Fréttablaðið - 14.11.2006, Síða 22

Fréttablaðið - 14.11.2006, Síða 22
Íorðabókinni eru bara tvö orð til skilgreiningar á því hugtaki. Kynþáttahyggja og kynþáttahat- ur. Það er ekki rasismi að hafa áhyggjur af óheftum innflutningi ódýrs vinnuafls. Það er heldur ekki rasismi að hafa áhyggjur af þeim sem fyrir eru í landinu af þess völdum. Það er ekki einu sinni rasismi að hafa áhyggjur af því hvað gerist ef of margir aðilar af ólíkum menningarheimi flytja til landsins. Ég hef ekki getað fundið út hatur á fólki hvorki af orðum Magnúsar Þórs né Jóns Magnús- sonar. Það er hinsvegar mjög óheppilegt að taka svo til orða að Ísland sé fyrir Íslendinga. Að hafa áhyggjur af því að mús- limar flytji hingað í of stórum stíl er eðlilegt. En það er ekki þar með sagt að í gangi sé einhver hreins- unarstefna. Alls ekki. Það væri alveg eins hægt að segja orð eins og Vísindakirkjan, Amish eða Vottar Jehóva. Þetta er allt saman öfgatrú að mati þeirra sem eru umburðarlyndari. En þýðir alls ekki að fólk megi ekki hafa þá trú. Þeir sem hæst hrópa hér um að Frjálslyndi flokkurinn sé rasista- flokkur gjaldfella því bæði sjálfa sig og hugtakið rasisma. Í stefnuskrá Frjálslynda flokks- ins er boðað umburðarlyndi gagn- vart öllum hópum, og frelsi til athafna og æðis. En svo segir í byrjun málefnahandbókar, í kafla sem heitir Manngildi í fyrirrúmi: Kjarni frjálslyndrar stjórn- málastefnu er að hver einstakling- ur viðurkenni rétt annarra ein- staklinga til frjálsrar hugsunar, trúar, tjáningar og frelsis til að kjósa sér eigin lífsstíl. Þetta þýðir ekki að frjálslynd stjórnmála- stefna einkennist af stefnuleysi. Frjálslynt fólk berst fyrir því að þeir sem hafa ákveðnar skoðanir standi fyrir þeim, en að þeir verji jafnframt rétt annarra til að hafa aðrar skoðanir. Þegar fólk hrópar upp yfir sig að félagar í Frjálslynda flokknum séu að breytast í harða þjóð- hyggjurasista er eitthvað annað sem vakir fyrir því en sannleiks- ást. Það gæti verið: 1 Að fólk hreinlega lesi ekki orðin sem eru skrifuð, heldur taki punkta úr texta sem þeir vilja gera eitthvað úr sem ekki er. 2 Það vilji nota sér þetta í pólit- ískum tilgangi til að höggva til andstæðings. 3 Skilji ekki hugtakið „rasismi“ 4 Vilji hreinlega þagga málið niður, vegna þess að það er óþægi- legt að ræða það. 5 Að það hreinlega viti ekki betur. Ég er afskaplega ánægð með yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Steingríms J. Sig- urðssonar, þau þjöppuðu sér að baki Guðjóns Arnars, ég tel þau hafa staðist fyrstu prófraun- ina og límið í Kaffibandalag- inu þannig styrkst. Ég er sérlega ánægð með Kaffibandalagið og að þau þrjú séu að tala saman. Fólk vill fá val um hverjir muni leiða næstu ríkisstjórn. Og nú verður loks- ins hægt að eiga það. Viðbrögð fólks, bæði á heimasíðu Magnúsar Þórs, og ekki síður bara í kringum mann sjálf- an, segja að þetta mál brennur mjög á almenningi. Enda hafa þingmenn Frjáls- lynda flokksins verið duglegir við að fara út um byggðir landsins og ræða við almenning í landinu. Þeir hafa því þekkingu á vandamálum fólks, sem oft sést á viðbrögðum þeirra á þingi. Enda voru stjórnarherrarnir teknir gjörsamlega í bælinu hvað þetta mál varðar. Þeir mega þó eiga það, að þegar var búið að ræsa þá út, þá gripu þeir til varn- araðgerða. Þó hringsnúningar félagsmálaráðherrans hafi verið nokkuð skondnar, eitthvað fum og fátkenndar sýnist mér. Það var löngu tímabært að taka þessa umræðu. Og fólk verður að horfast í augu við vandamálið. Hér er ekki verið að tala um að loka landinu eða setja höft á fólk eftir menningarhefðum eða trú. Það er verið að benda á ákveðið vandamál sem er óheftur innflutn- ingur á ódýru vinnuafli, oftast bara um einstaklinga að ræða, sem koma hér í skamman tíma og senda allt handbært fé úr landi. Þeir eiga fullan rétt á því, og það á ekki að amast við því fólki sem hingað kýs að koma og starfa. En við erum bara 300.000 manna þjóð, og hér er verið að tala um milljónasamfélög, þar sem mikil fátækt og atvinnuleysi ríkir. Að tala um að þetta hafi slegið af starfs- mannaleigur er barnalegt í mesta lagi. Það hefur komið fram að hér eru nokkur þúsund starfs- menn sem eng- inn veit af, og enginn veit hvernig hafa það. Hvar er það fólk? Og í því sam- bandi, af hverju var ekki byrjað á að undirbúa komu þessa fjölda til lands- ins? Það þýðir ekki að koma eftir á og segja við vissum ekki að það yrðu svona margir. Við verðum að hugsa um að hafa aðstöðu til að taka á móti því fólki sem vill koma. Og með þessa óhefta flæði frá Evrópu er loku fyrir það skotið að fólk frá öðrum svæðum eins og Taílandi, Perú, Kúbu, Venesúela og fleiri fátæk- um ríkjum geti komist hingað. Hér hafa margir Taílendingar komið undanfarin ár og reynst mjög góður starfskraftur. Eitt á ekki að útiloka annað. Rasisminn býr ekki í Frjáls- lynda flokknum, en það virðist vera ansi grunnt á rasandanum hjá sumum Íslendingum gagnvart samferðarmönnum sínum því miður. Höfundur býr á Ísafirði. Hvað er rasismi? Ég er 39 ára gömul. Ég er móðir, eiginkona, dóttir, systir, frænka, vin- kona, starfs- maður, nemi – hluti af stærri heild. Á margan hátt er eins komið fyrir þjóðinni okkar, þ.e. Íslending- um. Við erum hluti af Norðurlönd- unum, Evrópu og Evrópska efna- hagssvæðinu. Eins erum við hluti af alþjóðlegum samtökum eins og NATO og Sameinuðu þjóðunum. Við erum ungt lýðveldi og lítil þjóð í stóru alþjóðlegu samfélagi. Við viljum taka þátt í þeirri hnattvæðingu sem nú á sér stað. Við dásömum hugtakið ,,útrás“ en erum ef til vill ekki tilbúin fyrir ,,innrás“. Við viljum hagvöxtinn og allt sem honum fylgir en hann krefst þroska, þroska þjóðar í formi umburðarlyndis í stað for- dóma. Umræðan er hafin og öll sjónarhorn eiga rétt á sér en rök- ræðan verður ekki unnin með því að setja merkimiða á fólk. Mörgum Íslendingum þykir eftirsóknarvert að flytja til útlanda en á sama tíma höfum við átt því láni að fagna að Ísland er eftirsóknarvert í augum annarra og við erum ríkari fyrir vikið. Tökum á móti fólki eins og við viljum að aðrir taki á móti okkur og berum virðingu hvert fyrir öðru. Höfundur er upplýsingafulltrúi Alþjóðahúss. Viljum útrás en ekki innrás! Það sem eftir stendur í atburð-um síðustu daga þ.e. innflytj- endamálin/frjálst flæði vinnuafls frá Evrópu – og það situr í mér – er að aðrir flokkar, stjórnmála- spékúlantar og einhverjir fleiri séu að kalla stefnu Frjálslynda flokksins rasisma. Það er alls ekki rétt og er bara útúrsnúningur og verið að reyna að veiða fólk í skoðanavillu á stjórnmálaflokki. Væri Frjálslyndi flokkurinn hinsvegar hreinræktaður rasista- flokkur í ætt við hægri öfgasinn- aðan þjóðernisflokk af verstu sort þá væri ég ekki þar og hefði aldrei fengið að stíga fæti inn þar með baráttumál mín og minni- hlutahóps míns, heyrnarlausra og heyrnar- skertra. Þá hefði flokkurinn aldrei staðið fyrir því að berjast fyrir því að viðurkenna íslenska táknmálið eða þá að vilja texta innlent sjónvarspefni fyrir heyrnarlausa/heyrnarskerta og ÚTLENDINGA svo þeir geti lært íslenskuna af textanum (að heyra hvernig orðin eru borin fram og skrifuð samtímis) og lærðu þar með líka um íslenska menningu og myndu því aðlagast lífinu hérna á þessari sérstöku eyju í Norður- Atlantshafi. Og svo ekki sé minnst á öryrkja og lífeyrismálin sem flokkurinn hefur staðið fyrir á þingi. Í venju- legum rasistaflokkum eru fatlaðir nefnilega útskúfaðir og baráttu- mál þeirra ná ekki upp á pallborð- ið hjá rasistum. Því er hér með alfarið vísað til föðurhúsanna að Frjálslyndi flokk- urinn sé litaður rasisma og í honum her rasista. Svo ekki sé nú meira sagt um þetta mál. Höfundur er varaþingmaður Frjálslynda flokksins í Suðvestur- kjördæmi. Öngvir rasistar! Ég er sérlega ánægð með Kaffi- bandalagið og að þau þrjú séu að tala saman. Fólk vill fá val um hverjir muni leiða næstu ríkisstjórn. Og nú verður loks- ins hægt að eiga það. Bi rt m eð fy rir va ra u m te xt a og m yn da br en gl . V ör ur g et a ve rið u pp se ld ar V610 5.900 FRÁBÆRT VER Ð Hlébarðalíf Skotinn Tom Leppard er þekktur semhlébarðamaðurinn á Skye, enda hefur hann ... Ný og glæsileg myndavél frá Kodak Minnsta myndavélin á markaðnum með 10 x aðdrætti Sendu myndirnar þráðlaust til þeirra í kringum þig. Bluetooth tæknin gerir kleift að senda þráðlaust í tölvu, GSM síma eða prentara. 6.1 milljón pixla, gerir þér kleift að stækka í allt að 75 x 100 sm Tvær linsur 38-114 mm og 130 - 380 mm 2,8" skjár Video upptaka með 10 x aðdrætti og hristivörn Lithium Ion rafhlaða og hleðslutæki fylgir 1-30 stk kr. 145 pr. stk 31 stk og fleiri kr. 135 pr. stk. Öllum kortum fylgir umslag V603 6,1 milljón pixla, gerir þér kleift að stækka í allt að 75 x 100 sm Schneider Kreuznach linsa tryggir gæðin 3 x optískur aðdráttur (36 - 108 mm) 2,5" skjár Video upptaka með 3 x aðdrætti og hristivörn Lithium Ion rafhlaða og hleðslutæki fylgir Kr. 3.200,- 12mán Kr. 32.980,- Kr. 2.392,- 24mán Kr. 44.980,- Kr. 5.900,- NÝ VÉL NÝ VÉL Bankastræti • Fjörður • Kringlan • Laugavegur 178 • Smáralind Nýtt í Hans Petersen Tvær linsur Bluetooth Þú færð jólakortin á www.hanspetersen.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.