Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 2
2 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Spurning dagSinS
75.000 KR.
GJAFABRÉF
FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA ÖLLUM BÍLUM
AfGAnIstAn, AP Breski forsætisráð-
herrann Tony Blair tjáði í gær her-
mönnum sem eiga í höggi við upp-
reisnarmenn talíbana í Afganistan
að öryggi í heiminum öllum væri
að hluta til undir því komið hvern-
ig til tækist í þessari baráttu. Blair
ítrekaði að breskt herlið yrði
áfram í landinu „eins lengi og þörf
krefur“.
Blair átti viðræður í Kabúl við
Hamid Karzai, forseta Afganistans,
eftir að hafa heimsótt herbúðir í
Helmand-héraði í suðurhluta lands-
ins. Þar hitti hann nokkur hundruð
breska hermenn sem þjóna í fjöl-
þjóðlega friðargæsluliðinu ISAF,
sem NATO stýrir. Alls eru um 6.000
breskir hermenn í Afganistan.
Fyrir innrás fjölþjóðaliðsins
undir forystu Bandaríkjamanna
síðla árs 2001 var Helmand eitt
sterkasta vígi talíbana og miklu af
heróínútflutningi Afganistans er
stýrt þaðan.
Á blaðamannafundi með Karzai
forseta sagði Blair að breskt herlið
og herlið frá NATO yrði væntan-
lega í einhver ár í viðbót í Afganist-
an, til að hjálpa til við að tryggja að
talíbanar komist ekki aftur til
valda. - aa
Blair og Karzai Gesturinn talar og gestgjafinn hlustar á blaðamannafundi í Kabúl í gær.
fréttablaðið/ap
Tony Blair forsætisráðherra Bretlands er í heimsókn í Afganistan:
NATO-herlið verður áfram
tRJÁfELLInG Starfsmenn Skóg-
ræktar ríkisins víða um land eru
langt komnir með að fella þau tré
sem prýða munu stræti og torg
borga og bæja fyrir þessi jól.
Frosthörkur hafa þó sett strik í
reikninginn því í miklum kuldum
er hættara við að trén skemmist
við fellingu eða í flutningum vegna
þess hve greinar trjánna eru
stökkar. Af þessum sökum hefur
öllum trjáfellingum á Hallorms-
stað verið frestað þar til hlánar.
Skógrækt ríkisins fellir um
150 torgtré árlega sem eru á
bilinu 3-17 metra há en þetta er
ein af mikilvægustu tekjulindum
hennar. - hs
Byrjað að fella jólatré:
Frosthörkur
tefja fyrir
LÍKAMsÁRÁs Líðan Íslendingsins
sem ráðist var á í Lundúnum um
helgina er betri. Hann er enn á
gjörgæsludeild.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hauki Ólafssyni, starfsmanni
sendiráðsins í London, er
fjölskylda mannsins komin út til
að vera hjá honum. Íslendingur-
inn, sem er karlmaður á fertugs-
aldri, var á ferð við Arnold Circus
í austurhluta borgarinnar þegar
þrír karlmenn réðust á hann
aðfaranótt sunnudags. Árásar-
mennirnir flúðu af vettvangi og
leitar lögreglan þeirra. - hs
Líðan Íslendingsins betri:
Enn á gjör-
gæslu í London
Dúfa, er kurr í þér vegna
málsins?
Nei, ég kurra bara áfram á góðu
nótunum.
Nær öllum fuglum í fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í reykjavík var
fargað í gær. Þar á meðal voru fasanar,
dúfur, hænsni, endur og gæsir. Dúfa S.
Einarsdóttir er söngkennari segir þetta
hafa verið nauðsynlegt.
BREtLAnD, AP Breska rannsóknar-
lögreglan Scotland Yard telur að
eitrað hafi verið fyrir rússnesk-
um fyrrverandi KGB-njósnara í
London. Njósnarinn, Alexander
Litvinenko, neyddist til að flýja
land árið 2000 og hlaut pólitískt
hæli í Bretlandi. Vopnaðir verðir
gæta hans nú á sjúkrahúsi.
Talið er að helmingslíkur séu á
að njósnarinn nái fyrri heilsu.
Litvinenko veiktist eftir málsverð
með ítölskum uppljóstrara sem
liggur nú undir grun um að hafa
byrlað honum eitrið. Hann er lítill
vinur rússneskra stjórnvalda, en
hann hefur sakað Kremlarstjórn-
ina um að hafa skipulagt hryðju-
verk og launmorð. - sgj
Sakamál í London:
Eitrað fyrir
KGB-njósnara
alexander litvinenKo Myndirnar
sýna njósnarann fyrrverandi fyrir og eftir
að hann veiktist.
ÞýsKALAnD Þungvopnaður,
grímuklæddur maður ruddist í
gærmorgun inn í skóla í bænum
Emsdetten í Norðvestur-Þýska-
landi, hóf skothríð og særði fimm
manns. Eftir að lögregla
umkringdi skólann kastaði
maðurinn reyksprengjum og
svipti sig því næst lífi, að því er
greint er frá á fréttavef Der
Spiegel.
Lögregla upplýsti að árásar-
maðurinn hefði verið átján ára
fyrrverandi nemandi úr skólan-
um. Hann skildi eftir kveðjubréf
á netinu, og því fylgdu myndir af
manninum að handleika ýmis
vopn. - aa
Harmleikur í þýskum skóla:
Fyrrum nem-
andi tekur æði
ÁrÁSarmaðurinn Þessa mynd og fleiri
birti hann með kveðjubréfi á heimasíðu
sinni. fréttablaðið/ap
tJón Tugir íbúða í að minnsta kosti
16 íbúðarblokkum á gamla varnar-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli
stórskemmdust um helgina þegar
vatnsleiðslur sprungu í frosthörk-
um. Ekki er ljóst hvert umfang
skemmdanna er í heild en þeir
sem hafa skoðað sig um á svæðinu
telja tjónið geti skipt tugum, jafn-
vel hundruðum milljóna. Nokkurn
tíma mun taka að kanna til hlítar
hversu miklar skemmdirnar eru.
Varnarsvæðið er í umsjá utanrík-
isráðuneytisins þar sem nýstofnað
Þróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar hefur ekki enn tekið við
fasteignunum sem þar eru. Blokk-
irnar hafa verið á lágmarks-
kyndingu síðan herinn yfirgaf
landið.
Vart varð við lekann um helgina
og var slökkviliðið á Keflavíkur-
flugvelli fengið til að dæla upp
mesta vatninu. Voru dæmi um 60
sentimetra djúpt vatn í einstökum
íbúðum og þurfti að rjúfa loft á
milli íbúða til að hleypa vatninu
burt. Slökkviliðið var hvíldarlítið
við störf frá sunnudegi og fram
eftir mánudeginum. Einn viðmæl-
andi Fréttablaðsins lýsti ástandinu
við komu slökkviliðsins svo að flætt
hefði út úr öllum rafmagnstöflum
og að „sundlaugar“ hefðu verið í
sumum íbúðum. Slökkviliðið hefur
lokið störfum en verktakar hafa
tekið við hreinsun íbúðanna.
Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélagsins,
bendir á að varnarsvæðið sé enn
undir umsjá utanríkisráðuneytis-
ins því ekki hefur verið formlega
gengið frá samningum um yfir-
töku Þróunarfélagsins. Kristján
segist telja að um hundrað íbúðar-
blokkir séu á varnarsvæðinu af
um 300 byggingum í allt og að þar
séu um 2.000 íbúðir. Aðspurður
um hvort þessar skemmdir á eign-
um muni setja strik í reikninginn
við ákvörðunartöku á framtíðar-
nýtingu á svæðinu segir Kjartan
að ekki sé ástæða til að gera of
mikið úr þessu atviki. „Það er allt-
af alvarlegt þegar tjón sem þetta
verður en ég held að þetta hafi
engin sérstök áhrif á heildarfram-
vindu verkefnisins.“
Starfsmenn Flugmálastjórnar
á Keflavíkurflugvelli fóru um
svæðið í gær til að kanna hversu
mikið heildartjónið er. Björn Ingi
Knútsson flugvallarstjóri segir að
útilokað sé að meta hversu mikið
tjónið er í krónum talið.
svavar@frettabladid.is
Tugmilljóna tjón á
húsnæði á Vellinum
Milljóna tjón varð á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli um helgina þegar
vatn rann um íbúðarblokkir. Kaldavatnsleiðslur sprungu í frosthörkum með
þessum afleiðingum. Ljóst er að ríkið mun bera kostnað vegna skemmdanna.
LAnDKynnInG Geir H. Haarde
forsætisráðherra tekur í dag þátt
í svonefndum Íslandsdegi í
kauphöllinni í New York í
Bandaríkjunum.
Auk þess að flytja ávarp og
ræða við fulltrúa kauphallarinnar
og kaupahéðna í íslensku og
bandarísku viðskiptalífi mun
ráðherrann hringja út viðskipti í
kauphöllinni síðdegis. Er það
orðalag notað um það þegar
merki er gefið um að viðskiptum
dagsins sé lokið. -bþs
Geir H. Haarde:
Hringir út í
Kauphöllinni í
New York
FrÁ varnarSvæðinu Um
hundrað íbúðarblokkir eru
á gamla varnarsvæðinu. að
minnsta kosti 16 þeirra eru
mikið skemmdar eftir vatnstjón
um helgina.
fr
ét
ta
b
la
ð
ið
/h
Ei
ð
a
fJARsKIPtI Póst- og fjarskiptastofn-
un hefur ákveðið að skilið sé á milli
fjárhags Gagnaveitunnar og Orku-
veitu Reykjavíkur. Fjarskiptastarf-
semi OR fellur undir Gagnaveit-
una en með ákvörðun sinni er OR
gert skylt að aðskilja fjarskipta-
starfsemi sína frá annarri starf-
semi fyrirtækisins. Ákvörðun PFS
er tekin á grundvelli ákvæðis 36.
greinar fjarskiptalaga sem hefur
það að markmiði að koma í veg
fyrir að samkeppnisrekstur sé nið-
urgreiddur af einkaleyfis- eða
verndaðri starfsemi.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
stjórnarformaður OR, segist fagna
ákvörðun PFS. „Þetta er í anda
þess sem nýr meirihluti í borginni
og stjórn OR eru búin að vera að
vinna að. Aðalatriðið er að þetta er
sjálfsagt mál og árétting á því sem
við höfum verið að gera.“ Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um
hvort Gagnaveitan verði seld út úr
OR, að sögn Guðlaugs.
Síminn hefur frá árinu 2000
gert athugasemdir við það sem
fyrirtækið kallar ósanngjarna
samkeppni á fjarskiptamarkaði;
að OR hafi byggt upp ljósleiðara-
kerfi sitt í skjóli tekna af óskyldri
einkaleyfisstarfsemi svo sem sölu
af rafmagni, hita og köldu vatni.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, segir að PFS þurfi að
útskýra hvers vegna OR hefur
átölulaust komist upp með að nið-
urgreiða samkeppnisrekstur í
trássi við lög og hvaða viðurlögum
stofnunin hyggst beita. - shá
Póst- og fjarskiptastofnun vill fjárhagslegt rof á milli Gagnaveitunnar og OR:
Orkuveitan fagnar úrskurði
orKuveituhúSið Or fagnar úrskurði
pfS um fjárhagslegan aðskilnað
Gagnaveitunnar og annarrar starfsemi
fyrirtækisins. fréttablaðið/róbErt