Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 28
Heilbrigðar þungaðar konur sæki mæðravernd til heilsu- gæslustöðva. Framundan er breyting á skipu- lagi mæðraverndar á höfuðborg- arsvæðinu. Gert er ráð fyrir að heilbrigðar þungaðar konur sæki mæðravernd til nærliggjandi heilsugæslustöðva en konur sem skilgreindar hafa verið með áhættuþætti sækja mæðravernd til Landspítala - háskólasjúkra- húss þar sem sérhæft eftirlit fæð- ingarlækna og ljósmæðra fer fram. Þetta kemur fram á vef LSH á www.lsh.is Á síðustu árum hefur hlutverk annars vegar heilsugæslunnar og hins vegar LSH við mæðravernd verið að skýrast. Heilbrigðar konur hafa í auknum mæli sótt þjónustu til heilsugæslunnar en konur sem eru í áhættu á með- göngu hafa leitað til Miðstöðvar mæðraverndar og á LSH. Fram- vegis er gert ráð fyrir því að heil- brigðar konur fái þjónustu hjá ljósmóður og lækni á heilsugæslustöð þar sem lögð er áhersla á samfellda þjónustu. Starfið á heilsugæslustöðvunum verður eflt enn frekar og mun njóta öflugs stuðnings Miðstöðvar mæðraverndar. Hlutverk Miðstöðvar mæðra- verndar verður að styðja við mæðravernd á heilsugæslustöðv- unum á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu með áherslu á ráð- gjöf, fræðslu og faglegan stuðning við starfsfólk heilsugæslustöðva. Hún verður vettvangur þróunar og rannsókna og tengiliður við LSH. Ákveðinn hópur kvenna þarf hins vegar á sérhæfðu eftirliti á með- göngu að halda og verður því sinnt á kvennasviði LSH. Sérstök mót- taka verður starfrækt við spítal- ann fyrir konur í áhættu. Þessar breytingar taka gildi 24. nóvember og vonast er til að sem minnst röskun verði á þjónustu við þungaðar konur. Breyting á skipu- lagi mæðraverndar Google gagnast læknum við sjúkdómsgreiningar. Ástralskt læknateymi notaði leit- arvélina til að fletta upp sjúk- dómseinkennum 26 erfiðra til- fella, vegna rannsóknar sem framkvæmd var á vegum Lækna- rits Nýja Englands. Í 15 tilfellum af 26 skilaði leit- arvélin réttri sjúkdómsgreiningu og telja aðstandendur rannsóknar- innar hana sýna að Google leitar- vélin sé læknum því góður liðs- auki. Google er nú vinsælasta leitar- vélin á netinu, með aðgengi að meira en þremur billjónum heilsu- tengdum greinum, enda er netið mestmegnis notað til að fræðast um þann málaflokk. Það er því ekki óeðlilegt að læknar skuli afla sér upplýsinga á netinu þegar þeirra eigin þekking þrýtur. Heilbrigðisyfirvöld vilja þó ítreka að jafnvel þótt læknum sé mikill fengur að leitarvélum á borð við Google muni þær aldrei koma til með að leysa þá af hólmi. Þeirra verði ætíð þörf þar sem sérkunnátta sé nauðsynleg til að lesa rétt úr gögnunum sem aflað er á netinu. Frá þessu er greint á fréttavef BBC, www.bbc.co.uk Læknar notast við leitarvélina Google Blue Lagoon gjafakort Bláa lónið Húðvörur Spa meðferðir Veitingar Gisting Upplýsingar í síma 420-8832 eða á bluelagoon@bluelagoon.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.