Fréttablaðið - 21.11.2006, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 13
ÍslenskUkennslA Fjölmörg atvinnu-
fyrirtæki kaupa íslenskunámskeið
fyrir fólkið sitt og má gera ráð
fyrir að hátt í eitt þúsund útlend-
ingar hafi verið á starfstengdum
íslenskunámskeiðum á vinnustöð-
um sínum nú í haust. Námskeiðin
eru fyrst og fremst á vegum Mímis
símenntunar og Alþjóðahúss.
Fyrirtækin koma úr mörgum
geirum atvinnulífsins, þannig hafa
bakarí, fiskvinnslufyrirtæki,
hjúkrunarheimili, verktakafyrir-
tæki, lagerfyrirtæki, flutningafyr-
irtæki og fólksflutningafyrirtæki
fengið námskeið fyrir starfsfólk
sitt svo dæmi séu nefnd. Laufey
Eyjólfsdóttir er framkvæmda-
stjóri Toppfisks. Toppfiskur hefur
keypt tvö íslenskunámskeið fyrir
starfsfólk sitt á þessu ári og hefst
það þriðja fljótlega. Námskeiðin
eru haldin á vinnutíma í húsnæði
fyrirtækisins.
Laufey segir að Toppfiskur sé
með sjötíu og fimm starfsmenn
frá Póllandi, Filippseyjum, Taí-
landi, Úkraínu, Ghana og Víetnam.
Margir vilji læra íslensku og sér-
staklega sé fólk frá Asíu duglegt
við námið. Henni finnst sjálfsagt
að fólk læri tungumálið, að
minnsta kosti til að geta bjargað
sér, en segir ekki alla vilja læra
íslensku og auðvitað neyði hún
engan.
„Ég hef verið spurð að því af
hverju ég læri ekki pólsku en af
hverju skyldi ég þá ekki læra taí-
lensku, úkraínsku eða víet-
nömsku? Ég myndi læra pólsku ef
ég byggi í Póllandi.“ - ghs
Myndi læra pólsku „Ég myndi læra
pólsku ef ég byggi í Póllandi,“ segir
Laufey Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
Toppfisks.
Fjölmörg fyrirtæki kaupa íslenskunámskeið fyrir erlent starfsfólk sitt:
Enginn neyddur á námskeið
stJóRnmál Ungliðahreyfing
Samfylkingar-
innar harmar
þá ákvörðun
Valdimars L.
Friðrikssonar
að sega skilið
við flokkinn.
Í ályktun
undrast
ungliðarnir að
Valdimar, sem
er forystumað-
ur í íþrótta-
starfi, kunni ekki að taka tapi
betur en raun ber vitni og sjái
ekki sóma sinn í að láta af
þingmennsku fyrst hann telji sig
ekki eiga lengur samleið með
flokknum.
Er því um leið beint til annarra
sem gáfu kost á sér í prófkjörum
Samfylkingarinnar að virða
niðurstöður þeirra. - bþs
Ungir jafnaðarmenn:
Valdimar ætti
að hætta á þingi
ValdiMar l.
Friðriksson
UmfeRÐ „Verktakar finna til
samfélagslegrar ábyrgðar og eru
fullir vilja til að auka öryggi og
merkingar við vegaframkvæmd-
ir. Að þeirra mati eru núverandi
kröfur of slakar,“ segir í ályktun
félags verktaka.
„Í þessum málaflokki skiptir öllu
máli að menn viðurkenni að ekki
hefur verið lögð nógu mikil
áhersla á öryggismál og fremur
kappkostað að leita blóraböggla
þegar eitthvað hefur farið
úrskeiðis,“ segja verktakarnir
sem átelja þá „sem ekkert leggja
til umræðunnar annað en að vísa
til ábyrgðar annarra.“ Þeir átelja
einnig þá sem stunda upphrópan-
ir og sleggjudóma. - gar
Verktakar vilja bragarbót:
Auka verður
áherslu á öryggi
reykjanesbraut Banaslysið, sem
varð fyrir rúmri viku, hefur hrint af stað
umræðu um merkingar vegna vegafram-
kvæmda. frÉTTaBLaðið/viLhELm
fJARskIPtI Fjarskiptafyrirtækið
Vodafone hefur eflt GSM-kerfi
sitt, en fyrirtækið hefur lokið við
uppfærslu á öllum símstöðvum í
kerfinu. Með breytingunni aukast
gæði þeirrar þjónustu sem
fyrirtækið veitir.
Vodafone hefur auk þess þétt
GSM-kerfið því settir hafa verið
upp sendar í Öxnadal, Grenivík
og við Hrafnagil.
Auk þess er búið að bæta við
þremur sendum á Akureyri og þá
er Vodafone að ljúka við uppsetn-
ingu á GSM-sendi austan Þjórsár
sem bætir sambandið við
þjóðveginn.
- ifv
Bætt símaþjónusta:
Vodafone eflir
GSM-kerfið
Í sunnudagsblaði fréttablaðsins
birtist viðtal við Evu Laufeyju Stefáns-
dóttur ljósmóður. Eva var rangfeðruð í
greininni en hún var sögð Steingríms-
dóttir. Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
leiðrétting
hjól fóru undan flutningabifreið
sem var á leið yfir Borgarfjarðarbrú á
sunnudagskvöldið. Bíllinn sat fastur á
brúnni í á þriðja klukkutíma og urðu
nokkrar tafir á umferð af þessum
sökum. Engan sakaði.
lögregluFrétt
bíll fastur á brú
Stjórn og ráðgjafaráð SI efna til framhaldsfundar um náttúruvernd og nýtingu
náttúruauðlinda í ljósi nýrrar skýrslu nefndar iðnaðarráðherra um málið.
Staður: Grand Hótel Reykjavík
Dagur: Þriðjudaginn 21. nóvember
Stund: Frá 15:00 til 17:00
Fundurinn er öllum opinn.
Félagsmenn SI eru eindregið hvattir til að koma.
Fundarstjóri:
Helgi Magnússon formaður SI
umhverfisráðherra
formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
stjórnarformaður BM Vallár ehf.
Jónína Bjartmarz
Árni Finnsson
Víglundur Þorsteinsson
Stjórnandi: Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri SI
Pallborðsumræður ræðumanna
Dagskrá:
Er sátt í sjónmáli?
Opinn fundur Samtaka iðnaðarins um nýja skýrslu auðlindanefndar:
Framtíðarsýn um verndun og nýtingu auðlinda í jörðu og vatnsafls""
GeoRGÍA, AP Georgía gæti hindrað
aðild Rússlands að Alþjóðavið-
skiptastofnuninni WTO, að sögn
georgískra yfirvalda.
Rússar og Bandaríkjamenn
undirrituðu um helgina samning,
sem ætlað var að ryðja úr vegi
seinustu hindruninni í 13 ára
baráttu Rússa fyrir aðild að
stofnuninni. Georgía er aðili að
WTO og hefur gert tvíhliða
viðskiptasamning við Rússa, sem
Rússar þurfa, vilji þeir aðild.
Georgíumenn hóta að rifta
samningnum ef Rússar halda
áfram efnahagsþvingunum og
láta ekki af viðskiptum við Abkas-
íu og Suður-Ossetíu. - sgj
Aðild Rússa að WTO ógnað:
Georgía getur
hindrað aðild