Tíminn - 15.06.1979, Page 6
6
Föstudagur 15. júnl 1979
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Sfmi
8C300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kl.
3.000.00 —á mánuöi. Blaöaprent
Erlent yfirlit
Aflétting viðskipta-
bannsins yki vandann
Enn er
ráðrúm
Allir ábyrgir aðilar hljóta að fagna þeirri
ákvörðun Vinnuveitendasambandsins að fresta
boðuðu verkbanni sem lagt hefði efnahagslif
þjóðarinnar iherfjötur ef af hefði orðið. Að sönnu
höfðu menn vænst þess að vinnuveitendur hefðu
þann skilning á tilmælum rikisstjórnarinnar að
verkbanninu hefði mátt aflýsa með öllu. En hvað
um það, frestun verkbannsins gefur mikilsvert
svigrúm til úrslitatilrauna i vinnudeilunum.
Afstaða Vinnumálasambands samvinnufélag-
anna i kjaradeilunum nú hefur vakið verðskuld-
aða athygli. Það hefur komið fram að það sé
óhugsandi af hálfu samvinnuhreyfingarinnar að
beita verksviptingu sem sóknarvopni. Þessi af-
staða er mjög eftirtektarverð og lærdómsrik og
segir meira en langir fyrirlestrar um eðli sam-
vinnustarfsins. Hún sýnir hvernig samvinnu-
reksturinn eyðir andstæðum fjármagns og vinnu-
afls i opnu og frjálsu félagsstarfi almennings.
Sú ákvörðun vinnuveitenda að fresta verkbanni
er i reynd samþykki þeirra við þá afstöðu Vinnu-
málasambandsins að verksviptingu skuli ekki
beitt. Slikt er ábyrg afstaða og hlýtur að teljast
verulegur skerfur til lausnar vandanum.
Ályktun miðstjórnarfundar Alþýðusambands-
ins á dögunum hnigur til sömu áttar. Menn sjá
það i hendi sér að aðstæðurnar leyfa ekki nýja
hækkanaskriðu. Menn vita það gjörla að þjóðar-
tekjumar hafa minnkað að undanförnu, og að at-
vinnureksturinn berst i bökkum. Menn skilja það
lika að viðleitni rikisstjórnarinnar til að hrinda
nýsköpun efnahagsmála i framkvæmd er i húfi.
Tilverknaður stjórnarandstæðinga er og i sam-
ræmi við þetta. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
drekkur sitt kaffi i Alþingishúsinu prúður á svip
með alvarlegum augum og segist „fylgjast með
framvindu mála”, meðan flokkssendlarnir ham-
ast við að auka ýfingar og átök i þjóðfélaginu.
Það ráðrúm sem nú hefur gefist til ábyrgra
kjarasamninga, með afstöðu samvinnufélag-
anna, frestun vinnuveitenda, ályktun Alþýðu-
sambandsins og sáttaviðleitni rikisstjórnarinnar,
verður að nota til þess að leiða málin til farsælla
lykta. Þjóðarbúið hefur þegar orðið fyrir alvar-
legu áfalli vegna vinnustöðvana og oliuverðs-
hækkana. Nú verður að nota ráðrúmið til fulln-
ustu. Ella standa stjórnarvöldin brátt frammi
fyrir þvi að þjóðarnauðsyn krefjist harkalegra
aðgerða.
Það hefur verið afstaða Framsóknarflokksins
að fyrst verði að reyna samningaleiðina, áður en
til þess geti komið að rikisvaldið gripi inn i. 1
fyrra var hrópað: Samningana i gildi! — Nú eru
þessi stóru orð hermd upp á þá menn sem hróp-
uðu hæst i fyrra. Nú tjóir þein ekki að sinni að lita
til rikisins og kvaka: Elsku mamma! — Og kenna
rikisstjórninni svo um ef illa fer.
í raun og veru er þetta ráðrúm úrslitatilraunin
með það kjarasamningakerfi sem við lýði er i
landinu. JS
Verður Zimbabwe-Ródesía nýtt Víetnam?
Carter
SAMBÚÐ Carters forseta og
öldungadeildarinnar hefur ekki
batnaö viö þaö, aö deildin reynir
nú aö beita valdi til aö knýja
forsetann til aö falla frá þeirri
stefnu, sem hann hefur markaö
t Zimbabwe-Ródesiumálinu.
Deila þessi hófst á þann hátt,
aö deildin samþykkti fyrir
nokkru meö 75 atkvæöum gegn
19 aö skora á Carter forseta aö
aflétta viöskiptabanninu, sem
Bandarikin settu á Ródesiu fyr-
ir 14 árum i samræmi viö fyrir-
mæli öryggisráös Sameinuöu
þjóöanna, þar sem deildin teldi
sig hafa komizt aö raun um, aö
þingkosningarnar, sem fóru
fram I Zimbabwe-Ródesiu I
aprillok, hafi veriö frjálsar og
fariö heiöarlega fram.
Carter tók sér nokkurn um-
hugsunarfrest, en birti siöan
svar sitt siöastliöinn fimmtu-
dag, þar sem hann lýsti þeirri
skoöunsinni,aö hann teldi kosn-
ingarnar hvorki hafa veriö
frjálsar né fariö heiöarlega
fram, og bæöi vegna þess og
fleiriástæöna, sem hann greinir
nánar i svari sinu, myndi hann
ekki aflétta viöskiptabanninuaö
sinni. Hins vegar heföi ýmislegt
stefnt I rétta átt i Zimba-
bwe-RódesIu og myndi hann
fylgjast meö þróun mála þar og
taka þessa ákvöröun sina til
endurskoöunar i samræmi viö
þaö, ef rétt þætti.
Andstæöingar Carters I öld-
ungadeildinni brugöust fljótt viö
þessari ákvöröun forsetans.
Siöastl. fimmtudag samþykkti
deildin meö 52 atkvæöum gegn
41, aö banninu skyldi aflétt. BU-
izter viö, aö þetta veröi einnig
samþykkt i fulltrúadeildinni.
Forsetinn stendur þá frammi
fyrir þeirri staöreynd, aö hann
veröur aö beygja sig fyrir þing-
inu eöa neita aö undirrita lög,
sem þingiö hefur afgreitt um
þetta efni. Til þess hefur hann
vald og getur þingiö ekki breytt
þessari synjun hans, nema þaö
endursamþykki lögin meö
tveim þriöju atkvæöa meiri-
hluta.Ef forsetinn syrijarlögun-
um, veröur hann aö treysta á,
aö þau fái ekki tilskilinn meiri-
hluta, ef reynt er aö fá þau
endursamþykkt I þinginu.
FRÉTTASKÝRENDUR segja,
aö Carter hafi Ihugaö þetta mál
vandlega áöur en hann tók á-
kvöröun slna, og lokaákvöröun-
ina hafi hann tekiö einn eftir aö
hafa rætt viö helztu ráögjafa
sina eöa þá Vance, Brzezinski,
Mondale og Young, sem allir
voru á þvi máli, aö ekki ætti aö
aflétta viöskiptabanninu. Cart-
er geröi sér vel ljóst, aö hann
var aö leggja út i styrjöld viö
þingiö, ef hann aflétti ekki
banninu. Eftir aö hafa hugsaö
sig um I einrúmi, ákvaö hann
heldur aö taka áhættuna af þvi
en aö vikja frá stefnu, sem hann
taldi rétta.
Carter létglögga greinargerö,
en stutta, fylgja svari sinu.
Hannsagöist sannfæröur um aö
aflétting bannsins þjónaöi
hvorki hagsmunum Bandarikj-
anna eöa Zimbabwe-Ródesiu.
Hann kvaöst hafa ráögazt Itar-
lega um þessi mál viö brezku
stjórnina, og vera sammála, aö
sjálf kosningaathöfnin á kosn-
ingadaginn heföi fariö vel fram.
Hins vegar heföu kosningarnar
fariö fram samkvæmt stjórnar-
skrá, sem aöeins heföi veriö
samþykkt af þingi, þar sem 4%
ibúanna réöuöllu, og I þjóöarat-
kvæöagreiöslu um hana hefðu
aöeins 4% kjósenda haft at-
kvæöisrétt. Stjórnarskráin
geröi ráö fyrir mikilvægum sér-
réttindum þessa litla minni-
hluta. Þá heföi andstæöingum
þáverandi stjórnar veriö mein-
aö aö taka þátt i kosningunum
og halda uppi áróöri málstaö
sinum til styrktar. Þegar allt
þetta sé tekiö meö i reikninginn,
geti kosningarnar hvorki talizt
frjálsar eöa heiöarlegar og full-
nægi á engan hátt þeim kröfum,
sem bandarlsk lög krefjist I
þessum efnum.
Carter lýkur greinargerö
sinni meö þvi aö segja, aö hann
geri sér grein fyrir þvi, aö
meirihluti öldungadeildarinnar
sé ekki á sama máli og hann.
Hann segist álita ákvöröun sina
siöferöilega rétta og þaö skipti
höfuðmáli. En jafnframt beri aö
taka meö i reikninginn, aö af-
létting viöskiptabannsins nú
myndi hafa slæm áhrif á sam-
skipti Bandarlkjanna viö marg-
ar aörar þjóöir og ekki veröa
Ibúum Zimbabwe-Ródesiu til
hags.
EINS OG áöur segir, brugöust
andstæöingar Carters I öld-
ungadeildinni þannig viö þessu,
aö þeir fengu samþykkt aö viö-
skiptabanninu yröi þegar aflétt.
Það er vafalitiö, aö Carter
hefur hér rétt fyrir sér'. Undan-
tekningalitiö eða undantekning-
arlaust ailar þjóöir I Afriku
sunnan Sahara neita aö viöur-
kenna nýju stjórnina i Zimba-
bwe-Ródesiu, þar sem kjör
hennar byggist á stjórnarskrá,
sem felur I sér stórkostlegt kyn-
þáttalegt ranglæti. Ef Banda-
rikin og Bretland viöurkenndu
stjórn, sem byggir á slikum
grundvelli, myndi þaö vekja
stóraukna andstöðu um ger-
valla Afriku og geta oröiö til
þess, aö mörg riki þar veittu
skæruliðahópum Nkomos og
Mugabes stóraukinn styrk,
sendi þeim jafnvel sjálfboöa-
liöa. Ennfrekariástæöa er til aö
reikna meö þessu, þar sem
stjórn Muzorewa biskups virðist
lúta yfirstjórn Smiths, a.m.k.
enn sem komið er. Þetta gæti
hæglega leitt til þess, að borg-
arastyr jöldin i Zimba-
bwe-Ródesiu magnaðist og gæti
oröiö aö nýrri Vietnam-styrjöld
áöur en menn vissu af. Vegna
þessa hefur stjórn Thatchers
tekiö mun varlegar á þessum
málum en búizt hafði veriö viö
eftir yfirlýsingarnar fyrir kosn-
ingar. Brezka stjórnin virðist
vilja stefna aö þvi, aö stjórnar-
skrá Zimbabwe-Ródeslu veröi
breytt ogreynt veröi aö ná sam-
komulagi milli helztu blökku-
mannaforingjanna áöur en viö-
skiptabanninu sé aflétt. Frá þvi
sjónarmiöi aö formlega er Zim-
babwe-Ródesia enn brezk ný-
lenda, er það rétt afstaöa hjá
Carter aö láta Breta hafa hér
frumkvæöi, enBandarikin haldi
að sér höndum á meðan.
Ef Carter veröur undir I þess-
ari deilu, getur skapazt gjá milli
Bandarikjanna og Afriku, sem
seint veröur brúuð. óneitanlega
bendir þetta til, aö margir
bandariskir þingmenn einangri
sig innan borgarmarka
Washington og fylgist alls ekki
meö þvi sem er aö gerast I
þriöja heiminum.
Þ.Þ.
Musorewa