Tíminn - 15.06.1979, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. júnl 1979
3
Heimili Einars
Jönssonar
# almenningi til sýnis
AM— I gær boðaði stjórn Listasafns Einars Jónssonar
til blaðamannafundar í Hnitbjörgum við Njarðargötu til
þess að sýna þar efstu hæð hússins sem var heimili
þeirra Einars Jónssonar og önnu konu hans en fbúðin
mun framvegis verða til sýnis fyrir almenning en það
hefur ekki verið fyrr.
Þaö var áriö 1916, sem hafin
var bygging safnhússins og fluttu
þau hjónin i íbúöina á efstu hæö-
inni áriö 1920. Listasafniö var
siöan formlega opnaö á Jóns-
messudag 1923. tbúöin er nú búin
húsgögnum og ýmsum listmun-
um þeirra hjóna og má m.a.
nefna listaverk eftir Asgrim
Jónsson, Jóhannes S. Kjarval og
stórt oliumálverk af frú önnu eft-
ir Johannes Nielsen.
Ástæöa er til aö vekja athygli á
aö á neöstu hæö safnsins hefur
nýlega veriö komiö fyrir mál-
verki af Einari Jónssyni eftir
Johannes Nielsen og i sýningar-
boröum teiknibókum Einars og
nokkrum útskuröarverkum, sem
hann geröi á unga aldri. Enn-
fremur hefur nýlega veriö sett
upp I safninu marmaramynd,
sem Einar geröi áriö 1894 er hann
var nemandi Stephans Sinding I
Kaupmannahöfn. Myndin heitir
„Drengur á bæn” og er jafnframt
eina marmaramyndin I safninu.
t stjórn Listasafns Einars Jóns-
sonar eiga sæti: Séra Jón Auöuns
formaöur, Höröur Bjarnason rit-
ari dr. Kristján Eldjárn, Ármann
Snævarr og Runólfur Þórarins-
son. Forstööumaöur safnsins er
Ölafur Kvaran.
Listasafn Einars Jónssonar er
opiö yfir sumarmánuöina alla
daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16.00 og yfir vetrar-
mánuöina sunnudaga og miö-
vikudaga á sama tlma.
Ólafur Kvaran forstööumaöur safnsins og stjórnarmenn, dr. Kristján
Eldjárn, forseti tslands og Höröur Bjarnason, húsameistari segja frá
opnun safnsins á heimili Einars Jónssonar.
tir stofu I fbúö listamannsins
Kaupmannasamtökin um farmannaverkfallið:
„Heimatilbúið
vandamál”
Skora á sáttanefnd og ríkisstjórn að hlutast
til um skjóta lausn málsins
Kás —„Ljóst er aö þegar er
viöa oröinn skortur á brýnustu
nauösynjum og komi til frekari
átaka á vinnumarkaönum,
skapast neyöarástand sem ekki
er séö fyrir endann á”, segir i
ályktun fulltrúaráös Kaup-
mannasamtaka islands, sem
samþykkt var á fundi þess i
gær.
Telja Kaupmannasamtökin
undirrót þessa alvarlega
ástands, yfirstandandi vinnu-
deil.u viö yfirmenn á farskipun-
um. „A sama tima sem þessi
heimatilbúnu vandamál lama
þjóöllfiö veröur þjóöin aö axla
lifskjararýrnun vegna erlendra
aöstæöna”, segir i ályktun full-
trúaráösins.
Þvi skorar fulltrúaráö Kaup-
mannasamtaka Islands á Sátta-
nefnd og rikisstjórn, aö beita
áhrifum sínum til skjótrar
lausnar yfirstandandi kjara-
deilu, þannig aö hún valdi ekki
frekari röskun á þjóöarhag, en
þegar er oröin.
sæti
Auður í fyrsta
í Finnlandi
FI — Auöur Bjarnadóttir list-
dansari varö númer eitt i mikilli
danskeppni á árlegri listahátiö I
Kuopio i Finnlandi, en dansaö
var til úrslita i gær. Verölaunin
eru fimm þúsund finnsk mörk
auk möguleika á aö dvelja i þrjá
mánuöi viö Konunglega danska
ballettinn. Finnskur dansari
varö I ööru sæti og sænskur i
þriöja. Þátttakendur voru 20.
Fyrsta daginn var keppt i
klassiskum ballett, slöan I nú-
tlmaballett og I gær voru dans-
aöir til úrslita dansar aö eigin
vali. Auöur starfar nú I Miin-
chen og mun fara strax þangaö
frá Finnlandi, þvi aö sýningar i
Miinchen biöa eftir henni. Mót-
dansari Auöar i keppninni i
Kuopio er frá Munchen-óper-
unni.
Verkalýðsfélag Borgarness um samúðarverkbann VÍ:
Láglaunaf ólki illa
launuð þolinmæðin
Verkalýðsfélag Borg-
arness sendi f rá sér í gær
svofellda mótmælaálykt-
un:
„Fundur haldinn I Verkalýös-
félagi Borgarness, 13. júnl 1979
mótmælir harölega þeirri
ákvöröun Vinnuveitendasam-
bands tslands, aö boöa
samúöarverkbann á verkalýös-
félög, sem ekki eiga I neinni
vinnudeilu viö Vinnuveitenda-
sambandiö. Fundurinn vekur
athygli á, aö láglaunafólk hefur
aö undanförnu sýnt mikla þolin-
mæöi á meöan stórir launþega-
hópar hafa fengiö 3% grunn-
kaupshækkun og vísitöluþakinu
hefur veriö lyft. Svar Vinnu-
veitendasambands tslands er aö
boöa samúöarverkbann á félag
láglaunafólks og hyggst þannig
reka verkafólk' heim af vinnu-
stööunum og svipta þaö launum
um óákveöinn tima.
Fundurinn fagnar þvi aö
Vinnumáiasamband samvinnu-
félaganna skuii ekki standa aö
verkbannsboöun meö Vinnu-
veitendasambandi tslands. Sýn-
ir þaö meöal annars mikilvægi
þess aö atvinnurekstur sé rek-
inn á félagslegum grundvelli.
Kalt fyrir tjaldbúa
HEI — Feröamannastraumur-
inn er aö byrja hér i Mývatns-
sveitinni núna, sagöi Jón Illuga-
son I Reynihliö i samtali við
Timann i gær. Aöallega er um
útlendinga að ræöa sem flestir
koma á biialeigubilum.
Frekar sagði hann að kalt
væri fyrir tjaldbúa, enn sem
komið er t.d. var hitinn um
frostmark i fyrrinótt og svalt i
gær, en hins vegar bjart og
fallegt veður. Gróðri hefur mjög
fleygt fram i hlýindakaflanum
upp úr mánaðamótunum, en nú
hefurkólnaö nokkuö aftur, sagöi
Jón.
Auöur Bjarnadóttir listdansari ásamt finnska listdansaranum Matti
Tikkanen er þau dönsuöu saman I Hnotubrjótnum i Reykjavik.
Humarveiðar á ný
í Breiðamerkurdýpi
— og kolmunaveiðar norðvestur af Surtsey
Kás — t iok mai voru ailar hum-
arveiöar bannaöar á svæöi i
Breiöamerkurdjúpi, þar sem þá
var vart viö verulegt magn smá-
ýsu I afla humarbátanna.
Samkvæmt nýlegum athugun-
um hefur komiö i ljós, aö smáýsa
viröist vera horfin af svæöinu, og
hefur sjávarútvegsráöuneytiö nú
þvi f ellt niöur áöurgreint veiöi-
bann.
Þá hafa athuganir eftirlits-
manna sjávarútvegsráöuneytis-
ins leitt I ljós, aö litiö er af auka-
afla á spærlings- og kolmunna-
miöum norövestur af Surtsey og i
Háfadjúpi. Sjávarútvegsráöu-
neytið hefur þvi heimilaö á ný
veiðar á spærlingi og kolmunna
vestan 19 gráöu v.lgd. á dýpra
vatni en 60 föömum.