Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 6
6 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR KjörKassinn Festirðu bílinn þinn í ófærðinni um helgina? já 14,6% nei 85,4% spurning dagsins í dag Hefurðu séð Mýrina? Segðu skoðun þína á visir.is Föstudagskvöld! Léttir Jazzstandardar úr amerísku söngbókinni! Eyólfur Þorleifsson Saxafón Ólafur Stolzenwald kontrabassi Hin afar rómaða Þakkargjörðarkalkúnaveisla Hótels Cabin verður haldin dagana 23. og 24. nóvember. Í hádeginu fimmtudaginn 23. nóvember. Í hádeginu föstudaginn 24. nóvember Föstudagskvöldið 24. nóvember. Borðapantanir í síma 511 6030 Eftirréttur og kaffi að loknu kalkúnahlaðborði Verð einungis 1.850 kr. 2.550 kr. föstudagskvöld InDónesíA, Ap George W. Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær ekki hafa ákveðið enn hvort fleiri bandarískir hermenn yrðu sendir til Íraks, eða hvort frekar skyldi byrjað á því fljótlega að kveða herliðið þaðan heim. Á blaða- mannafundi í Bogor í Indónesíu, þar sem hann hitti indónesískan starfsbróður sinn, Susilo Bamb- ang Yudhoyono, sagðist Bush vera að bíða ráðgjafar frá yfirstjórn Bandaríkjahers. Bush gerði jafnframt lítið úr þeim miklu mótmælum sem mættu honum við komuna til Indónesíu, fjölmennasta múslima- ríkis heims. „Ég fagna samfélagi þar sem fólk getur frjálst tjáð skoðanir sínar,“ sagði hann. Indón- esía væri undir forystu Yudhoyon- os „dæmi um það hvernig lýðræði og nútímavæðing geta verið val- kostur við öfgahyggju.“ Forsetarnir Bush og Yudhoy- ono skoruðu á fleiri þjóðir að leggja sitt af mörkum til að finna leiðir til farsælla lykta á því ástandi sem nú ríkir í Írak. „Alþjóðasamfélagið verður að taka þátt í að axla ábyrgðina á því að leysa vandamálin í Írak,“ sagði Yudhoyono. Bush var spurður um tillögur bandarískra þingmanna, þar á meðal repúblikanans Johns McCain, um að fjölga í bandaríska herliðinu í Írak til að efla viðleitn- ina til að koma á stöðugleika í landinu, sem Bush hefur áður sagt að verði að hafa tekist áður en her- inn heldur aftur heim. „Ég hef ekki tekið neinar ákvarðanir varð- andi fjölgun í herliðinu, og mun ekki gera það fyrr en ég hef heyrt álit ýmissa aðila,“ svaraði forset- inn. Bush lét þess getið að Peter Pace, forseti bandaríska herráðs- ins, væri að vinna að allsherjar- endurmati á valkostum Banda- ríkjamanna í Íraksmálunum. Óvinsældir Bush í Indónesíu gerðu að verkum að öryggisgæsla var gríðarleg í kring um hálfs dægurs langa heimsókn hans og hávær fjöldamótmæli gegn heim- sókninni settu mjög mark sitt á hana. Frá Indónesíu hélt Bush aftur heim eftir vikulanga ferð um Asíu, en hápunktur hennar var tímamótaheimsókn hans til Víetnams, þar sem hann mætti á leiðtogafund Kyrrahafs- og Asíu- ríkja. audunn@frettabladid.is Brugðið á leiK í Bogor George W. Bush Bandaríkjaforseti skellti sér á bak mótorhjóli er indónesískur starfsbróðir hans, Susilo Bambang Yudhoyono, og eiginkona hans Kristiani Herawati sýndu honum og eiginkonunni Lauru í Bogor-höll við Djakarta í gær. fréttaBLaðið/ap Bush bíður ráðgjaf- ar um valkosti í Írak Eftir viðræður við Indónesíuforseta sagðist Bandaríkjaforseti ekki hafa ákveðið hvort senda bæri fleiri hermenn til Íraks. Hann bíði ráðgjafar um valkosti. Indónes- íuforseti sagði alþjóðasamfélagið verða að taka meiri þátt í að leysa vandann í Írak. sveItARstJóRnARmál Ungir jafnaðarmenn héldu málfund um fyrirhugaða stækkun álvers Alcan í Straumsvík á sunnudag sem um 150 manns sóttu. Leggi fyrirtækið fram tillögu um stækkun munu bæjarbúar greiða atkvæði um hana í fyrstu beinu kosningu um málefni af þessu tagi í sveitarstjórnar- málum hérlendis. Ákvæði um atkvæðagreiðslu bæjarbúa í öllum stærri málum var samþykkt fyrir tveimur árum, og segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, það hafa brotið blað í íbúalýðræði. „Það er hluti af nútímanum að íbúar eigi samráð með stjórnmálamönnum og hefur meðal annars gefist vel í Sviss,“ segir Lúðvík og bætir við: „Ég tel nauðsynlegt að kosið sé um annað en hundahald og áfengismál.“ Áður en tillaga um stækkun verður lögð fram verður þó að nást samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Alcan um deiliskipulag. Lúðvík Geirsson sagði á fundinum að bæjaryfirvöld myndu ekki samþykkja stækkun þynningarsvæða úrgangsefna. „Þetta er ásættanlegt af okkar hálfu, og ég er viss um að það sé hægt að ná löndun,“ segir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan. Samtökin Sól í Straumi verða með fund um málið í kvöld klukkan átta í Suðurgötu 7 í Hafnarfirði. - vg Blað brotið í sögu íslensks íbúalýðræðis í Hafnarfirði: Stækkun álvers í höndum íbúa ófæRÐ „Það hefur verið mikið álag á starfs- fólki en vinna við snjómoksturinn hefur gengið vel,“ segir Guðbjartur Sigfússon, deildarstjóri gatna- og eignaumsýsludeildar Reykjavíkurborgar, en mikill snjór á höfuð- borgarsvæðinu hefur gert íbúum lífið leitt undanfarna daga. Að sögn Guðbjarts hefur greiðlega gengið að ryðja götur bæjarins undanfarna daga en nokkur ófærð var á öllu höfuðborgarsvæðinu á sunnudag eftir mikla snjókomu aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt áætlunum gerir Reykjavíkur- borg ráð fyrir um 190 til 200 milljónum króna í snjómokstur á þessu ári. „Á milli 70 og 80 starfsmenn hafa unnið að því að halda götum Reykjavíkurborgar greiðfærum. Það hefur gengið vel en á sunnudag var þó nokkur ófærð í bænum. Kostnaðurinn við snjómoksturinn er fljótur að hækka við aðstæður eins og nú hafa skapast,“ segir Guðbjartur. Mikið álag hefur verið á starfsmönnum dekkjaverkstæða undanfarna daga en margir vöknuðu upp við vondan draum á sunnudag eftir að snjó hafði kyngt niður. „Það hefur verið alltof mikið að gera hjá okkur því viðskiptavinirnir hafa þurft í bíða í allt að þrjár klukkustundir,“ segir Sveinlaugur Hannesson, verkstjóri á dekkjaverkstæðinu Nýbarða í Garðabæ, en þar hefur verið löng biðröð eftir þjónustu undanfarna daga. „Það er allt á fullu hjá okkur þessa dagana og hefur í rauninni verið undanfarnar þrjár vikur. En þó að það sé mikið álag á starfsfólk- inu þá hefur verið rífandi stemning hér á staðnum.“ - mh Mikið álag hefur verið starfsfólki dekkjaverkstæða og snjómoksturstækja: Gengið vel þrátt fyrir álag Biðröð við nýBarða Starfsfólk á dekkjaverkstæðum hefur verið undir miklu álagi síðustu daga. fréttaBLaðið/viLHeLm Ég tel nauðsynlegt að kosið sé um annað en hundahald og áfengismál. lúðvíK geirsson BæjarStjóri

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.