Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 4
4 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR GenGið 20.11.2006 Gjaldmiðlar kaup sala Heimild: seðlabanki Íslands 124,4081 GenGisvísitala krónunnar 70,35 70,69 133,39 134,03 90,3 90,8 12,106 12,176 10,913 10,977 9,943 10,001 0,5957 0,5991 104,45 105,07 Bandaríkjadalur sterlingspund evra dönsk króna Norsk króna sænsk króna japanskt jen sdr ���������������������������������� ������������� �������� ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� ��������� ������� ���� ������� �� ������������� ������������� ������������� ������������� ������������� ������������ ����������� ����������� ������������ ����������� ��������������� ��������������� ��������������� �������������� ��������������� ��������� �������� ������������������ ������������������������ ������������������� ����������������������� �������������� �������� ���������������������� ������������������� �������������������� �������������������� ��������������������� ��������������������� ��������������������� �������������� ��������������� �������������� ��������� �������� ������������������������ ���������������������� ����������������� �������������������� ����������������������� �������� �������� ����� �������������������������� �������������������������� ����������������������������������� ��������������������������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� � �� �� �� �� �� �� � �� �� � � � � �� � � � � � � � � � � � � �� � � � �� �� � � � � � � � �� ���� � � � � � stJóRnmál Stjórnarandstæðingar óttast að breyting á lögum um Landsvirkjun sé fyrsta skrefið í átt til einkavæðingar fyrirtækisins. Iðnaðarráðherra segir ekkert hæft í því. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra mælti fyrir frumvarpi um breyt- ingar á lögum um Landsvirkjun í gær. Snýst það um að binda í lög kaup ríkissjóðs á hlut Reykjavík- urborgar og hlut Akureyrarbæjar og færa fyrirsvar eignarinnar frá iðnaðarráðuneyti til fjármálaráðu- neytis. Fjölmargir þingmenn stjórnar- andstöðunnar lýstu þeirri skoðun sinni að með frumvarpinu væru skref stigin í átt til einkavæðingar. Orð ráðherrans um hið gagn- stæða slógu ekki á ótta þing- mannanna. Kristinn H. Gunnarsson Fram- sóknarflokki tók undir áhyggjur stjórnarandstæðinga og benti á að færsla fyrirsvarsins yfir til fjár- málaráðuneytisins styddi þær grunsemdir enda skýr vilji innan raða sjálfstæðismanna að einka- væða Landsvirkjun. Fyrirvari í kaupsamningi ríkis og sveitarfé- laganna um endurskoðun verð- mats ef til sölu kæmi, var einnig sagður bera vitni um hug ríkis- stjórnarinnar. - bþs stjórnarandstæðingar gagnrýna fyrirhugaðar breytingar á lögum um landsvirkjun: Ítreka ótta um einkavæðingu Jón SiGurðSSon iðnaðarráðherra segir ekki í bígerð að einkavæða lands- virkjun. stJóRnmál Kristinn H. Gunnarsson Framsóknarflokki segir niðurstöð- ur prófkjörs flokksins í Norðvest- urkjördæmi sýna að mikill stuðningur sé við hans sjónarmið. Kristinn hafnaði í þriðja sæti prófkjörsins. Á vefsíðu sinni, kristinn.is, segir hann að tekist hafi verið á um pólitískar áherslur; annars vegar stefnu sem leiðir til áframhaldandi stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis- flokkinn og hins vegar áherslur sem kalla eftir breyttri stjórnar- stefnu með manngildið ofan auðgildi. „Niðurstaðan er skýr að því leyti að kosin er óbreytt vegferð flokksins. Það er valin hægri Framsókn,“ segir Kristinn. - bþs kristinn H. Gunnarsson: Stuðningur við mín sjónarmið stJóRnmál Kolbrún Baldursdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, tók sæti á þingi í fyrsta sinn í gær. Kolbrún gegnir þingmennsku næstu tvær vikur í stað Geirs H. Haarde forsætisráð- herra sem hélt til útlanda í embættiserind- um í gær. Kolbrún skipaði níunda sætið á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum en flokkurinn hlaut fimm þingmenn. Varaþing- mennirnir Lára Margrét Ragnars- dóttir, Guðrún Inga Ingólfsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem voru ofar á listanum, sáu sér ekki fært að setjast á þing nú. -bþs nýr varaþingmaður: Kolbrún tekur sæti á þingi Kolbrún baldurSdóttir ÖRyGGIsmál Fulltrúar Landhelgis- gæslunnar, Ríkiskaupa, skipa- smíðafyrirtækisins Asmar í Chile og Rolls Royce í Noregi hófu í gær samningaviðræður vegna kaupa íslenska ríkisins á nýju varðskipi. Asmar átti lægsta tilboðið í gerð nýs varðskips en það var 2,4 millj- arðar króna, um 200 milljónum undir áætluðum kostnaði. Þórhallur Hákonarson, umsjón- armaður útboðsins fyrir hönd Rík- iskaupa, sagði viðræðurnar hafa gengið ágætlega þegar Fréttablað- ið náði tali af honum í gærkvöld en viðræðurnar höfðu staðið yfir frá klukkan níu að morgni og fram undir kvöld. „Við bindum auðvitað vonir við að þessar viðræður gangi vel í þessari viku. Það má segja að þetta séu skýringarviðræður til undirbúnings samnings. Það á ennþá eftir að leysa ýmis álitamál og þessar viðræður eru einfald- lega í eðlilegum farvegi.“ Fulltrúar íslenskra stjórnvalda fóru á dögunum til Talcahuano í Chile til þess að kanna starfsað- stæður hjá Asmar. Auk Asmar áttu þrjú önnur fyr- irtæki tilboð í gerð nýs varðskips, Simek í Noregi, Damien í Hollandi og Pinevert í Þýskalandi. Samkvæmt áætlunum verður nýtt varðskip rúmlega 90 metra langt og með 100 til 125 tonna dráttarkraft. Fimm fulltrúar Asmar tóku þátt í samningaviðræðunum. Fyrir hönd Landhelgisgæslunnar tóku Sólmundur Jónsson rekstrarstjóri, Gylfi Gestsson, úr tæknideild, Ingvar Kristjánsson, yfirmaður tæknideildar og Halldór Nellet, yfirmaður gæsluframkvæmda, þátt í viðræðunum. Fyrir hönd Ríkiskaupa sátu Guðmundur I. Guðmundsson, yfir- maður lögfræðisviðs Ríkiskaupa, og Þórhallur samningafundinn en þrír fulltrúar Rolls Royce í Nor- egi, sem að öllum líkindum kemur að hönnun skipsins, tóku einnig þátt í viðræðunum. Danskur skipaverkfræðingur, Carsten Fauner, hefur verið íslenskum stjórnvöldum innan handar vegna kaupanna en að sögn Þórhalls eru samningamál vegna kaupanna flókin og umfangsmikil. „Það er að mörgu að hyggja þegar gengið er frá kaupum eins og þess- um og Carsten hefur mikla tækni- lega þekkingu sem hann getur miðlað til okkar.“ magnush@frettabladid.is Viðræður um smíði nýs varðskips í Chile Samningaviðræður vegna kaupa íslenska ríkisins á nýju varðskipi hófust í gær. Vonast er til þess að samningar náist í lok þessarar viku, samkvæmt upplýsing- um frá Þórhalli Hákonarsyni, umsjónarmanni útboðs vegna kaupa á varðskipi. Frá Fundinum í Gær Áætlað er að samningaviðræður vegna kaupanna á varðskip- inu standi yfir fram á föstudag. Fyrsti dagur viðræðnanna var í gær. FréttaBlaðið/vilHelm Það á ennþá eftir að leysa ýmis álitamál og þessar viðræður eru einfaldlega í eðlilegum farvegi. Þórhallur háKonarSon rÍkiskaupum HeIlbRIGÐIsmál Neytendasamtök- in telja eðlilegt að verslunum sem selja tóbak verði einnig heimilt að selja nikótínlyf. Samtökin telja að slíkt muni leiða til verðlækkunar en nikótínlyf eru alla jafna mjög dýr hér á landi. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum. Breyting- in felst í því að verslunum sem selja tóbak verði einnig heimilt að selja nikótínlyf sem ekki eru lyfseðilsskyld. Neytendasamtökin mæla eindregið með samþykkt frumvarpsins og telja mikilvægt að frumvarpið verði afgreitt á yfirstandandi þingi. - shá neytendasamtökin: Nikótínlyf verði seld í verslunum UpplýsInGAmál Guðjón Axel Guðjónsson, skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, segir úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna kæru Hjörleifs Guttormssonar ekki hafa verið til umræðu innan iðnaðarráðuneytisins. Ráðuneytið fer með málefni Landsvirkjunar sem hefur gert samninga við erlenda álframleiðendur sem leynd hvílir yfir. „Við höfum ekki skoðað þessa niðurstöðu sérstak- lega og þekkjum þess vegna ekki þau lagalegu álitaefni sem fram koma í úrskurðarorðunum. En við eigum eflaust eftir að kynna okkur úrskurðinn og fjalla um hann ef við teljum ástæðu til,“ segir Guðjón Axel. Úrskurðurinn var kveðinn upp 10. nóvember og var Seyðisfjarð- arkaupstað og Íslenskum orkuvirkjunum ehf. gert að aflétta leynd af samningum þeirra á milli sem byggð er á viðskiptahagsmunum. - mh iðnaðarráðuneytið: Hafa ekki skoð- að úrskurðinn FJÖlmIÐlAR Páll Magnússon útvarpsstjóri tilkynnti starfsmönn- um Ríkisútvarpsins í gær að allir starfsmenn stofnunarinnar muni halda réttindum, bæði samkvæmt ráðningarsamningum og kjara- samningum, ef og þegar stofnun- inni verður breytt í opinbert hlutfélag. Eins verður ekki um neinar uppsagnir að ræða. Starfsmenn RÚV skrifuðu útvarpsstjóra opið bréf í liðinni viku þar sem farið var fram á að réttindamál þeirra vegna fyrirhugaðra breytinga yrðu skýrð. Margir starfsmenn óttuðust að áunnin réttindi myndu tapast við breytingarnar og töldu illa fram við sig komið að ekki fengust svör. - shá ríkisútvarpið: Réttindi starfs- fólks haldast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.