Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 29
Ýmsar leiðir eru farnar til að fræða
ungt fólk skaðsemi fíkniefna. Nú
hefur Lýðheilsustöð í samstarfi
við Hafnarfjarðarleikhúsið farið
nýstárlega leið með skemmti-
fræðslunni hvað EF í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu.
Lýðheilsustöð býður foreldrum og nem-
endum í 9. og 10. bekk að sjá skemmti-
fræðsluna hvað EF í Hafnarfjarðarleikhúsinu
dagana 13., 14. og 15. nóvember. Þar er á nýstárlegan
hátt notast við leik, söng, ljóð og tónlist til að fræða
um staðreyndir fíkniefna.
Markmiðið er að sýna unglingunum að þeir hafa
val og hvernig margar saklausar ákvarðanir geta
haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það að
reykja eina hasspípu eða segja já við einni lítilli E-
pillu getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar, jafnvel
valdið ótímabærum dauða. Ungt fólk fær
oft sína fyrstu fræðslu um fíkniefni frá
neytendum eða sölumönnum sem fyrst
og fremst þurfa fleiri viðskiptavini oft
til að fjármagna eigin neyslu. Foreldr-
ar eru hvattir til að fara með unglingn-
um sínum á sýninguna og taka þannig
virkan þátt í forvörnum. Það er 540
Gólf leikhús og SÁÁ, í samstarfi við
Hafnarfjarðarleikhúsið, sem standa
fyrir hvað EF skemmtifræðslunni.Höf-
undar texta, ljóða og tónlistar eru þeir Einar
Már Guðmundsson rithöfundur, Valgeir Skag-
fjörð, rithöfundur og tónlistarmaður og leikhópurinn
sem í eru Felix Bergsson, Guðmundur Ingi Þorvalds-
son, Brynja Valdís Gísladóttir og Orri Huginn Ágústs-
son. Foreldrar sem óska eftir að fá miða á sýninguna
skrái þátttöku hjá Heimili og skóla. Miðana þarf að
sækja í miðasölu Hafnarfjarðarleikhússins fyrir sýn-
ingu og þarf þá að gefa upp nafn. www.lydheilsustod.
is
Skemmtifræðsla um forvarnir
Breskir vísindamenn hafa
nú náð að gefa blindum mýs
sjón á ný, að því er kemur
fram í breska dagblaðinu The
Guardian.
Læknar á
Moorfields
Eye Hospital
og the Ins-
titute of
Child Health
í Englandi
tókst að
græða ljós-
næmar frum-
ur í nethimnu í augum músanna
sem varð til þess að þær öðluðust
sjón. Aðgerðin gefur mörgum blind-
um nýja von. Um 15 prósent ein-
staklinga yfir 75 ára aldri verða
fyrir aldurstengdri blindu og er
talið að þessi aðferð gæti bætt þess
konar blindu. Andrew Dick, lækna-
prófessor við Háskólann í Bristol,
segir að það sé ekki komin töfra-
lausn við blindu en segir jafnframt
aðgerðina það einstaka að full
ástæða sé til að reikna með að hægt
verði að gefa einhverjum blindum
sjón á ný með svona ígræðslu þegar
fram líða stundir.
Blindir binda
vonir við
breskar mýs
Vísindamenn hafa prófað tvö
ný bólusetningarlyf gegn HIV
með góðum árangri.
Lyfin eru tvenns konar og byggja á
mismunandi þáttum. Annað nýtir
DNA sem mótefnisvaka ean hitt
notar adenóvírusa til að vekja við-
brögð hjá ónæmiskerfinu.
Bæði lyfin gáfu góða raun en
þau efldu ónæmissvörun líkamans
gegn HIV-veirum til muna. Vonir
standa til að hægt verði að nota
lyfin saman og fá þannig fram
hámarksáhrif.
Bólusett gegn HIV
Breskir vísindamenn hafa
búið til gervimeltingarveg sem
nota á til rannsókna á áhrif-
um ýmissa matartegunda á
meltinguna.
Tækið er
hannað
þannig að það
líkir eftir
bæði hreyf-
ingum melt-
ingarvegsins
og öllum þeim
efnahvörfum
sem þar fara
fram. Tækið
er úr sýru-
þolnum plast-
efnum og
málmum sem
gerir melting-
arsýrum
kleyft að
vinna óáreittar og án þess að
skemma tækið.
Gervimeltingarvegurinn er á
við hálfan meltingarveg eðlilegr-
ar manneskju. Í hann er hægt að
láta skammt sem samsvarar ham-
borgara og frönskum og ef hann
fær of mikið þá er hann gerður
þannig að hann ælir matnum upp
aftur.
Tækið er í eigu bresku fæðu-
rannsóknastofnunarinnar en það
hefur þegar kallað á athygli einka-
aðila. Þeir vilja aðgang að tækinu
til að prófa afurðir sínar og sjá
hversu hollar, eða óhollar, þær
eru.
Gervimagi
Hverjir eru bestir?
- í snakkinu okkar er 100% sólblómaolía
- mun hollara en frá erlendum framleiðendum
- aðeins 3% mettuð fita
- engin hert fita
- engar transfitusýrur, sem er mjög gott
- 30% minni fita en í kartöfluflögum
- þess vegna erum við bestir
Í nýlegri bandarískri könnun fékk íslenska Stjörnusnakkið sérstaklega góð meðmæli.
Umfjöllunin er á vefsíðunni: http://www.taquitos.net. Sjá einnig kr ækju á www.snakk.is
www.snakk.is
Hol
lara
sna
kk
með
100
%
sólb
lóm
aol
íu