Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 12
 Jaap de Hoop Schef- fer, framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins, skoraði í gær á aðildarríkin að auka framlög sín til varnarmála. Framkvæmdastjórinn lét þessi orð falla í heimsókn til Búdapest, en hann er nú á heimsóknarúnti milli höfuðborga NATO-landanna til undirbúnings leiðtogafundar bandalagsins sem fram fer í Riga í lok mánaðarins. Hann minnti á að eins og sakir standa eyða einungis sjö af aðild- arríkjunum 26 fullum tveimur prósentum af landsframleiðslu til varnarmála, en það eru þau mörk sem bandalagið ætlast til að hvert og eitt aðildarríki verji að lág- marki í þennan málaflokk. „Þetta er röng þróun fyrir bandalag sem er metnaðarfullt og stendur frammi fyrir síauknum kröfum um þátttöku í alþjóðlegum verkefnum og leiðöngrum,“ hefur AP-fréttastofan eftir de Hoop Scheffer. Ísland er eina NATO-landið sem ekki hefur útgjöld til varnar- mála á fjárlögum. Samkvæmt upp- lýsingum frá varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins mun Ísland geta talið eftirfarandi sem útgjöld til varnarmála: kostnað við hið fyrirhugaða nýja varnar- svæði á Keflavíkurflugvelli, fram- lagið í Mannvirkjasjóð NATO sem Ísland er nú í fyrsta sinn að hefja greiðslur í, bein framlög til aðgerða NATO, svo sem í Afgan- istan, og hugsanlega rekstrar- kostnað varnarmálaskrifstofunn- ar, en engin formleg tilraun hefur verið gerð til slíks útreiknings. Taki Íslendingar að fullu við rekstri Ratsjárstofnunar eftir að ábyrgð Bandaríkjamanna á honum sleppir í ágúst á næsta ári muni sá kostnaður tvímælalaust teljast útgjöld til varnarmála, en hann nemur mörg hundruð milljónum króna á ári. Hugsanlega mætti einnig reikna rekstur Landhelgis- gæslunnar með. Kostnaður við Íslensku friðargæsluna er talinn framlag til þróunarmála og þyrfti því að endurskilgreina ef hann ætti að teljast framlag til varnarmála. Tvö prósent af vergri lands- framleiðslu Íslands samsvarar um tuttugu milljörðum króna. NATO-ríkin taki sig á Framkvæmdastjóri NATO skorar á aðildarríkin að verja meiru til varnarmála. Sjö af 26 ríkjum ná lág- markinu, tveimur prósentum af landsframleiðslu. Fram til áramóta verður hægt að fá byggingalóðir á Skagaströnd án þess að greiða gatnagerðargjöld. Um er að ræða lóðir við götur sem eru þegar til- búnar. Að því er segir á heimasíðu Höfðahrepps er um að ræða fjórar lóðir undir íbúðarhús. Umsóknir verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. „Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að bygg- ingaframkvæmdir skuli vera hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skuli hafa hlotið fok- heldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðargjalda,“ segir um skilmála þessara góðu kjara. Ókeypis lóðir á Skagaströnd Aðalritstjóri og tveir blaðamenn danska dagblaðsins Berlingske Tidende voru í gær kallaðir fyrir rétt í Kaupmanna- höfn, ákærðir fyrir að hafa á árinu 2004 birt upplýsingar úr dönskum leyniþjónustuskýrslum. Brotin sem þeir Niels Lunde ritstjóri og blaðamennirnir Michael Bjerre og Jesper Larsen eru ákærðir fyrir varða sektum og allt að tveggja ára fangelsi. Lunde hefur áður sagt að blaðið hafi ekki gert neitt saknæmt er það birti greina- flokk, sem byggðist að miklu leyti á skýrslum sem láku frá leyniþjónustu danska hersins, en í þeim kom fram að engar vísbendingar væru um að Saddam hafi haft gereyðingar- vopn. DMK Tiltektarlán* kemur sér vel fyrir fólk sem er með fjölda óhagstæðra skammtímaskulda. Í stað slíkra skulda kemur eitt hagstætt lán með lægri greiðslubyrði. Lántökugjald DMK Tiltektarlána er aðeins 1%. Hægt er að fresta afborgunum af DMK Tiltektarláni fyrsta árið og greiða aðeins vexti á því tímabili. Aðrir þættir DMK þjónustunnar eru: • DMK Debetkort • DMK Kreditheimild • DMK Yfirdráttarheimild • DMK Léttlán • DMK 90% íbúðalán • DMK Ráðgjöf • DMK Reglulegur sparnaður • DMK Tilboð Sæktu um DMK á spron.is A RG U S / 06 -0 55 2 DMK Tiltektarlán – í stað margra óhagstæðra skammtímaskulda! Fram til áramóta fánýir viðskiptavinir í DMK gjafabréf fyrirtvo í Borgarleikhúsinu. Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is * skv. útlánareglum SPRON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.