Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 12
12 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Alþjóðasamband
líkamsræktarmanna, sem heldur
flestar fitness-keppnir á Íslandi,
greiðir nokkur hundruð þúsund í
að lyfjaprófa þátttakendur keppn-
anna á vegum sambandsins. Einar
Guðmann, yfirdómari hjá Alþjóða-
sambandi líkamsræktarmanna,
segir að síðustu sjö ár hafi átján
prósent allra keppenda í fitness-
keppnum á vegum sambandsins
verið lyfjaprófaðir.
Einar segir að á hverju Íslands-
móti í fitness séu að jafnaði tekin
fjögur til átta lyfjapróf og alls hafi
45 lyfjapróf verið gerð á 246 kepp-
endum á síðustu sjö árum. „Þetta
er mjög hátt hlutfall og með því
hæsta sem gerist í einstakri
íþróttagrein. Þrír keppendur hafa
fallið á lyfjaprófi vegna steranotk-
unar frá upphafi mælinga hér á
landi en það jafngildir um einu
prósenti.“ Einar segir keppendur
sjálfa óska eftir lyfjaprófum en
lyfjapróf er skilyrði fyrir þátttöku
á mótum erlendis á vegum
Alþjóðasambands líkamsræktar-
manna. Einar segir að leitast hafi
verið við að eiga gott samstarf við
ÍSÍ um framkvæmd lyfjaprófa og
að samstarfið hafi gengið hnökra-
laust til þessa.
Skúli Skúlason, formaður lyfja-
ráðs ÍSÍ, segist hafa farið rang-
lega með tölur þegar hann fullyrti
að meirihluti keppenda í fitness-
keppnum féllu á lyfjaprófum eins
og fram kom í laugardagsblaði
Fréttablaðsins. En þar kom fram
að sextíu prósent þátttakenda í
fitnesskeppnum hér á landi féllu á
lyfjaprófum. „Það sem af er ári
hafa fjórir þátttakendur í fitness-
keppnum verið lyfjaprófaðir og
enginn þeirra hefur fallið. Það er
hins vegar staðreynd að á einu
fitnessmóti féll helmingur þeirra
keppenda sem var prófaður.“ Skúli
fékkst hins vegar ekki til að gefa
upp á hvaða móti þetta hefði
verið.
„Við hjá ÍSÍ vildum gjarnan
gera fleiri lyfjapróf á þátttakend-
um fitnesskeppna en samstarf við
mótsaðila er misgott og mótshald-
arar eru misduglegir við að prófa
sitt fólk.“
Skúli segir að í Noregi og Dan-
mörku hafi fengist heimild fyrir
því að lyfjaprófa á líkamsræktar-
stöðvum og að það sé leið sem
lyfjanefnd ÍSÍ hafi áhuga á að
skoða en það verði að gerast í sam-
vinnu við stöðvarnar.
hugrun@frettabladid.is
Enginn fitness-
keppandi
hefur fallið
Formaður lyfjaráðs segir að þar sem lítill hluti þátt-
takenda í fitnesskeppnum hér á landi fari í lyfjapróf
sé erfitt að áætla lyfjanotkun í greininni. Hann
segir samstarf við mótsaðila fitness-keppna misgott.
Fitness-mót í LaugardaLshöLL Enginn fallið á lyfjaprófi í fitness-móti á þessu ári.
NEFNDIR Stjórnsýslu- og úrskurðar-
nefndum hefur fjölgað úr átta í 58
á síðustu þrjátíu árum og
afgreiðslutími þeirra hefur lengst.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri athugun sem
Umboðsmaður Alþingis hefur sent
frá sér.
Niðurstöður athugunarinnar
byggjast á upplýsingum sem feng-
ust frá 48 nefndum um störf þeirra
á tveimur sex mánaða tímabilum,
annars vegar frá 1. nóvember 2003
til 30. apríl 2004 og hins vegar frá
1. janúar 2005 til 30. júní 2006.
Afgreiðslutími nefnda er mislang-
ur en algengast er að hann sé á bil-
inu fjórar vikur til þrír mánuðir. Þá
starfa sextán nefndir án sérstakra
lagaákvæða eða reglna um
afgreiðslutíma.
Úttekt á nefndum á ofangreind-
um tímabilum sýnir að málsmeð-
ferðartími sé að lengjast. Á fyrra
tímabilinu afgreiddu nefndirnar
62,5 prósent mála innan sex mán-
aða en á seinna tímabilinu var hlut-
fallið 56,7 prósent. Þá er mikill
misbrestur á því að nefndir fylgi
fyrirmælum stjórnsýslulaga um að
tilkynna málsaðilum þegar tafir
verða á vinnslu mála. Aðeins var
tilkynnt um tafir í tíunda hluta
þeirra mála sem afgreidd voru á
lengri tíma en frestur samkvæmt
lögum eða reglum segir til um. - hs
Stjórnsýslu- og úrskurðarnefndir á síðustu 30 árum:
Fjöldinn sjöfaldast
Við hjá ÍSÍ vildum
gjarnan gera fleiri
lyfjapróf á þátttakendum
fitness-keppna en samstarf við
mótsaðila er misgott og móts-
haldarar eru misduglegir við að
prófa sitt fólk.
skúLi skúLason
Formaður lyFjaráðs ÍsÍ
einar guðmannskúLi skúLason
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sparisjóðurinn og viðskiptavinir hans sameinast nú um að styrkja samtök sem vinna
að úrbótum í geðheilbrigðismálum. Fjórði hver Íslendingur á við geðræn vandamál að
stríða einhverntíma á ævinni en með réttri meðhöndlun og stuðningi eru yfirgnæfandi
líkur á að fólk nái bata.
Við bjóðum viðskiptavinum Sparisjóðsins að velja eitt af þeim átta félögum sem við
höfum ákveðið að styrkja í ár. Þá mun Sparisjóðurinn greiða 1000 kr. fyrir hvern þann
viðskiptavin sem tekur þátt. Auk þess geta allir, viðskiptavinir og aðrir, lagt málefninu
lið og bætt við upphæð að eigin vali. Farðu inn á www.spar.is eða komdu í næsta
Sparisjóð og gefðu þinn styrk.
Það eru geðveiktgóðir
englar á meðal okkar