Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 18
 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR18 nær og fjær „orðrétt“ Það styttist til jóla. Stór hluti verslunar með bækur og plötur fer fram á næstu vikum og því eru margir komnir með gamalkunnug- an skjálfta í hnén. Það er mikið í húfi og spurningin er bara: verða þetta bókajól eða plötujól? „Ég held að bækur og plötur séu ekki í samkeppni lengur því núna í velmeguninni þykir fullorðnu fólki of ódýrt að gefa plötur í jóla- gjöf,“ segir Kristján B. Jónasson, formaður félags bókaútgefenda. „Á tilboði eru plötur á kannski 1.500 kall sem er það sama og fólk er að eyða í hádegismat. Ég held því að fólk gefi krökkum helst plötur eða fjarskyldum ættingj- um. Við fundum að minnsta kosti fyrir mikilli gleði í fyrra þegar við gáfum út Atlasinn sem kostaði um 20.000 út úr búð. Fólk var glatt yfir því að loksins var komin dýr bókagjöf.“ Kristján segir bókasöluna fyrir jólin nema á milli 500 til 700 millj- ónum króna, gróflega áætlað. „Heildarsala bóka er þó vel yfir tveir milljarðar svo jólasalan er ekki nema um þriðjungur eða fjórðungur af heildarsölunni. Inni í þessu eru reyndar kennslubæk- urnar. Jólin skipta þó miklu fyrir skáldsögur og ævisögur.“ Bókatíð- indi eru komin út og á leið inn á hvert heimili. „Plötur og bækur eru í beinni samkeppni og þeir sem halda öðru fram eru að tala gegn betri vitund,“ segir Jónatan Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Félags hljómplötu- framleiðanda. Hann segir síðustu viku hafa verið fyrstu alvöru sölu- vikuna og að salan hafi farið seinna í gang en vanalega. Á árum áður voru síðustu tveir mánuðir ársins aðalsölutími íslenskra hljómplatna með um 70 pró- sent af heild- inni, en nú eru þessir tveir mánuðir komn- ir niður í 45-50 prósent. „Fyrir nokkrum ára- tugum voru íslenskar plöt- ur og bækur á sama verði og verðið fylgdi því sem ein flaska af íslensku brennivíni kostaði,“ segir Jónatan. „Fyrir svona 15 árum breyttist þetta þegar verð erlendra platna staðnaði. Íslensku plöt- urnar þurftu að taka viðmið af því. Á meðan hefur verð bóka fylgt almennu verðlagi í landinu. Þetta kemur niður á tónlistarfólki sem fær minna fyrir sinn snúð en áður. Mun stærri hluti innkomunnar fer nú í framleiðslu- og kynningar- kostnað en áður. Svo er mjög órétt- látt að virðisauki eigi ekki að lækka á plötum eins og á bókum, það geta allir séð út frá samkeppn- issjónarmiðum. Við trúum ekki öðru en að þessu verði breytt.“ Plötutíðindi eru komin í prent- un og á leiðinni í hvert hús. Þá er væntanleg í loftið sérstök útvarps- stöð á vegum Félags tónskálda og textahöfunda, FTT, sem spilar ein- göngu nýtt íslenskt efni. Stöðin verður á þeirri tíðni sem BBC hefur sent út á hérlendis, FM 94,3. gunnar@frettabladid.is Eðlilegt framhald „Við lítum á þetta sem eðlilegt framhald af því að þrælunum var veitt frelsi og konur fengu réttindi sín. Núna er komið að réttindum dýranna.“ Marianne thieMe, leiðtogi hollenska dýraflokksins, seM berst fyrir réttinduM dýra. Morgunblaðið 20. nóvember. Óvenjulegt ár „Ég þakka þeim af auðmýkt sem hafa stutt mig á þessu óvenjulega ári sem ég hef lifað núna“” ÓMar ragnarsson þegar hann hafði tekið við edduverðlaun- uM seM vinsælasti sjÓnvarps- Maður ársins. Fréttablaðið 20. nóvember. „ég sá nú ekki mikið, kannski tíu sekúndur, en það sem ég sá var hund- leiðinlegt,“ segir þorsteinn guðmunds- son leikari um edduhátíðina sem var haldin á sunnudags- kvöldið í áttunda skipti. þorsteinn var sem kunnugt er kynnir hátíðar- innar í fyrra en nú sáu ragnhildur steinunn jónsdóttir og pétur jóhann sigfússon um þá deild. „á þessum tíu sekúndum sá ég strax að það voru gerð sömu tæknilegu mistök og þegar ég var kynnir, það gleymdist aftur að mæka upp salinn. það kom því út eins og kynnirinn væri ekkert skemmti- legur. hann sagði brandara og allir í salnum hlógu en það heyrði það enginn sem var heima hjá sér að horfa á sjónvarpið. ég legg annars til að það verði stofnaður nýr verðlaunaflokkur sem heitir baltasar kormákur. það verður fullt af fólki tilnefnt í hann en baltasar kormákur vinnur alltaf allt. að lokum vil ég bara að segja að allir stjórnmálamenn eru hálfvitar.“ SJónARhóll edduVerðlauNiN Nýr verð- launaflokkur þorsteiNN guðMuNdssoN leikari n Mugison sat í Ísafjarðarbíói og horfði á Mýrina á sunnudags- kvöldið þegar edduverðlaunin voru afhent. þegar ljóst var að hann hafði unnið fyrir tónlistina í Mýrinni og a little trip to heaven brutust út fagnaðarlæti. aðrir vest- firðingar voru líka sigursælir. lýður árnason á flateyri vann í flokki heimildamynda fyrir skuggabörn, ragnar bragason frá súðavík var verðlaunaður fyrir handrit myndarinnar börn og jóhannes kr. kristj- ánsson, ættaður frá flateyri, er ritstjóri kompáss, sem valinn var sjónvarpsþáttur árs- ins. bb.is greindi frá. EDDAn: sigursælir VestFirðiNgar „ég opnaði sýningu á reyðarfirði á sunnu- daginn,“ segir birgir breiðdal myndlist- armaður sem að venju er kallaður biggi. „hún er á nýju kaffihúsi sem er líka gistiheimili og heitir hjá Marlín. ég sýni blandað efni, gömul verk og ný. annars er mikið um að vera um þessar mundir því við fjölskyldan erum að flytja til Ítalíu í dag. við erum að flytja í þriggja hæða turnhús í bæ við Comovatn. þetta er á svipuðum slóðum og george Clooney keypti sér hús fyrir tveim árum síðan og mér skilst að tom Cruise hafi einnig fjárfest í húsi við vatnið. Mér er sagt að íbúðaverð hafi tvöfaldast síðan Clooney keypti sér hús þarna. það er draumurinn að vera á Ítalíu sirka áttatíu prósent af árinu og á Íslandi hin tut- tugu. taka svona íslensku hápunktana, jólin og svo framvegis. húsið er síðan sirka árið 1300 en það eru reyndar bara fimmtíu sentimetra útveggir eftir af því sem er upprunalegt. allt hitt er nýtt og það verður gaman að koma sér fyrir. ég snéri mér algjörlega að myndlistinni fyrir tveimur árum en hef einnig verið að læra arkitektúr í Mílanó. nú stefni ég að því að klára arkitektúrinn og halda áfram að mála. það eru sýningar bæði á Ítalíu og hérna heima í farvatn- inu. nú og svo var ég að eignast mína aðra dóttur í október og ég og konan erum nýbúin að halda upp á ullarbrúðkaupið. það er því allt rosalega gott að frétta og spennandi tímar í vændum.“ hVað er að FrÉtta? birgir breiðdal MyndlistarMaður Flytur á slóðir George Clooney KristjáN B. jóNassoN jóNataN garðarssoN Bækur eða plötur undir jólatréð Fyrir ömmu: fríða á. sigurðardóttir - Í húsi júlíu selma og hanna - sögur af konum Fyrir afa: árni þórarinsson og páll kristinn pálsson - far- þeginn Óskar pétursson - ástarsól Fyrir mömmu: paulo Coelho - hugarfjötur josh groban - awake Fyrir pabba: ævar Örn jósefs- son - sá yðar sem syndlaus er damien rice - 9 Fyrir stóra bróð- ur: arnaldur indriða- son - konungsbók shadow parade - dubious intentions Fyrir stóru systur: khaled hosseini - flugdrekahlauparinn Charlotte gainsbourg - 5:55 Fyrir litla bróður: doktor ernest drake - dreka- fræði, handbók drekaáhugamanna ampop - sail to the moon Fyrir litlu systur: angela Wilkes - ver- öldin okkar. alfræði handa börnum nylon - nylon jólagjöFiN í ár* allt sNýst uM PaKKaNa eða öllu heldur hvað í þeim er. * samkvæmt spám ónafngreindra starfsmanna í bóka- og plötubúð. Halldór Sigdórsson aðstoðarverslunarstjóri hjá RV R V 62 19 A Þegar gæðin skipta máli Lotus Professional borðpappírsvörur Á t ilbo ði í nó vem ber 20 06 Lot us L inSt yle serv íett ur, disk am ottu r, „ löb era r“ og dúk ar Til hátíðabrigða Í verslun RV að Réttarhálsi eru nú á tilboði Lotus LinStyle dúkar og servíettur í mörgum litum. Einnig eru á tilboði ýmsar gerðir af servíettum, diskamottum og „löberum“ með jólamynstri. Takmarkað magn er í boði af sumum jólavarningi. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.