍA en síðast gerði hann liðið að Íslandsmeisturum fyrir réttum tíu árum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og stefnir Guðjón nú á að frægðarsól Skagamanna rísi á ný. FÓTBOLTI Arnar og Bjarki Gunn- laugssynir tóku við þjálfun ÍA í sumar og gengi Skagaliðsins eftir að þeir tóku við sem þjálfarar vakti verðskuldaða athygli; liðið náði að bjarga sér frá falli og þótti spila mjög skemmtilegan sóknar- fótbolta sem gaman var að horfa á. Fréttablaðið náði tali af Arnari í gær og spurði hann hvort þeir bræður væru hættir í fótbolta? „Ég er bara ekki klár á því. Tímabilið var bara rétt að klárast og nú er maður bara að slaka aðeins á. Við erum ekkert búnir að ákveða neitt,“ sagði Arnar en þeir bræður verða 34 ára á næsta ári. „Skrokkurinn var alveg í þokkalegu standi í sumar og við treystum okkur alveg til að spila fótbolta áfram,“ bætti Arnar við en hann útilokaði að þeir bræður myndu spila með Skagamönnum næsta sumar. Arnar sagði að þeim hefði fundist leiðinlegt að fá ekki að halda áfram með liðið en sagðist jafnfram skilja vel afstöðu nýju stjórnarinnar hjá ÍA. „Við erum auðvitað svekktir en samt skilj- um við það vel að það er að koma ný stjórn og hún vill að sjálfsögðu ráða sinn mann. Ég myndi vilja það sjálfur ef ég væri að koma í stjórn einhvers félags, þá myndi ég vilja ráða minn mann. Það er mjög skiljanlegt,“ sagði Arnar og hann staðfesti það að nokkur félög hefðu haft samband við þá bræður. „Það hafa nokkur félög haft samband, bæði varðandi þjálf- arastöðu og að spila,“ sagði Arn- ar. Hann fullyrti jafnframt að Þróttur væri ekki eitt þeirra en félagið er enn þjálfaralaust. - dsd Framhaldið er óákveðið hjá Arnari og Bjarka en félög hafa haft samband: Enginn áhugi að spila fyrir ÍA ARNAR OG BJARKI Skagaliðið vakti mikla athygli fyrir sóknarbolta eftir að þeir bræður tóku við þjálfun liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ > Félagaskiptin ekki staðfest Það bendir margt til þess að markvörðurinn Egidijus Petkevicius verði áfram í herbúðum Fram en dómstóll HSÍ neitaði í gær að staðfesta félagaskipti markvarðarins úr Fram í HK. Petkevicius á ár eftir af leikmannasamningi sínum við Fram en launasamningur hans er útrunninn og því taldi hann sig lausan allra mála. Dómstóll HSÍ var því ekki sam- þykkur og neitaði að staðfesta félaga- skiptin. Petkevicius hefur áður sagt að um mannréttindamál sé að ræða og hann er tilbúinn að fara með málið fyrir mannréttindadómstól fái hann félagaskiptin ekki staðfest. Forráðamenn HK sögðust í gær fastlega búast við því að áfrýja dómnum. Á miðvikudaginn kemur kl. 19.30 munu Íslandsmeistarar FH mæta KF Nörd, sem hefur gert garðinn frægan á Sýn. Liðinu er stjórnað af Loga Ólafssyni sem eitt sinn þjálfaði FH og mun kollegi hans, Ólafur Jóhannesson, ekki falla í þá gryfju að vanmeta andstæðinginn. „Við munum mæta vel undirbúnir til leiks og æfa að minnsta kosti þrisvar fyrir leikinn, ef ekki oftar,“ sagði Ólafur við Fréttablaðið. „Við lítum þannig á málið að það sé einn leikur eftir af tímabilinu og hann verðum við að klára. Það kemur ekkert annað en sigur til greina og er ég með innanbúðarmann sem fylgist vel með öllu sem þeir gera. Það mun ekkert í þeirra leikstíl koma okkur á óvart.“ Ólafur segir að undirbúningur liðsins verði eins og fyrir alla aðra leiki liðsins en hann verði þó frábrugðinn að því leyti að liðinu verði ekki stillt upp á hefðbundinn máta. „Það bendir allt til þess að þjálfararnir spili einhvern hluta af þessum leik,“ sagði Ólafur en aðstoðarmaður hans er Heimir Guðjónsson, fyrrum fyrirliði FH. Logi Ólafsson fagnaði þessum tíðindum enda væru þau af hinu góða fyrir sitt lið. „Ef eitthvað er hafa lappirnar bognað enn meira en áður var á Ólafi og Heimir hefur þyngst til mikilla muna. Að þeir skulu spila eru því ágætis fréttir fyrir okkur.“ Það kom honum þó ekki á óvart að Ólafur ætlaði að undirbúa sína menn eins og best- ur kostur væri. „Hann rennir ekki blint í sjóinn enda hefur hann náð góðum árangri undanfarin ár og ætlar ekki að klúðra honum í þessum leik.“ Hann setur þó spurningamerki við téðan „innanbúðarmann“. „Þetta eru vinsælir þættir og við höfum þar að auki verið að æfa í Kaplakrika. Hann hefur greinilegt sent njósnara til að fylgjast með okkur þar.“ Logi segir þó mikla til- hlökkun ríkja í herbúðum KF Nörd. „Menn eru til- búnir að gefa allt í þetta verkefni. Yfirlýst markmið er að skora mark í leiknum og allt annað er bónus.“ FH SPILAR VIÐ KF NÖRD: ÞJÁLFARARNIR SENNILEGA MEÐ ÍSLANDSMEISTURUNUM FH æfir stíft fyrir leikinn gegn KF Nörd FÓTBOLTI Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður líklega gengið frá ráðningu Ásgeirs Elíassonar í starf þjálfara meistaraflokks karla hjá ÍR í dag. Ásgeir þjálfaði Fram í sumar og kom liðinu upp í úrvalsdeildina en þrátt fyrir það ákváðu Framarar að segja upp samningi Ásgeirs að tímabilinu loknu. Viðræður hafa verið í gangi milli Ásgeirs og stjórnar knatt- spyrnudeildar ÍR undanfarna daga og mikill áhugi er hjá báðum aðilum að ganga frá ráðningunni. Ásgeir lék handbolta með ÍR á árum áður og er því vel kunnugur félaginu. - dsd Þjálfaramál í 1. deild: Ásgeir tekur líklega við ÍR ÁSGEIR ELÍASSON Hans næsta starf verður líklega að þjálfa meistaraflokk karla hjá ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI FÓTBOLTI Fréttablaðið greindi frá því fyrir nokkrum dögum að Hörður Sveinsson, leikmaður Silkeborgar í Danmörku, hefði verið skallaður í andlitið á æfingu af samherja. Maðurinn sem þar var að verki heitir Bajram Fetai og hann var á mánudaginn rekinn frá félaginu út af því atviki. „Það tók stjórnina bara svona langan tíma að ákveða hvað gera ætti í málinu. Mér finnst leiðin- legt að missa hann og ég held að flestir leikmennirnir séu á sama máli en ég held að styrktaraðil- arnir hafi haft sitt að segja í þessu máli, ásamt stjórninni,“ sagði Bjarni Ólafur Eiríksson, samherji Harðar. - dsd Leikmaður Silkeborgar: Rekinn fyrir að skalla Hörð FÓTBOLTI Samuel Eto‘o, framherji Barcelona og samherji Eiðs Smára, var borinn af leikvelli í leik Werder Bremen og Barce- lona í fyrradag með hnémeiðsli. Í gær gekkst hann undir aðgerð þar sem liðmáni var lagfærður og verður hann frá í fimm mánuði. Í næsta mánuði mætir Barcelona Chelsea í meistaradeildinni og Real Madrid í spænsku deildinni. Eto‘o virðist vera framherji númer eitt hjá Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona, og fyrir vikið hefur Eiður Smári þurft að verma varamannabekkinn oft frá því að hann gekk til liðsins frá Chelsea. - dsd Eto‘o frá í fimm mánuði: Fær Eiður fleiri tækifæri? FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann í gær glæsileg- an 6-0 sigur á Portúgal á útivelli en leikurinn var sá síðasti í riðli Íslands í undankeppni HM 2007. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fjögur mörk í leiknum og Katrín Jónsdóttir tvö. Ísland varð í þriðja sæti í riðlinum en Svíþjóð í því efsta og fer því á HM í Kína. Eini leikurinn sem Svíþjóð vann ekki í riðlinum var jafnteflisleik- urinn gegn Íslandi ytra. - esá Stórsigur Íslands á Portúgal: Sex marka sigur FÓTBOLTI Newcastle vann í gær 2-1 sigur á Levadia Tallinn frá Eistlandi með tveimur mörkum frá Obafemi Martins. Kristinn Jakobsson dæmdi leikinn og stóð sig með miklum sóma. Hann átti fremur rólegan dag og lyfti gula spjaldinu aldrei á loft. Odense vann 1-0 sigur á Herthu Berlín og vann samanlagt, 3-2 og þá var Hannes Þ. Sigurðs- son í liði Bröndby sem gerði 2-2 jafntefli við Eintracht Frankfurt. Síðarnefnda liðið vann samanlagt, 6-2. Grétar Rafn Steinsson kom inn á sem varamaður í 1-1 jafntefli AZ Alkmaar við Kayser- ispor. AZ vann samanlagt, 4-3. Marel Baldvinsson spilaði allan leikinn er Molde tapaði 2-0 fyrir Rangers á útivelli. Jóhannes Harðarson var ekki í leikmanna- hópi Start sem tapaði 4-0 fyrir Ajax á útivelli og samanlagt 9-2. Tottenham vann 1-0 sigur á Slavia Prag og 2-0 samanlagt og þá vann Palermo 3-0 sigur á West Ham, samanlagt 3-1. Að síðustu vann Blackburn lið Salzburg, 2-0, og 4-2 samanlagt. - esá UEFA-bikarinn: Kristinn stóð sig með sóma FÓTBOLTI Útvarp KR 98,3 hefur blásið í herlúðra fyrir bikar- úrslitaleikinn á laugardag og hefur upphitun í dag klukkan 18. Þá verður tveggja tíma þáttur með viðtölum en í kjölfarið verður hinn eini sanni Sigurður Pétur Harðarson með þátt sinn „Landið og miðin“ til klukkan 23. Á laugardaginn hefst útsend- ing klukkan 9 og verður hitað upp alveg til 14 þegar leikurinn hefst en vonir standa til að Bjarni Felixson lýsi leiknum. Útsending- in á morgun verður sú 196. í röðinni. - hbg Útvarp KR 98,3: Tveggja daga útsending ÞRÖSTUR EMILSSON OG BOGI ÁGÚSTS- SON Verða á vaktinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGGI JÓNS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.