Tíminn - 06.04.1979, Qupperneq 19
Föstudagur 6. aprll 1979.
19
flokksstarfið
Orðsending til
Framsóknarmanna í
Reykjavík og nágrenni
Félag ungra Framsóknarmanna mun selja páskaegg á skrifstof-
unni Rauðarárstig 18. Pantanir eru teknar hjá Katrlnu Marlus-
dóttur framkvæmdastjóra F.U.F. Styrkið Félag ungra fram-
sóknarmanna.
Akureyringar
„Opið hús” að Hafnarstræti 90 alla miðvikudaga frá kl. 20. Sjón-
varp, spil, tafl. Komiö og þiggiö kaffi og kökur og spjalliö saman
i góðu andrúmsiofti.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Hafnfirðingar.
Opið hús á fimmtudagskvöldum I framsóknarhúsinu.
Litið inn.
Framsóknarfélögin.
Rangæingar
3. spilakvöld Framsóknarfélags Rangæinga verður að Hvoli
föstudaginn 6. april og hefst kl. 21.
Ræðumaður veröur Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður.
Félag Framsóknarkvenna
í Reykjavík
heldur kökubasar og fatamarkað að Rauðarárstig 18, kaffiteriu
laugardaginn 7. april kl. 2. e.h. Tekið verður á móti kökum á
sama stað kl. 10 f.h.
Basarnefnd verður að Rauðarárstig 18 fimmtudaginn 5. april frá
kl. 20.30
Nefndin.
Ungt fólk athugið.
Stórdansleikuri Sigtúni i kvöld frá kl. 9-01. Galdrakarlar spila.
Mætum öll og styrkjum starfsemina.
F.U.F.
Viðtalstími
Kristján Benediktsson borgarfulltrúi og Guömundur Gunnars-
son i framkvæmdaráði Reykjavikurborgar verða til viðtals að
Rauðarárstig 18, laugardaginn 7. april kl. 10-12.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna I Reykjavik.
Framsóknarfélag Grindavíkur
Framsóknarfélag Grindavikur heldur aöalfund félagsins I Festi
fimmtudaginn 12. april kl. 14.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn mætið vel og stundvislega.
Stjónin.
Fundur um æskulýðsmól
haldinn að Rauðarárstig 18, Hótel Heklu, kaffiteriu þriðjudaginn
10. april kl. 20.30
Framsögumenn:
1. Gylfi Kristinsson, stjórnarmeðlimur Æskulýðsráðs rikisins
2. Kristinn Agúst Friðfinnsson, varaformaöur Æskulýðsráðs
Reykjavikur.
Almennar umræður.
Fundarstjóri Jósteinn Kristjánsson
F.U.F.
Vorfagnaður framsóknarfélags
Grindavíkur
verur haldinn i Festi 21. april kl. 21.
Ljúfar veitingar. Góð hljómsveit. Suðurnesjamenn fjölmenniö.
Framsókharfélagið.
t
Þorbjörg Halldórsdóttir
frá Strandarhjáleigu
andaðist að Hrafnistu 4. april s.l.
Vandamenn.
Eiginmaður minn og faðir okkar
Árni Yngvi Einarsson
f.v. framkvæmdastjóri að Reykjalundi
lést að Borgarspitalanum aðfaranótt 5. april.
Fyrir mina hönd og barna okkar
Hlin Ingólfsdóttir.
Breytingar 0
þar af leiðandi tengdir stórum
stöðvum, þar sem fyrir hendi
væri langur þjónustutimi og
viöast hvar næturvakt. 1 öðru
lagi þyrfti bersýnilega aö hraða
lagningu sjálfvirks sima um
land allt.
Ráðherra kvaðst taka undir
nauðsyn þess að simgjöld viös
vegar um land yröu jöfnuð. í
starfi sínuheföi hann hins vegar
fengiö að reyna þaö að við
ramman reip væri aö draga
vegna þess, að visitala fram-
færslukostnaöar væri Reykja-
vikurvisitala: ,,Og ef reynt er
að færa til útgjöld með þvi að
lækka simkostnað hjá dreif-
býlisfólki og þar með hækka
litillega simkostnað hjá þétt-
býlisfólki, þá kemur þetta fram
i hækkun framfærsluvisitölu og
þvi reynist mjög erfitt aö taka
stór stökk á þessu sviöi á
skömmum tfma”.
Stórátak nauðsynlegt á
næstunni
Einar Agústsson (F) sagði
m.a. orðrétt:
„Ráðherra talaöi um þaö i
sinu máli að það væri nauðsyn-
legtað gera stórátak á næstunni
i simamálum landsmanna. Ég
get vel fallist á, að hér muni
vera rétt frá greint. Hann talaði
lika um það að það væri svo er-
fitt að hækka gjaldskrá Pósts og
sima vegna þess að I gildi væri i
landinu svonefnd Reykjavikur-
visitala eins og hann komst að
orði og þess vegna megi ekki
hækka gjöldin á okkur, sem bú-
um hér á þessu svæði vegna
þess hvaða áhrif það hefur á
launagreiðshir almennt. En ég
vil bara biðja þá guð að hjálpa
okkur Reykvikingum, þegar
farið verður að reikna visitöl-
una eftir þvi, hvað það kostar að
vera einhvers staðar annars
staðar, þvi að á undanförnum
örskömmum tima hefur gjald-
skrá Pósts og Sima hækkað um
400% á sama tima og t.a.m. raf-
magnsverð frá Landsvirkjun
hefúr hækkað um 200% og þykir
mörgum nóg um og hjá RARIK
lika”. Sagði Einar að það yrði
aldeilis tekið eftir þvi
þegar farið yrði að taka stóru
stökkin.
Taxti gildi fyrir allt
árið
Halldór E. Sigurösson (F)
kvaðst ekki sáttur við það að
vera að hækka gjöld Pósts og
sima i smástökkum eins og gert
hefðiverið: „Min besta reynsla
var sú, þegar ákveðið var fyrir
árið 1977, áður en áriö byrjaöi,
taxti sem gilti allt árið og það
varö nú notendunum lang
happadrýgst. Það er alveg ljóst,
að það verður ekki breytt þess-
um málum svo betur megi fara
nema með þvi að hækka
tekjurnar hjá þessari stofnun,
þviað þaðveröamennaðmuna,
að um 60-70% af útgjöldum
Pósts og sima eru vinnulaun og
þau hafa hækkað allmikiö á
siöustu árum eins og kunnugt
er. Annað hvort verður þvi að
ske, að gjaldskráin verður að
hækka eöa rikissjóöur verður að
leita til framkvæmda, ef á að ná
þarna nokkrum árangri”.
Auglýsið í
Tímanum
Karlakórinn
í söngferð
Um næstu helgi mun
Karlakórinn Heimir í
Skagafirði halda í söng-
ferð til Suðurlands. Kór-
inn hefur æft í vetur und-
ir stjórn Ingimars Páls-
sonar og er þetta þriðja
árið sem hann annast
stjórn kórsins.
Fyrsti samsöngurinn er
fyrirhugaður I sal Fjöl-
brautaskólans á Akranesi kl. 21,
föstudaginn 6. april nk. Daginn
eftir verður sungið að Félags-
lundi i Gnúpverjahreppi kl 15,
og sama dag aö Flúðum kl. 21.
Slðustu samsöngvarnir I ferð-
inni verða svo að Hlégarði i
Heimir
Mosfellssveit sunnudaginn 8.
april kl. 17 og 21.
Einsöngvari með kórnum er
£rú Þórunn ólafsdóttir og
undirleikari Einar Schwaige,
norskur tónlistarmaður sem tók
til starfa við Tónlistaskóla
Skagafjarðar á sl. hausti.
A nýafstaðinni Sæluviku
Skagfirðinga hélt kórinn söng-
skemmtanir i Höfðaborg á
Hofsósi og i Miðgarði, ásamt
Söngfélaginu Hörpunni, við
ágæta aðsókn og góðar undir-
tektir áheyrenda.
Söngmenn I Karlakórnum
Heimi eru nú 37. Formaður
kórsins er Þorvaldur G. Óskars-
son á Sleitustöðum.
Launþegar
samningastigi og ekki enn gott
að segja hvort af samkomulagi
yrði eða upp úr viðræöum
slitnaði, en úrslita er ekki að
vænta fyrir páska úr þessu.
Leitað hefði verið álits allra
félaga og reynt að vinna úr'til-
lögum um hverju helst beri að
sækjast eftir sem gjarna væri
mjög erfitt þegar meta skal
hvað vegur upp gegn þvi sem
eftir er gefiö.
Hann sagði enn að færi svo að
upp úr slitnaði væri það mjög
móti von sinni ef það yrði til
þess að kapphlaup skapaöist á
vinnumarkaðinum, þótt óhjá-
kvæmilegt væri að lita á að það
væri um fullgilt samkomulag að
ræða. Þá kvaö hann það rangan
skilning að lita svo á að einhver
ávinningur einna samtaka
þyrfti að vera öðrum ástæða til
að álita sig hlunnfarin, þvi þar
ræddi um aðskilin mál hvers
aðila fyrir sig og BHM vildi á
engan háttaf öörum hafa, þegar
það semdi um sin mál né teldi
bandalagið sig gera það. Laun-
þegar ættu ekki að láta etja sér
samaniöllu heldur bæri þeim að
snúa bökum saman i kjarabar-
áttunni og fagna hver annars
ávinningi.
íf
Innilegar þakkir til þeirra sem minntust
min 3. april 1979
Bergsveinn Skúlason.
Lausar stöður
Tvær kennarastöður, önnur i stærðfræöi en hin i þýsku
(2/3 stöðu), við Menntaskólann við Hamrahlið eru lausar
til umsóknar. Umsækjendur skulu taka fram i umsókn
hvaða greinar aðrar þeir séu færir um að kenna við skól-
ann.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. mai n.k. — Sérstök um-
sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö
29. mars 1979.
Til sölu
mjög gott nýtt pianó. Greiðsluskilm.álar.
Upplýsingar i sima: 25583.
i