Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 16
16 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VInnUmARkAÐUR Launamaður sem
er kominn yfir 45 ára aldur og
hefur margra ára starfsreynslu
sem smiður hjá Landspítala -
háskólasjúkrahúsi, hefur mun
lægri dagvinnulaun en sambæri-
legur smiður hjá Reykjavíkur-
borg. Óánægja er meðal iðnaðar-
manna LSH, ekki síst þeirra sem
eru launamenn, með kjörin.
Smiður hjá LSH, sem er orðinn
45 ára, hefur 191 þúsund krónur í
dagvinnulaun. Þetta er eitt þúsund
krónum hærri laun en smiður með
eins árs starfsreynslu fengi hjá
borginni. Ef smiðurinn, sem er
orðinn 45 ára, færir sig frá LSH til
borgarinnar hækkar hann um
minnst 25 þúsund krónur, líklega
30 þúsund, miðað við 215-220 þús-
und krónur í dagvinnulaun þar.
Hjá borginni er maðurinn reyndar
kominn í hæsta launaflokk tíu
árum fyrr, eða við 35 ára aldur.
Aðeins er miðað við taxtakaup
og ekki tekið tillit til fastrar yfir-
vinnu. Ef tekið er tillit til fastrar
yfirvinnu eru laun smiðsins hjá
LSH um 230 þúsund á mánuði en
hjá borginni fengi hann um 260
þúsund á mánuði að fastri yfir-
vinnu meðtalinni.
„Við erum allir undirmálsmenn
miðað við aðra Íslendinga,“ segir
Guðmundur Guðnason, aðstoðar-
verkstjóri hjá LSH. „Það gildir
það sama um alla. Spítalinn reynir
að halda niðri kaupinu okkar og þá
gildir einu hvaða starfsheiti menn
hafa.“
Guðmundur rifjar upp að þeir
hafi fengið eins launaflokks hækk-
un eftir samkomulag ASÍ og SA í
sumar. Það hafi gefið fimm til sex
þúsund krónur. Í sömu atrennu
var skipt út fimm yfirvinnutímum
með engri vinnuskyldu fyrir
tveggja launaflokka hækkun.
Þetta gerði um 16 þúsund króna
hækkun í allt, eða um átta þúsund
króna raunhækkun á mánuði, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Byggingadeild LSH telur um
fjörutíu og fimm fasta starfs-
menn, þar af eru iðnaðarmennirn-
ir, sem eru launamenn, um helm-
ingur starfsmanna. Stærstu hópar
iðnaðarmanna eru rafvirkjar, vél-
stjórar og trésmiðir. Aðalsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri tækni
og eigna hjá LSH, segir að launa-
mennirnir fái greitt samkvæmt
töxtum. „Við teljum okkur greiða
sambærileg laun og aðrar ríkis-
stofnanir,“ segir hann.
Til viðbótar eru iðnaðarmenn
sem ráðnir eru sem verktakar.
Þeir eiga nú í samningaviðræðum
við LSH og hafa farið fram á 27
prósenta hækkun.
ghs@frettabladid.is
Óánægðir með tug-
þúsunda launamun
Iðnaðarmaður í launavinnu hjá Landspítalanum hefur 25-30 þúsund krónum
lægri laun en sambærilegur iðnaðarmaður hjá borginni. „Við erum allir undir-
málsmenn,“ segir aðstoðarverkstjóri.
LandspítaLinn í fossvogi Iðnaðarmaður í launavinnu hjá Landspítalanum fær
um 30 þúsund krónum lægri dagvinnulaun en sambærilegur iðnaðarmaður hjá
borginni. „Við teljum okkur greiða sambærileg laun og aðrar ríkisstofnanir,“ segir
Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri tækni og eigna hjá Landspítalanum.
Launamunur hjá ríki og borg
smiður 20-25 ára 45 ára og eldri
LSH 182 þúsund 191 þúsund
Borgin 190 þúsund 215-220 þúsund
BoRGARRáÐ Það er ekki rétt sem
Dagur B. Eggertsson hélt fram á
blaðamannafundi í Ráðhúsinu í
síðustu viku að Frjálslyndi flokk-
urinn hefði ekki haft tíma til að
taka þátt í mótun framkvæmdaá-
ætlunar minnihlutans í borgarráði
um málefni innflytjenda í Reykja-
vík. Frjálslyndir töldu sig vera í
fullu samstarfi við hina flokkana
að áætluninni, segir Margrét
Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
flokksins.
„Mér kom það því á óvart að þess-
ir flokkar voru búnir að setja allt í
fullan gang í innflytjendamálum
án þess að tala
við okkur. Við
vorum tilbúin
með tillögur
þann 6. nóv-
ember og ætl-
uðum að
leggja þær í
púkkið með
þeim. Á
hádegi þann
14. nóvember,
daginn sem
þau kynntu sínar tillögur, hitti ég
Dag og hann sagði mér að þau ætl-
uðu að gera þetta án okkar. Mér
skildist á Degi að þeim þætti
óþægilegt að hafa okkur með,
vegna umræðunnar síðustu daga á
undan.“
Dagur B. Eggertsson segir það
rétt að Frjálslynda flokknum hafi
ekki verið boðið til samstarfsins
þegar til kom. „Það er greinilegt
að það er ekki ein rödd um málefni
innflytjenda innan Frjálslynda
flokksins og þau þurfa bara að
hreinsa loftið hjá sér áður en þau
ganga til samstarfs við aðra
flokka. En það er líka rétt að þau
höfðu ekki tíma til að koma á fund-
ina framan af, í september.“ - kóþ
Margrét Sverrisdóttir er ósátt við ummæli Dags B. Eggertssonar:
Frjálslyndir vildu vera með
margrét
sverrisdóttir
FRIÐARGæslAn Hlutverk Íslend-
inga hefur aldrei verið veiga-
meira á Srí Lanka og það er þessa
dagana. Þau Norðurlönd sem til-
heyra ESB þurftu að hverfa á
brott í septembermánuði og síðan
hafa Norðmenn og Íslendingar
borið allan þungann af eftirlits-
sveitunum, SLMM. Jón Óskar Sól-
nes tók þá við stöðu framkvæmda-
stjóra höfuðstöðvanna í
höfuðborginni, Kólombó, og Þor-
finnur Ómarsson hefur verið tals-
maður sveitanna.
Sjö manns, eða þriðjungur eftir-
litsmanna SLMM, eru íslenskir,
og helmingur þeirra eru konur.
„Við höfum fjölgað nokkuð í hópn-
um, sérstaklega fólki úr hópi lög-
reglumanna. Reynsla lögreglu-
manna er mjög góður grunnur í
þetta starf, því það er töluverð
rannsóknarvinna sem þarf að
inna af hendi. Til dæmis ef ein-
hver er myrtur þá þarf að rann-
saka það, tala við vitni og setja
saman skýrslu, sem fer í gagna-
banka og síðan gefum við út yfir-
lýsingu um hvernig og hver braut
vopnahléið,“ segir Þorfinnur.
Einnig eru þrír Íslendingar í
höfuðstöðvunum í Kólombó.
„Íslendingar á Srí Lanka hafa
aldrei verið jafn áberandi og
margir og þeir eru núna,“ segir
Þorfinnur og tekur fram að þarna
séu engin jeppagengi. „ Þetta er
fyrst og fremst borgaralegt verk-
efni sem við sinnum.“ - kóþ
Norræna eftirlitssveitin á Srí Lanka:
Aldrei fleiri Íslendingar á vakt
Þorfinnur ómarsson Verkefnin á Sri
Lanka eru fyrst og fremst borgaraleg að
sögn Þorfinns.
Bankastræti • Fjörður • Kringlan • Laugavegur 178 • Smáralind
DIGIMAX L50
Kr. 22.990,-kr. 29.990 Kr. 0,-kr. 7.950
1112
7.000AFSLÁTTUR
Takmarkað magn
5 M.pixlar
39–109 mm linsa
2,5” hágæða LCD-skjár
ISO 50–400
10 sek. Voice memo á mynd
Margar forstillingar og timer
Vídeóupptaka
Lithium-rafhlaða
Pictbridge-staðall
Frír GSM símiNOKIA 1112 fylgir með kaupum áSamsung Digimax L50
Kr. 35.095,-kr. 38.995
3.900AFSLÁTTUR
6233
2 mp myndavél
FM útvarp
EDGE
Bluetooth
Allt að 340 klst biðtími
110 gr
Kr. 35.995,-kr. 39.995
4.000AFSLÁTTUR
5500 sport
2 mp myndavél
MMS
EDGE
Innrautt
Bluetooth
FM útvarp
103 gr
razz
razz handfrjáls
búnaður fylgir
frítt með*
Notaðu razz til að lífga upp á samtalið
Þú bætir við umhverfishljóðum, Beavis, tromum ofl.
við eða inn í samtalið.
* RAZZ handfrjáls búnaður passar bara á Nokia Pop Port síma
Kr. 6.990,-
Handfrjáls búnaður
Bluetooth
250 klst biðtími
10 klst taltími
18 gr að þyngd
Hringduog myndaðu
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
te
xt
a
og
m
yn
da
br
en
gl
. V
ör
ur
g
et
a
ve
rið
u
pp
se
ld
ar
Auglýsingin gildir til 24. nóvember