Tíminn - 15.06.1979, Síða 7
Föstudagur 15. júnl 1979
7
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins:
Eflum Tímann
Góðir íslendingar
í meira en 62 ár hefur dag-
blaðið Tíminn verið mjög
mikilvægur þáttur í íslensku
þjóðlífi/ ég vil leyfa mér að
segja ómissandi þáttur.
Tíminn hefur kappkostað að
flytja mönnum fréttir, skoð-
anir og skýringar á atburðum
og viðhorfum í íslensku
þjóðlífi. Tíminn hefur ætið
verið í fremstu röð fjölmiðla.
Blaðið hefur verið og er vett-
vangur þeirra afla í þjóðfélag-
inu sem berjast fyrir samstöðu
og samvinnu þjóðfélagsþegn-
anna um framfaramálin en
gegn öfgum og sundrung.
Á þessum 62 árum hefur
Tíminn oft átt í erfiðleikum.
Blaðið hefur aldrei verið rekið
með hagnaðarsjónarmiði í
huga. Slíkum erfiðleikum hef-
ur hins vegar ávallt verið
bjargað fyrir velvilja fjöl-
margra velunnara blaðsins,
manna sem gera sér grein
fyrir mikilvægi þess í frjálsri
skoðanamyndun.
I verðbólgudansi undanfar-
inna ára hefur fjárhagsstaða
Tímans versnað mjög. Þó
keyrði um þverbak á síðast-
liðnu ári. Þá varð rekstrarhalli
u.þ.b. 65.000.000.- Þetta hefur
valdið mikilli skuldasöfnun
sem er að verða blaðinu óbæri-
leg vegna vaxtakostnaðar.
BÍaðstjórn Tímans hefur
skoðað þessi mál öll og rekstur
blaðsins almennt mjög vand-
lega. Blaðstjórnin hefur
ákveðið að gera stórt átak til
þess bæði að bæta efnismeð-
ferð blaðsins á allan máta og
losa það við skuldabaggann.
Ljóst er að afkoma blaðsins
hlýtur að byggjast á sölu þess.
Til þess þarf þaðávalltað vera
í fremstu röð fjölmiðla. Því
eru í undirbúningi víðtækar og
róttækar breytingar á efnis-
meðferð. Þær munu koma til
framkvæmda á þessu sumri.
Slíkar breytingar kosta mikið
fé og verða ekki framkvæmd-
ar nema um rýmkist að því
leiti. Blaðstjórnin hefur því
ákveðið að hefja nú þegar víð-
tæka söfnun til þess að losa
blaðið úr f járhagserf iðleikum.
Tíminn hefur ekki til annarra
að leita í þessu sambandi en
Islendinga almennt. Á þeim
grundvelli hefur því þessi
söfnun verið vandlega undir-
búin. Við f jölmarga hefur ver-
ið rætt og móttökur alls staðar
verið góðar. Frá skipulagi
þessarar söfnunar er nánar
greint í blaðinu.
Ég veit að tslendingum er
Ijóst að mikið skarð yrði fyrir
skildi ef útgáfu Tímans yrði
hætt. Þá má segja að fjár-
mála- og öfgaöfl yrðu alls ráð-
andi í dagblaðaútgáfu hér á
landi. Til þess má að sjálf-
sögðu ekki koma. Ég vil því
leyfa mér að treysta því að
landsmenn bregðist vel við
þessari málaleitan um stuðn-
ing við Tímann og tryggi þann-
ig áf ramhaldandi útgáfu
blaðsins.
Ávarp í tilefni söfnunarinnar, „Eflum Tímann”
k ii 11 ..— i !■—.i i *
Skipulag fjársöfnunar til
eflingar Tímanum
sumarið 1979
• Meðan söfnunin stendur
yfir verður nokkrum sinn-
um dregnir út vinningar til
áskrifenda Tímans. Dregið
verður úr öllum áskrifend-
um Tímans.
• Sú svæðanefnd, sem
fyrst nær settu marki í
söfnuninni mun hljóta sér-
stök verðlaun frá Tíman-
um, sem viðurkenningu
fyrir góð störf í þágu
blaðsins.
• Ákveðið hefur verið að
leita til velunnara Tímans
um f járstuðning. Mark-
miðið er að efla og bæta
Tímann og auka fjöl-
breytni blaðsins. Svigrúm
til þess ,er lítið vegna
skulda sem stafa af halla-
rekstri undanfarinna ára.
Því er nauðsynlegt að það
takist að safna verulegu fé
fyrir Tímann og leggja
þannig grunn að bættu
blaði.
• Herferð er hafin til f jár-
öflunar. Blaðstjórn Tím-
ans hefur skipað sérstaka
f járöflunarnefnd I nefnd-
inni eru:
Jóhann H. Jónsson
Pétur Einarsson
Geir Magnússon
Alexander Stefánsson
Guðmundur G. Þórarins-
son
• Ákveðið hefur verið að
hrinda af stað landssöf nun
sem standi frá 15. júní til 1.
september 1979. Mark-
miðið er að safna 100
milljónum króna
• Söf nunin er byggð upp af
fjórum aðalþáttum:
1) Fjársöfnun meðal ein-
staklinga sem vilja
Tímanum vel.
2) Fjársöfnun meðal fyrir-
tækja sem vilja efla
Tímann.
3) Áskrifendur eru beðnir
að greiða styrktar-
áskrift í eitt ár t.d. 1 1/2
eða 2 áskriftargjöld.
4) Almenn áskrifenda-
söfnun.
• Skipulag söfnunarinnar
er með þeim hætti að
skipaðar hafa verið svæða-
nefndir í hverjum einasta
þéttbýlisstað landsins.
Svæðanefndir eru alls um
80 talsins og í þeim eru 3 til
5 menn. Alls starfa því að
söfnuninni á milli þrjú og
f jögur hundruð manns.
• Svæðanefnd ber ábyrgð
á söfnuninni á sínu svæði.
Hverri svæðanefnd er sett
ákveðið mark að keppa að,
þ.e. ákveðið mark í fjár-
söfnun, ákveðið mark í
áskr if endasöf nun og
ákveðið mark í söfnun
styrktaráskrifta.
• Sérstakur framkvæmda-
stjóri söf nunarinnar
verður ráðinn og verður
hann í stöðugu sambandi
við svæðanefndir.
• Heiður Helgadóttir,
blaðamaður mun sjá um að
reglulega verði birtar
fréttir í blaðinu af gangi
söfnunarinnar.
• Sérstök efnisnefnd
starfar nú áð tillögum um
breytingar á blaðinu. í
henni eru:
Magnús Bjarnfreðsson
Gerður Steinþórsdóttir
Haukur Ingibergsson
Heiður Helgadóttir
• Sjálfboðaliðar óskast.
Leggjum öll hönd á plóginn
og eflum Tímann:
• Haíið samband við
framkvæmdastjóra Tím-
ans ef þið hafið tillögur,
hugmyndir eða framlög í
síma 86300.
Gerist áskrifendur að Timanum
Fyllið út þennan seðil og sendið til Tímans
í pósthólf 370, Reykjavík
§«---------------------------------------------------
*
Eg undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi
að Tímanum
Nafn_________________________________________________
Heimilisf.------------------------—------------------
Sfmi ___________________