Tíminn - 08.04.1979, Side 23
Sunnudagur 8. apríl 1979
23
—PLÖTUDÓMAFL-
1IF0 - Strangers in tbe Night
Þeir sem eru hrifnir af þungu, hörðu og ófáguöu
rokki af gamla skólanum ættu endiiega að kynna
sér verk bresku hljómsveitarinnar U.F.O.
(Unknown Flying Objects), þvi að þar sitja kraftur-
inn og hávaðinn i fyrirrúmi.
Þessir ..fljúgandi furðuhlutir” eru meðal beirra
hressustu i bransanum i dag og um margt svipar
„tónlist þeirra til þess sem Led Zeppilin og Deep
Purple voru aö gera hérna um árið og reyndar má
greina iéttari áhrif frá hljómsveitum eins og
Foreigner. Þaö er þó langt frá þvl aö UFO nái þeim
„standard” sem þessar hljómsveitir höfðu og hafa
reyndar enn þann dag i dag, ef Deep Purple sáiaða
er undanskiiin, enda varia hægt að ætiast til þess á
þessum siðustu og verstu „diskótlmum”.
Reyndar má gera þvi skóna að UFO væru búnir
að ná iengra I dag en raun ber vitni, ef ekki hefði
komið til innbyrðis úlfúð innan hijómsveitarinnar,
sérstakiega á milli þeirra Phil Mogg, söngvara, og
Michaei Schenker, gitarleikara, en þessar deilur
tóku enda fyrir skömmu með þvl að Schenker var
rekinn úr hljómsveitinni.
A þvi tvöfalda „live albúmi” sem hér er til
umfjöllunar eru mörg af bestu lögum UFO I gegn-
um tlöina og þvi kjörin plata fyrir þá sem vilja
kynna sér hljómsveitina á fremur ódýran hátt.
Þessi plata er þó iangt frá þvi að vera eitthvert
snilldarverk, en þó gleöur góður gitarleikur
Schenkers og hljómborðsleikur Paul Raymonds
eyraö viö og viö. Trommuleikur Andy Parker er
ágætur og bassaleikarinn Pete Way viröist kunna
sitt fag. Um söng Phil Mogg er það að segja að hann
er þokkalegur, en ekkert meira, og reyndar gæti ég
. trúaö þvl aö söngurinn sé það sem ööru fremur
stendur UFO fyrir þrifum. Af lögunum á plötunni er
full ástæða til að hrósa laginu „Lights out”, en önn-
ur eru slakari, án þess þó að vera nokkurn timann
beinlinis léleg. Umslagið utan um plötuna er eftir
hinn virta listamann Hipgnosis og hefur honum oft
tekist betur upp en nú.
—ESE
★ ★ ★
Neil Diamond
20 Golden Greats
EMIV14/FÁLKINN
Neil Diamond hefur kannski veriö aö syngja sitt
slðasla að undanförnu, en lögin á þessari plötu
svíkja engan sem á annað borð hafa einhvern tima
notið þess að hiusta á þennan grisk-amersika raui-
ara. Hér eru saman komin 20 vinsælustu iögin hans
frá þeim tima sem hann var upp á sitt besta. Kjara-
kaupin koma aö vlsu eitthvað niður á fyllstu hljóm-
gæðum enda varla hiaupið að þvl að koma 70 min-
útna prógrammi fyrir á einmi hljómplötu.
En hér er vissuiega boðið upp á kjarakaup á lög-
um eins og Sweet Caroline, Holly Holy, Song Sung
Blue, Solitary Man, Kentucky Woman. I Am I Said,
And The Singer Sings His Song og þrettan önnur.
Sjálfur verð ég að viðurkenna að ég hef alltaf ver-
ið nokkuð veikur fyrir rauiinu i Neil Diamond enda
ekki einleikið hvað maðurinn ristir djúpt með sinni
hástempruöu rödd og grlsk-ameriskri tónlist. Tón-
iist hans um Jónatan Livingstone máf sýnir lfka
hæfileika hans á fagurfræðilega sviðinu svo ekki
verður um villst — en það er önnur saga.
Þetta erplata fyriralla á aidrinum 25til 55.frábær
tónlist á siðkvöldum og væntanlega kærkomin út-
gáfa öllum aðdáendum Neil Diamond.
—KEJ
VDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO
Dieselbíla eigendur
Hversvegna
Ökumælir
Svar:
Ef þú hefur ekki VDO ökumæli borgar þú
fast árgjald kr. 276.800.00,- en ef þú hefur
VDO ökumælir greiðir þú 11.10 pr. km.
sem þýðir að þú þarft að aka 24.936 km. til
að ná fastagjaldinu.
Dæmi: Maður sem ekur 10.000 km á ári.
Fastagjald kr. 276.800
Kilóm. gjaldkr. 111.000
sparnaður kr. 166.800
Eftir þú hefur hugleitt þetta mál og
ákveðið að fá þér VDO ökumæli þá vin-
samlegast hafðu samband við næsta VDO-
umboðsmann okkar sem eru:
Verstæði Kópaskeri
Bifreiöaverkst. Björns & l»áls. Hofsósi
Kaupf. Berufjaröar, Djúpavogi
Kaupf. livammsfj. Búöardai
Verkstæöiö Laugarbakka. Miöfiröi
Bflaverkstæöi Dalvikur
Bílaverkst. Kirkjubæjarklaustri
Bílav. G.A. Stykkishólmi
Bifr.v. Berg h.f. ólafsvfk
Bifr.v. Kristjáns & Bjarna. Vestm.
Vélasmiöja llornafjaröar
Kaupf. Skagfiröinga. Sauöárkróki
Bíiav. Jóns Þorgrfmss. Ilúsavik
Bílaverkst. Aki, Sauöárkróki
Bílav. Lykill, Keyöarfiröi
I*áII Jónsson. \ ik. Myrdal
B.T.B. Borgarnesi
B.V.I. Isafiröi
Vélsm. Ilúnvetninga. Blönduósi
Vélsm. Jóhanns og Lnnars, llólmavlk
Kaupf. Arnesinga, Selfossi
Þórshamar h.f., Akureyri
Vélaverkst. Sig. Sig. Fatreksfiröi
Bifr.verkst. Sleitustööum. Skagafiröi
Bifreiöaverkst. J.l*. Akranesi
Vélsm. Bolungarvikur
Kaupf. I»ór, Hellu
Kaupfélag Vopnafjaröar
Bifreiöav. Benna & Svenna Kskifiröi
Verð á V.D.O. ökumæli kr. 69.400.-
V.D.O. -verkstæðið Suðurlandsbraut 16,
Reykjavik Simi 91-35200.
/
'unnat <S$>s;eÍM(M h.i
VDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO
Doobie Brofhers - Minute by Mrnute
Warner Brothers K56486/KARNABÆR
Bandariska „vesturstrandar” hljómsveitin
Doobie Brothers sem fræg varð á einni nóttu fyrir
tæpum 6 árum siðan, er platan „The Captain and
Me” kom út, er hér á ferðinni með sina 8. stóru piötu
frá upphafi og nefnist hún „Minute by Minuté”.
Mikið vatn hefur runniö til sjávar á þessum tima
siðan lagið „Long train running” ætlaði allt vitlaust
að gera og á þessum tima sem iiðinn er hefur hljóm-
sveitinni tekist á mjög sannfærandi hátt að aðiaga-
sig breyttum aðstæðum.
Hljómsveitin Doobie Brothers er annars komin
nokkuð til ára sinna, en hún var sttffnuð rétt upp úr
1970 af þeim John Hartman og Tom Johnston. Meö
réttri endurnýjun á réttum tima hefur hljómsveit-
inni tekist að haida stöðu sinni, eins og áður er vikiö
að.
Til marks um vinsældir Doobie Brothers I gegn-
um árum má nefna að 5 af 8 plötum hljómsveit-
arinnar hafa selst I meira en milljón eintökum
stykkið — geri aðrir betur.
Arin 1974—1975 varð mikil breyting á skipan
hljómsveitarinnar er þeir Jeff „Skunk” Baxter og
Mike McDonaid, báðir úr Steely Dan, tóku sæti i
hljómsveitinni, en þá dró Tom Johnston sig i hlé að
hluta til vegna veikinda og tók McDonald sæti hans.
(Þess má geta að Johnston kemur aðeins fram i
einu lagi á þessari nýju plötu). Þeir Baxter og
McDonald hafa báðir haft mikil áhrif á stil
hijómsveitarinnar, en auk þeirra og John Hartman
sem áður er nefndur skipa nú eftirtaldir hljóðfæra-
leikarar hljómsveitina: Pat Simmons (gltar og
söngur), Tiran Porter (bassi) og Keith Knudsen
(trommur, söngur).
A „Minute by Minute” halda Doobie Brothers
sinu striki, og segja má að platan hafi þróast á rök-
réttan hátt miðað viö fyrri verk hljómsveitarinnar.
Plötunni hefur verið mjög vel tekið i Bandarlkjun-
★ ★ ★ ★-*-
um, þar sem hún er nú i þessari viku söiuhæsta
platan og lagiö „What a fool believes” hefur gert
þaö mjög gottsvo að ekkisé meira sagt.
Þaö sem einkennir „Minute by Minute” ööru
fremur er þaö hve heilsteypt hún er, og ekki þarf að
spyrja að vönduninni hjá Doobie Bros. — Hnökra-
laus framieiðsla út I gegn og mjög þægileg áheyrn-
ar, þó að Doobie Brothers liggi e.t.v. ekki mikið á
hjarta að þessu sinni. —ESE
Rofabúnaður
Telemecanique
Frá hinu þekkta franska fyrirtæki
Telemecanique getum viö nú boöiö
af lager mjög fjölhæfa rofasam-
stæðu til samröðunar með hagan-
lega gerðum rofastýringum, sem
smella saman án skrúfufestinga.
Fyrir allan algengan iónað, stóran
og smáan, ekki síst skipaiðnað.
Leitið nánari upplýsinga.
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SfMh 85656
VDOVDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO VDO