Tíminn - 07.01.1979, Blaðsíða 21

Tíminn - 07.01.1979, Blaðsíða 21
Sunnudagur 7. janúar 1979 en tíu dögum eftir að- gerðina og Bótólfur annaðist hann þangað til. Þegar tíu dagarnir voru liðnir fékk hann að æfa vængina. Bótólfur kenndi honum að beita vængjun- um og eftir tuttugu daga mátti hann reyna að fljúga. Bótólfur var mjög spenntur. Palli var viðstaddur. Hemmi froskur blakaði vængjun- um á klettasyllunni skæl- brosandi svo það sást að tvær tennur vantaði. „J æ j a s a g ð i Bótólfur„nú skaltu reyna þá. Stökktu fram af." Palli spennti greipar og Bótólfur vafði bókina örmum. Hemmi froskur stokk himinlifandi fram af syllunni. Hann biakaði vængjunum eins hratt og hann gat svo fiðrið kurlaðist úr þeim, það var eins og þeir væru of stórir fyrir hann hann gat ekki valdið þeim. Hann hrapaði. En rétt áður en hann skall á jörðina náði hann jafnvæginu og tókst að ryðja loftinu aftur fyrir sig á réttan hátt. Hlann gat flogið. Hann blakaði vængjunum fim- iega og smaug í gegnum loftið. En froskalappir- nar tóku sundtökin með. Hann flaug hátt upp og stakk sér niður í skógar- þykknið flaug grein af grein. Hann var eitt sól- skinsbros í framan. Palli gaf uglunni oinbogaskot og uglan kinkaði kolli. Rigningar kvöld eitt nokkrum dögum seinna sat Palls í íbúð sinni og lagði kapal. Hann var í slopp og ætlaði von bráðar að leggjast til svef ns. Þá heyrði hann að bankað var á útidyrnar. Hann vissi ekki hver það gat verið. En þegar hann fór til dyra kom Hemmi froskur í Ijós. Hann var niðurlútur og bað um að fá að koma inn. Regn- vatnið draup af honum. Palli lánaði honum and- klæði til að þurrka væng- ina. „Af hverju ertu svona dapur?" sagði Palli. „Æ, það var svo sem ekkert sérstakt," sagði froskurinn dauflega. „En eitthað er að?" „Ég er búinn að fljúga um alla eyjuna hátt og lágt og ég er búinn að f Ijúga hátt upp í himininn en það er í raun og veru ekkert skemmtilegra að fljúga en kafa." „Nú." „Það þýðir ekkert að láta breyta sér. Ég vil ekki hafa þessa vængi." „Nú líst mér á þig. Ég efast um að Bótólfur vilji taka vængina af þér aft- ur hann var einmitt svo ánægður með árangur- inn," sagði Palli. „Já en hann verður að gera það. Ég vil bara vera froskur," sagði Hemmi og gerði sig lik- legan til að skæla. Pall i páf agaukur nuddaði sér um ennið og andvarpaði. 21 • *5-' • • - X’f- V.,' barnatíminn Umsjón: Sigrún Björnsdóttir Geturðu? Hér eru sex f löskur. Þrjár með vökva og þrjár tómar. Getur þú nú víxlað flöskunum þannig, að vökvi sé í annarri hverri flösku? Þú mátt aðeins hreyfa eina flösku. Svar í næsta Barna-Tíma W ' ' Getur þú reiknað? Getur þú reiknað út hve margir sléttir fletir eru á þessum demanti? Svar i næsta Barna- Tíma Litla gáta Ef þið eruð dugleg að deila með 4 þá er hér skemmti- legt verkefni. Þið litið alla þá f leti sem í eru tölur, sem deilanlegar eru með 4, þá kemur út mynd. Þið skuluð bara nota einn og sama litinn. Börnin hans Bamba dftir Felix Salter Þýð. Stefán Júlíusson „Jæja, karlinn", æpti Númi. „Nú skaltu vara þig" Númi rann á Búa á ný. En I þetta sinn vék Búi sér ekki undan. Hann stóð sem klettur og spyrnti við öllum fótum. Númi hrökk undan honum og féll á afturfæturna. „Jæja karlinn", æpti Númi, „nú skaltu vara þig." Númi rann á Búa á ný. En I þetta sinn vék Búi sér ekki undan. Hann stóð sem klettur og spyrnti öllum fótum. Númi hrökk undan honum og féll á aftur- fæturna. „Þú getur fengið slæman höfuðverk af þessu", sagði Búi. Númi rann á hann enn á ný, og nú stóðu þeir hvor gegn öðrum og hornin kræktust saman. Loks gat Númi losað sig. Þá hentist Búi á hann. Þeir skullu saman af feikna-afli. Númi hrasaði. Búi notaði þá tækifærið. Hann greiddi honum ógurlegt högg undir nárann. Númi féll aftur fyrir sig og valt um hrygg. Búi færði sig aftur á bak og beið nýrrar árásar. Litla stund heyrðist ekkert hljóð nema hvæsandi andardráttur keppinautanna. Síðan brölti Númi á fætur með erfiðsmunum. „Númi", sagði Búi, „nú erum við búnir að berj- ast. Nú skulum við vera vinir. 7. Bambi Eitt sinn um sumarið heyrðist greinilega í eld- prikinu í skóginum. MAÐURINN var kominn mjög nálægt. Þetta var ungur maður með nýja byssu. Hann var f jórtán ára, og skógarvörðurinn .hafði Framh. í næsta Barna-Tíma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.