Tíminn - 15.06.1979, Síða 11
10
Föstudagur 15. júni 1979
Föstudagur 15. júni 1979
11
Ein af myndunum frá sýningunni — og skyldleikinn milli myndar og
skriftar er auösær.
Sendibréf frá
söguslóðum
Nú stendur yfir i
Norræna húsinu sýning
á teikningum eftir
danska listmálarann
Johannes Larsen en
hann lagði hingað leið
sina til að lýsa bækur
og mun um helmingur
þeirra mynda er þarna
eru sýndar hafa verið
prentaðar i dönskum
bókum.
Johannes Larsen
1876-1961
Tilurö þessara myndverka og
námsferli Johannesar Larsen
lýsir Kjeld Heltoft á þessa leiö:
„Johannes Larsen hóf nám i
listmálaraskóla Zahrtmanns 17
ára gamall og þar hitti hann
Peter Hansai Fritz Syberg og
Poul S. Cristiansen. Siðar voru
þeir félagar kallaöir „Fjón-
verjarnir” (Fynboerne) og þeir
sem gáfu tóninn i kennslu viö
Listaháskólann i Kaupmanna-
höfn og á Charlottenborgar-
sýningunum litu félagana fyrir-
litningaraugum. Stefán sem var
ráöandi i' málaralistinni var
eins konarfegruö náttúrulýsing
máluö meö akademiskum
glæsibrag og hin áleitna raun-
sæisstefna hjá Zhartmannnem-
unum sem færöi þeim uppnefniö
„bændamálararnir” var talin
árás á alla borgaralega menn-
ingu. Þetta andóf varö meöal
annars til þess aö „Den Frie
Udstilling” kom til sögunnar.
En 1910 þegar Mads Rasmus-
sen verksmiöjueigandi setti á
stofn Faaborgsafniö snerust
skyndilega aöstæöur þeirra
Fjónverja alveg viö. Viöurkenn-
ingaroröin tóku aö streyma inn
og sjálfsagthaföi þaö lika sitt aö
segja, aö ritsnillingurinn
Johannes V. Jensen haföi svipaö
viöhorf til náttúrunnar og þeir.
Þegar Félagiö um útgáfu fs-
lendingasagna (Selskabet til
Udgivelsen af islandske
Sagaer) ákvaö aö senda á
markaöinn nýja iltgáfu 1 tilefni
af Alþingishátiöinni 1930 var Jo-
hannes V. Jensen ein af drif-
fjöörunum og svo lögöu þeir
honum liö Thoger Larsen Vil-
helm Andersen, Knud Hjorto,
Hans Kyrre Ludvig Holstein,
Johs. Brondum-Nielsen, Tóm
Johannes Larsen listmálari
(1876-1961)
Kristensen og Gunnar Gunnars-
son meö þeim árangri aö til
varö þýöing svo frábær og lif-
andi aö eftir nær fimmtiu ár er
hún I fullu gildi. Aö visueru hin-
ar visindalegu útlistanir í inn-
gangsoröunum orönar úreltar
en mál stiljöfranna er sigilt og
svo er um teikningarnar.
„Söguferð”
Johannes Larsen var 60 ára
þegar hann lagöi upp I fyrri
„söguferö” sina 1927. Hann átti
þá aö baki merkan feril sem
málari bæöi á sviöi oliu- og
vatnslita sem ogmúrskreytinga
og eins bókaskreytinga. Enn-
fremur var hann þekktur svart-
listarmaöur en á þvi sviöi haföi
hann þegar áriö 1914 skipaö sér
fastan sess meö tréristunum viö
„Trækfuglene” eftir S.t. St.
Blicher en þaö verk var afbragö
á sviöi bókageröarlistar — og
meö 600 tússteikningum i verk-
inu „De danskes Oer” eftir Ach-
ton Friis kenndi hann löndum
sinum aö li'ta náttúruna nýjum
augum. Hann þekkti einnig vel
til á noröurslóöum, þvi aö hann
haföi feröast um Grænland
sumariö 1925 sem teiknari meö
fuglafræöileiöangri sem Lehn
Schioler stjórnaöi. En ls-
lendingasögurnar? Hvernig
skyldi nú þessum manni sem
var svo dæmigeröur sjáandi
farast úr hendi aö myndskreyta
blóöi drifiö sögusviöiö þennan
heim sem lá á mörkum raun-
veruleikans, skáldskaparins og
ævintýrisins?
Hann tók verkiö öörum tök-
um. A titilblaðinu átti sem sé
ekki aö standa „myndskreytt
af” heldur skyldi standa „meö
teikningum frá íslandi”. Hann
vildi alls ekki reyna aö lýsa of-
beldi og ógnum sagnanna né
heldur veröa aö athlægi fyrir aö
teikna klæönaö og búnaö sem
fornleifafræöingar kynnu aö tiu
árum liönum aö telja aö ekki
væri sannleikanum samkvæmt.
Ætlunin haföi frá upphafi veriö
aö teikna myndir nákvæmar
náttúrulýsingar, sem viö ættu
og gætu laðaö fram 1 huga les-
andans þaö baksviö —■ lika
mætti kalla þaö leiktjöld — þar
sem atburöir sögunnar gerast”.
Sendibréf frá söguslóð-
um
Þaö er athyglisvert aö
Johannes Larsen velur sér ekki
myndefni úr sögunum, þar sem
menn ber jast og höggva hverir
aðra. Hin blóörika saga varö-
veitist I bókstöfum hinna fornu
sagna en landinu er lýst um-
hverfinu og I lýsingum Jo-
hannesar Larsen er ákveöin rit-
hönd sem býr yfir mildum
áhrifum og sönnum. Hann ýkir
landiö ekki eöa stflfærir þaö en
sögunnar rökkur birtast okkur
og sú staöreynd aö þaö er sagan
sem breytist — mannhafiö en
landiö er óbreyttaö mestu: eöa
þaö er vér nefnum sögunnar
sviö.
JohannesLarsen feröaöist um
landiö meö Ólafi Túbals og
höföu þeir 26 hesta til reiðar en
notuöu auk þess bila og skip en
þeir röktu sögunnar slóö eftir
bókum og herforingjaráöskort-
um samtimis. Ekkierég i stakk
búinn til aö kveöa upp dóma um
þaöhvortþeir voru ávallt á rétt-
um stööum en dauður ungi forn
lykill og margt annaö opnar
bækur, þótt ekki komi þaö efni
þeirra viö aö ööru leyti.
Johannes Larsen geröi um
þaö bil 500 myndir i þessari
rispu blýantsteikningar sem
hann yfirfærir svo í sendibréfs-
form meö svörtu bleki. Rithönd1
hans er á hverri mynd og er
mjög sterkt samband milli
skriftarinnar og hins ritaöa
yfirborös teikninganna.
A Kjarvalsstööum fengum viö
fýrr á árinu að sjá hvernig
skandinaviska myndhefð I
lýsingu lslendingasagna varötil
og hér er nú kynnt önnur grund-
vallaraöferö, aö skilja sögurnar
og myndirnar aö meö
„teikningum frá Islandi” I staö
„my ndskreytingar”.
Ef ritaö er um myndir
Johannesar Larsen sem venju-
lega myndlistarsýningu án
samhengis við fornar sögur, þá
eru myndir hans gæddar mildum
þokka. Þær ögra ekki en lýsa
höfundi þeirrasem viökvæmum
sannoröum listamanni. Hann
beitir ekki brögöum, og alúöin
umvefur okkur: hin milda gleöi
og hin hljóöa sorg.
Sýningin veröur opin fram
yfir næstu mánaöamót.
Jónas Guömundsson
fólk í listum
---------------------------.
Auglýsið íTímanum
l___________________________i
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Þar ræðst mill] ónaverðmæti af
niðurstöðu einnar efnagreiningar
AM— Eins og lesendur hafa
oröiö varir viö, hefur
Rannsóknaráö rikisins gengist
fyrir kynningu aö undanförnu á
hinum ýmsu rannsóknastofn-
unum atvinnuveganna og á dög-
unum var fulitrdum fjölmiöla
boöiöaö heimsækja Rannsókna-
stofnun fiskiönaöarins aö Skúla-
götu 4
Ra nnsóknastofnun fisk-
iönaöarins á rætur sinar aö
rekja til þess er Fiskifélag
lslands réöi til sin sérfræöing I
fiskiönaöi áriö 1934, dr. Þórö
Þorbjarnarson, sem um árabil
starfaöi aö mikilvægum verk-
eftium á vegum félagsins og
siöar stofnunarinnar sem ekki
veröa rakin hér,en snertu þessi
fyrstu ár.ekkisist margháttaöar
lýsisrannsóknir. Rak Fiski-
félagiö rannsóknastofu sina til
ársins 1965, þegar gerö var sú
skipulagsbreyting aö hún var
geröaö sjálfstæöri rikisstofnun,
Rannsóknastofnun fiskiönaöar-
ins. Dr. Þóröur Þorbjarnarson
veitti þessari stofnun forstööu,
en hann lést áriö 1974 og var þá
dr. Björn Dagbjartsson skip-
aöur forstjóri.
Áhrif á þróun fisk-
iðnaðar
Rannsóknastofa Fiskifélags
Islands og arftaki hennar,
Rannsóknarstofnun fisk-
iönaöarins, hafa haft mjög mikil
áhrif á þróun fiskiönaöarins i
landinu. Auk lýsisrannsókna
Þóröar má nefna aö nýting fisk-
slógs til mjölframleiöslu var
tekin upp fyrir forgöngu
Rannsóknastofnunarinnar og
hiö sama má segja um nýtingu
loönunnar til mjöl og lýsisfram-
leiöslu, en þá fékk Þóröur i liö
meö sér nokkra athafnamenn úr
fiskiiönaöinum. Rannsókna-
stofan átti einnig mikinn þátt i
þvi aö fariö var að nýta soö
slldarverksmiðjanna, áöur en
þaö rann I sjóinn. Þaö var þó
ekki fyrr en sildin fór aö veiðast
viö Austfiröi, aö skriöur komst á
þaö mál.
Um 1950 kom upp mikill vandi
i sambandi viö saltfiskverkun,
svonefnd saltgula, sem olli
miklu tjóni. Þaö vandamál var
leyst I Rannsóknastofunni og
reyndist stafa af örlitlu magni
af kopar i saltinu.
Rannsóknir
Rannsóknastofnun fisk-
iönaöarins er skipt i þrjár deild-
ir, gerladeild, efnafræöideild og
tæknideild, og á hennar vegum
eru rekin fjögur útibú, á Isa-
firöi, Vestmannaey jum,
Neskaupstaö og Akureyri.
Starfsmenn eru um 40 talsins.
Niöurstööur rannsókna og at-
hugana stofnunarinnar geta
haft geysimikil áhrif á þjóöar-
hag, bæöi hvaö varöar fitu-
magnsrannsóknir á loönu og
rannsóknir á útflutningsafurö-
um. A siöasta ári bárust til
dæmis 12500 sýni til fitu-
ákvörðunar á loönu til
stofnunarinnar. Er hvert sýni
vandlega prófaö, þar sem engu
má skeika, en milljónaverö-
mæti er i húfi. Samstarfiö viö
aöila útgeröar og verksmiöja
hefur þó gengiö vel, enda taka
rannso'knamenn ekki sjálfir
sýni, heldur sjómenn og menn i
verksmiöjunum
Kolmunnaverkefni
Þrjú sl, ár hafa veriö geröar
margar tilraunir til aö nýta kol-
Hér er Sólveig Hafsteinsdóttir viö eimingu á di-methylnitrósamini, sem er einn hinna virkustu krabbameinsvalda og myndast I mjöli, sem rotvariö
er meö saltpétri.
Hér er veriö aö koma fyrir æti tii
ræktunar margvfslegra gerla.
Þessar lffverur eru oft mjög
vandfýsnar á ætiö og ekki siöur
hita og rakastig. Stúlkan á mynd-
inni heitir Kristin Traustadóttir.
munnann til manneldis. T.d.
hefur kolmunninn veriö
þurrkaöur og framleidd kol-
munnaskreiö og er jafnvel
hugsanlegt aö hún leysi
þorskreiö af hólmi. Ariö 1977
voru framleidd um 22 tonn af
kolmunnaskreiö á vegum
stofnunarinnar og var hún seld
til Nigeriu og likaöi mjög vel.
A siöasta ári hófst norræn
samvinna um vinnslu kolmunna
og rannsóknir henni tengdar og
mun þaö koma i hlut
Rannsóknastofnunar fisk-
iönaöarins aö athuga hvaöa
áhrif meðferö fisksins I veiöar-
færum og um borö I veiöiskipum
hefur á vinnslugæöi. Einnig
munu veröa geröar tilraunir
meö flutning og geymslu i
iskældum sjó og slægingu og
þurrkun til skreiöarframleiöslu
á hennar vegum.
Ariö 1978 tók stofnunin verk-
smiöjuskip á leigu til fram-
Július Guömundsson efnafræö-
ingur viö athuganir á prótein-
haldi fiskmjöls, en þær veröur aö
framkvæma meö mikilli varúö.
Greiningin tekur vanalega einn
dag og er hún tvitekin þvl engu
má gleyma.
leiöslu á meltum úr loönu og
spærlingi, en slikar meltur hafa
gefist ágætlega erlendis sem
dý'rafóöur. Tilraunir þessar
heppnuöust vel og keyptu Danir
framleiðsluna. Stofnunin hefur
lengi haft áhuga á aö finna
nýjar leiöir til nýtingar á slógi.
Ein leiöin er aö framleiöa úr þvi
meltur, eftir aö lifur og hrogn
hafa veriö hirt. A vegum
stofnunarinnar hefur veriö
framleitt nokkurt magn af slóg-
meltu, sem prófuö var viö
minkaeldi i Danmörku og likaöi
hún ágætlega. Meira aö segja
héldu dönsku bændurnir þvi
fram aö þeir fengju fleiri hvolpa
undan hverri læöu, ef fóöraö
væri meö slógmeltu. Fyrirtækiö
Lumino i Esbjerg hefur haft
áhuga á aö kaupa slika fram-
leiöslu, en öröugt hefur veriö aö
fá Islenska aöila til aö sinna
þessu. Nýttfyrirtæki á Þórshöfn
hefur þó I hyggju aö framleiöa
meltu úr loöna I Gunnarsholti
hafa veriö geröar tilraunir meö
aö fóöra kálfa á slógmeltum og
benda bráöabirgöaniöurstööur
til þess aö þær hafi aukið vöxt
kálfanna, þegar þær voru
gefnar sem viöbót viö hey og
grasköggla.
Mengun fiskafurða
vegna þungmálma
Enn hafa á stofnuninni veriö
geröar rannsóknir á mengun
fisks og fiskafuröa af völdum
ýmissa málma og skordýraeit-
urs. Til þeirra var I upphafi
stofnaö aö beiöni isl. fisksölu-
samtaka og vegna reglna er-
lendra kaupenda, en þær hafa
þróast i yfirgripsmikla úttekt á
leifum þessara efna i fiskafurð-
um. Þungmálmar og skordýra-
eitur berast til sjávar frá
iönaöar og landbúnaöarlöndum
og meö straumum um höfin.
Lifverum sjávarins og þá ekki
sist fiskum, hættir til aö safna
þessum efnum i sig, og af þvi
stafar mengunarhættan fyrir
neytandann.
Þeir málmar, sem
rannsakaöir hafa veriö á
Rannsóknastofnun fiskiönaöar-
ins eru kvikasilfur, blý, kopar
og kadmium, auk sink og járns,
en fyrirhugaöar eru arsenik-
rannsóknir! Rannsóknir hafa
sýnt aö i flestum tegundum
beinfiska var kvikasilfursmagn
undir hættumörkum, eöa minna
en 0.1 mg I kg, en hættumörk I
viöskiptalöndum eru talin 0.5-1
mg Ikg af fiski. Hættumörk blýs
hafa verið talin 2 mg I kilói, en
reyndist i fisktegundum okkar á
bilinu 0.1-0.2 mg I kg. Þessar
niöurstööur eru mjög i sam-
ræmi viö þaö, sem fengist hefur
eriendis viö rannsóknir á fiski,
sem talinn er upp vaxinn á
ómenguöum hafsvæöum. Sömu-
leiöis reyndist ekki mengun aö
neinu ráöi vegna annarra
málma, en mengun I lýsi og
feitu mjöli af skordýraeitri er
nærri hættumörkum og I ráöi aö
fylgjast mjög vel meö þeim
málum.
Gerlarannsóknir á
freðfiski
Tilgangurinn meö þessu verk-
efni er aö kanna hvaöa þættir
hafa mest áhrif á gerlainnihald
flakanna og aö fá heildarmynd
af hráefnisgæöum og hreinlæti
viö freöfiskframleiöshi hér á
landi.
Tekin hafa veriö 419 sýni úr 60
frystihúsum, þar af 313 sýni af
þorskflökum. Gerlagróöur i
sýnunum var rannsakaöur all-
ýtarlega, aukþess sem vmis at-
riöi vorumæld i frystihusunum,
t.d. hitastig i flökum og vinnslu-
sölum og klórstyrkur I vinnslu-
vatni.
óhóflega hátt hitastig i
vinnslusölum viröist hafa áhrif
til hins verra eins og viö mátti
búast, og enn benda niöurstöður
til aö taka þurfi fiskþvott um
borö I veiöiskipum og frystihús-
um til athuganar. 1 nokkrum til-
fellum kom fram mikill og stöö-
ugur munur á gerlainnihaldi
flaka frá einstökum húsum, án
þess ab hægt væri aö finna á þvi
skýringar.
Rannsóknir á spinn-
pækli
Haustiö 1977 varö vart viö
svonefndan spinnpækil i sykur-
saltaöri sild á nokkrum söit-
unarstööum hérlendis. 1 þvi
sambandi leitaöi Sildarútvegs-
nefnd til Rannsóknastofnunar
fiskiönaöarins meö von um aö
lausn gæti fundist á þessu máli.
Einkenni spinnpækils eru þau
aö pækillinn veröur seig-
fljótandi og getur I sumum til-
fellum ummyndast I hlaup. Al-
mennt hefur veriö taliö aö
ákveönir gerlar eöa gerlahópar
væru hér aö verki meö þvi aö
framleiða einn eöa fleiri hvata,
sem leiða til myndunar slim-
kenndra efnasambanda úr
sykrinum.
Rannsóknir á spinnpækli hóf-
ust svo vorið 1978. Helstu niöur-
stööur voru, aö tekist hefur aö
rækta upp slimmyndandi gerla
úr seigum sildarpækli, meö þvi
aö nota saltsykuræti. 1 ljós kom
m.a aö i trétunnum, sem inni-
héldu slimgerla og súkrósa,
myndaöist seigur pækill eftir
3ja vikna geymslu. 1 trétunnum
sem innihéldu slimgerla og
glúkosa i' stab súkrósa mynd-
aöist ekki seigur pækill. Þannig
var hægt aö hindra myndun
spinnpækils viö sildarsöltunina.
Nú standa yfir á gerladeild til-
raunir meö næmni sllmgerla
gegn rotvarnarefnum og lofa
tilraunir þessar mjög góöu, þótt
of snemmtsé aö fullyröa nánar
um gildi þeirra.
Aðrar rannsóknir
Hér hefur i grófum dráttum
veriö lýst sumum rannsóknum
Rannsóknastofnunar fisk-
iönaöarins. Meöal annarra
rannsókna má svo nefna aö á
siöasta áratug hafa veriö geröar
miklar rannsóknir á gæöum
eggjahvituifiski og fiskmjöli og
áhrifum tid. hita á gæöi eggja-
hvitunnar viö framleiðslu á
fiskmjöli. Nú á stöustu árum
hafa rannsóknir mjög beinst aö
breytingum á eggjahvitu þorsks
viö mismunandi næringar-
skilyröi og áhrif þess á gæöi
fisksins til vinnslu. Rannsóknir
sem gerðar hafa veriö siöustu
árin i Rannsóknastofnun fisk-
iönaöarins hafa leitt til vél-
væöingar viö nýtingu grá-
sleppuhrogna og loönuhrogna.
Þá má nefna framleiöslu o.fl., |
en slikar vörur eru mjög verö-
mætar. Er i ráöi aö koma fyrir I
vél til tilraunavinnslu á slíkum I
krafti I kjallara hússins aö j
Skúlagötu 4, en til þessa hafa
aöeins nokkkur kiló af fiskkrafti I
veriö framleídd á tilraunaborö-1
inu, ef svo má segja.
Aö slöustu skal hér svo getiö I
rannsókna á þvl hvernig spara
má vatn i frystihúsum og
hvernig nýta megi betur orku i
loönuverksmiöjum en þaö er
mikilvægt atriöi meö sivaxandi |
eldsneytiskostnaöi.
tJ tgáf ustarf semi
Rannsóknastofnunin gefur útl
ársskýrshi, sem komiö hefur út I
reglulega frá árinu 1965, og er
þar aö finna nánari grein fyrir
öörum verkefnum. Þá gefur
stofnunin út tlmaritið Tæknitiö-1
indi og hefur þaö aö geyma j
ýtarlegar skýrslur um margs
konar verkefni. tJt eru komin
yfir 100 hefti og er báöum fyrr-j
greindum ritum dreift ánj
endurgjalds til fjölda aöila.
Náin og góö samvinna hefurl
ávallt veriö viö allar greinarj
fiskiönaöarins og einkum sölu-
samtökin. Rannsóknastofnunin
hefiir og náib samband viö
margar erlendar ranns(kna-j
stofnanir, sem starfa á svip-j
uöum grundvelli.
Þetta tæki veröur frumgrind væntaniegrar tilraunaverksmiöju til humar og fiskkraftsframleiftslu,
sem ætlunin er aö koma upp aö Skúlagötu 4. Sigurjón Arason, efnafræftingur, skýrir frá þessari
framleiftslu á fundi meft blaftamönnum.
Tlmamyndir Tryggvi