Tíminn - 15.06.1979, Page 17
Fimmtudagur 14. jdni 1979
17
Skólaslit Kvennaskólans I Reykjavik
TALSVERÐRA BREYTINGA
AÐ VÆNTA í SKÓLASTARFINU
Kvennaskólanum i Reykjavik
var sagt upp iaugardaginn 26.
maf sl. aö viöstöddum mörgum
gestum og afmælisárgöngum.
Forstööukona geröi grein fyrir
starfsemi skölans þetta skólaár
og þeim breytingum, sem fyrir-
hugaöar eru næsta vetur. Teknir
veröa innnemendur á fyrsta ári á
uppeldissviöi, og starfræktar
veröa þrjár brautir, menntabraut
sem leiöir til stiídentspfofs eftir
fjögur ár, fóstur-og þroskaþjálfa-
braut, og félags- og iþróttabraut,
sem Ijiika má á tveimur árum en
einnig geta leitt til stúdents-
prófs eftir fjögur ár. Samkvæmt
þvi veröur ekki tekiö viö nemend-
um i 1. bekk skólans næsta vetur.
í vetur stunduöu 186 nemendur
nám á grunnskólastigi og 7 á
uppeidisbraut, en 63 stúlkur luku
grunnskólaprdfi 9. bekkjar og
blutu allar rétt til framhalds-
náms.
Þá var skýrtfrá Urslitum prófa.
Bestum árangri á grunnskóla-
prófi náöi Jórunn Ella Þóröar-
dóttir, en i 2. bekk var hæst Harpa
Rúnarsdóttir og I 1. bekk Hildur
Svavarsdóttir. A Uppeldisbraut
náöi Valgeröur Hallgrlmsdóttir
bestum árangri I námi.
Viö skólauppsögn voru Kvenna-
skólanum færöar góöar gjafir og
heillaóskir. Guörún Þorvalds-
dóttir gjaldkeri Nemendasam-
bands Kvennaskólans afhenti
peningagjöf I minningarsjóö frk.
Ragnheiöar Jónsdóttur fyrrv.
skólastjóra. Fyrir hönd nemenda,
sem brautskráöust fyrir 25 árum,
talaöi frú Erla Hjartardóttir og
færöu þær skólanum fjárupphæö I
Listaverkasjóö.Fyrir hönd 20 ára
árgangsins talaöi frú Helga
Sveinsdóttir og afhentu þær einn-
ig fjárupphæö I Listaverkasjóö.
Frú Jóhanna Thorsteinsson talaöi
BARNIÐ ÞITT
•
Ný bók frá Ifiunni:
Barnið
þitt
Bókaútgáfan IÐUNN hefur sent
frá sér bók sem nefnist Barniö
þitt. Hún er ætluð foreldrum sem
vilja halda til haga ýmsum fróö-
leik um þroskaferil barna sinna
fyrstu árin. Er til þess ætlast aö
upplýsingar um ýmislegt sem
slíkt varöar séu færöar inn I bók-
ina: Fæðingin (þyngd og lengd
barns við fæöingu o.s.frv.), skfrn-
in, fjölskylda barnsins, vöxtur
þess, þroski, heilsufar, samskipti
viö umhverfiö, leikir og fyrstu
spor á skólagöngu. — Bókin er
prýdd teikningum eftir Jacqui
Ward. Margrét Jónsdóttir þýddi
texta bókarinnar sem prentuö er I
Bretlandi.
A uglýsið f
Tímanum
Kvennaskólinn i Reykjavik.
fyrir hönd 10 ára árgangsins og
færöu þær skólanum fjárupphæö i
Móöurmálssjóð skólans og fyrir
hönd 5 ára árgangsins talaöi
Unnur Melsteö. Forstööukona
þakkaöi afmælisárgöngum kom-
una og kvaö tryggö þeirra upp-
örvun bæöi nemendum og kenn-
urum.
Aö því búnu fór fram verö-
launaafhending. Verölaun úr
Minningarsjóöi frú Thoru Melsteö
fyrir bestan árangur i bóklegu
námi hlaut Jórunn Ella Þóröar-
dóttir. Verölaun fyrir besta
frammistööu I fatasaumi úr
Verðlaunasjóöi frú Guörúnar J.
Briem hlaut Erna Milunka Kojic.
Verölaun úr Thomsenssjóöi fyrir
útsaum hlaut Eva Ingólfsdóttir.
Verölaun fyrir ágæta einkunn á
samræmdum prófum hlutu þær
Helga Laufey Finnbogadóttir og
Steinunn Arnþrúöur Björnsdóttir,
Verölaun úr Mdöurmálssjóöi
fyrir besta frammistööu i Is-
lensku á burtfararprófi hlutu Val-
gerður Hallgrimsddttir og Jórunn
Ella Þóröardóttir. Verölaun fyrir
ágæta frammistööu á samræmdu
prófi idönsku hlaut Helga Laufey
Finnbogadóttir. Verölaun fyrir
besta árangur i enskunámi hlaut
Margrét Sigriöur Blöndal. og
verölaun fyrir ágætisárangur i
sögunámihlutu þærHelga Laufey
Finnbogadóttir og Maria Soffia
Gottfreösdóttir.
Forstööukona gat þess, aö þaö
væri einkum þrennt sem yki
mönnum bjartsýni á framtiö
þessa skóla og þaö væri, aö ungt
fólk sækti hingaö, kennarar létu
sér annt um hag ogárangur nem-
enda og i þriöja lagi aö eldri
árgangar skólans hafi sýnt hon-
um óvenju ræktarsemi og tryggö.
Aö lokum þakkaöi forstööukona
skólanefnd og nemendasambandi
ánægjulegt samstarf og kennur-
um þann góða árangur sem náöst
heföi, og óskaöi nemendum allra
heilla á komandi árum.
NUERU
QÓÐRÁÐ
ODÝR!
Þér er boöiö aö hafa samband viö verkfræöi-
og tæknimenntaöa ráögjafa Tæknimiöstöövar-
innar ef þú vilt þiggja góö ráö i Sambandi
viö eftirfarandi:
Vökva-og
loftstrokkar
Eitt samtal við ráðgjafa okkar, án
skuldbindingar, getur sparaö þér stórfé hvort
sem um er að ræöa vangaveltur um nýkaup^
eöa vandamál við endurnýjun eöa
viögerö á þvi sem fyrir
41
1MM
VERSLUN - RÁOGJÖF-VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
IÆKNIMIÐSTÖÐIN HF
Smiójuveg66. 200 Kopavogi S:(91)-76600
a
A uglýsið
í Tímanum