Fréttablaðið - 14.11.2006, Page 58
Vesalingarnir koma aftur upp á
Broadway í nóvember og hefjast
forsýningar aðra helgi. Eru sýn-
ingar áætlaðar í sex mánuði. Það
er sama gengið sem stendur að
sýningunni og vann upphaflegu
sviðsetninguna fyrir RSC sem
frumsýnd var síðla árs 1985. Sú
sviðsetning flutti síðan í West End
og á Broadway. Þar gekk hún frá
1987 til 2003.
Sviðsetning Þjóðleikhússins
þótti draga dám af upprunalegu
sviðsetningunni og leiddi til
athugasemda í dagblöðum frá full-
trúa Autograph, en það fyrirtæki
sá um hljóðhönnun á Vesalingun-
um upprunalega. Gangur verksins
hér var óvenju góður miðað við
söngleiki en verkið er stórt og
dýrt í flutningi.
Vesalingar á Broadway
Jökull Valsson vakti talsverða
athygli fyrir sína fyrstu skáld-
sögu, hrollvekjuna Börnin í Húm-
dölum, sem kom út fyrir tveimur
árum. Í Skuldadögum rær Jökull
af miðum Stephens King og niður
í reykvíska undirheima.
Hér segir frá dópsalanum (og
fíklinum) Matta, sem vaknar upp
við vondan draum á föstudags-
morgni. Búinn að týna 50 grömm-
um af kókaíni sem honum var falið
að selja yfir helgina og veit sem er
að eigandinn verður allt annað en
hrifinn. Hann þarf sem sagt að
hafa upp á dópinu ellegar redda
andvirði þess með öðrum ráðum,
forðast handrukkara og ofan í
kaupið þarf hann svo að mæta í
lamb hjá mömmu.
Efniviðurinn býður upp á mikla
keyrslu og Jökull lætur það ekki
fram hjá sér fara; á fyrstu síðum
er söguhetjan komin á sprett sem
– með hjálp hvíta púðursins –
stendur fram á sunnudag og verð-
ur blóðugri eftir því sem á líður.
Matti er óheillakráka, lausnirn-
ar á raunum hans virðast ítrekað
vera handan við hornið en í hvert
skipti sem hann reynir að bæta
stöðu sína sekkur hann dýpra í
fenið. Auk hans koma við sögu
vinur hans Steini, steratröllið
Reynir og kærastan hans Beta,
handrukkararnir Ottó og Benni,
ítalski pitsubakarinn Valentino,
Eiður, yfirmaður Matta, og verð-
bréfasalinn Sigurgeir, sem er í
raun hákarlinn á toppi dóppýram-
ídans en er minntur harkalega á
hlutskipti þeirra sem verma botn-
inn.
Lykilpersónurnar eru vel
heppnaðar og skýrar. Hvorki
afskrifaðar sem ræflar eða upp-
hafnar sem hetjur, bara eins og
hvert annað fólk en tilheyrir sam-
félagskima þar sem önnur lögmál
gilda en í hversdagslífi flestra.
Jökull minnir þó á að þessi kimi er
órofinn heildinni og teygir sig ofar
upp samfélagsstigann en margir
vilja vera að láta.
Jökull hefur traust tök á text-
anum. Sagan er yfirleitt sögð frá
sjónarhorni Matta, sem er stút-
fullur af meiningum um hvað er
að íslensku samfélagi, en frásögn-
in flakkar stöku sinnum yfir í
þriðju persónu. Stíllinn er talmáls-
legur, með tilheyrandi slangri, og
skerpir á keyrslunni þótt hann sé
líklegri til að höfða til yngri les-
enda en eldri.
Sú mynd sem dregin er upp af
Reykjavík er ekki kræsileg en
raunsæ. Undir lokin reynir Jökull
vissulega á þanþol lesandans í
ofbeldislýsingum en heldur sig þó
innan marka þess sem má kalla
trúverðugt. Honum skrikar þó
stundum fótur, til dæmis á Matti
til að reifa sjónarmið sín um sam-
félagsmein á borð við gatnaskipu-
lag á ótrúlegum stundum. Slíkum
agnúum er þó auðvelt að líta fram
hjá.
Skuldadagar er samtímasaga í
húð og hár, skrifuð í stormi sinna
tíða og mun því kannski eldast
hratt, en svínvirkar í núinu.
Tár, bros og hnúajárn
Fim. Aukas. upps.9. nóv
Fös. 10. nóv
Lau. 11. nóv
Lau. 18. nóv
Sun. 19. nóv
Fös. 24. nóv
Lau. 25. nóv
Miðasala virka daga
frá kl. 11-16 og 2
tímum fyrir sýningar.
Sími 5629700
www.idno.is
Sýningar kl. 20
Sýnt í Iðnó
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI