Fréttablaðið - 21.11.2006, Qupperneq 28
21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR4
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir býr
til smyrsl, salva og áburð úr
íslenskum jurtum sem hún
tínir á heimslóðum sínum á
Vestfjörðum.
Villimey er vörumerkið sem Aðal-
björg Þorsteinsdóttir notar fyrir
smyrsl sín og áburð, og vísar nafn-
ið til hennar sjálfrar. Á hverju
sumri heldur hún til fjalla í
nágrenni við heimili sitt á Tálkna-
firði og tínir villtar jurtir fram á
rauða nótt ásamt dóttur sinni og
fleirum úr fjölskyldunni. Þegar
hún kemur aftur til byggða útbýr
hún ýmiss konar smyrsl, salva og
áburði, sem sumir viðskiptavina
hennar telja vinna algert krafta-
verk á meinum eins og exemi og
fleiru. Bera þau öll skemmtileg
nöfn eins og sára-galdur, húð-gald-
ur og bossa-galdur.
Sára-Galdur er til dæmis góður
á minniháttar sár, brunasár og
skrámur, svo hefur hann verið
notaður útvortis á gyllinæð með
ágætum árangri og húð-galdur
reynist kláðastillandi, mýkjandi
og græðandi á exem, sólarexem,
psoriasis og aðra húðkvilla.
„Ætli ég hafi þetta ekki bara í
genunum,“ segir Aðalbjörg
aðspurð um áhugann á jurtunum.
Hún segist jafnframt ekki hafa
ætlað sér að standa í framleiðslu á
kremum. „Í upphafi útbjó ég þessi
smyrsl bara fyrir mig og fjöl-
skylduna. Ég eignaðist þrjár stelp-
ur á fjórum árum og þurfti því
mikið að nota bossakrem. Ég fann
ekkert sem mér líkaði og endaði á
að útbúa mitt eigið, fór út í náttúr-
una til að finna það sem ég leitaði
að,“ segir hún og bætir við að þetta
hafi síðan undið upp á sig og henni
hálfpartinn att út í frekari fram-
leiðslu sökum eftirspurnar.
„Ég hef tínt jurtirnar mjög lengi
og notað þær meðal annars í brauð
og mat. Auk þess hef ég sótt nám-
skeið og lesið mér mikið til um
jurtirnar. Ég nota engin rotvarnar-
eða lyktarefni og finnst mér að
fólk eigi að vera vakandi fyrir því
hvað það er að bera á sig. Sérstak-
lega barnshafandi konur. Allt það
sem konur bera á sig smitast út í
blóðið og hefur áhrif á fóstrið,“
segir Aðalbjörg. „Sjálf hefði ég
viljað vera upplýstari um þessi
mál fyrir tuttugu árum,“ segir
hún.
Frekari upplýsingar er hægt að
finna á vefsíðunni villimey.is, en
vörurnar fást í öllum helstu heilsu-
vöruverslunum landsins.
kristineva@frettabladid.is
Villimey á Vestfjörðum
Bossa-galdur bjó Aðalbjörg til þegar hún
var sjállf með lítil börn og taldi sig ekki
finna neitt krem sem var nægilega gott.
Sumir viðskiptavina Aðalbjargar telja Villimeyjarvörurnar gera kraftaverk.
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir með alla framleiðslu Villimeyjar. Hún vinnur nú að því að fá lífræna vottun frá Túni.
Vísindamenn við
Wellman-myndlækn-
ingastofnunina á
Massachusetts Gen-
eral Hospital (MGH)
hafa þróað tækni sem
gerir læknum kleyft að
mynda æðar og garnir í
þrívídd.
Tæknin byggir á ljósleið-
araþráði og nýjum leis-
ergeisla sem stöðugt
breytir afstöðu sinni og
bylgjulengd ljóssins. Hún
hefur verið reynd á lif-
andi svínum þar sem hún
gaf góða raun.
Auk þess að gefa góða mynd af
innviðum æðakerfisins eru tækin
mun fljótvirkari en fyrirrennar-
arnir. Það tók vís-
indamennina ein-
ungis sex mínútur
að kortleggja 4,5
sentimetra langan
æðabút. Þetta gerir
læknum kleyft að
leita uppi krabba-
mein og aðrar
skemmdir á mun
skilvirkari hátt og
hætt verður að
„leita að nál í hey-
stakki,“ eins og
segir í fréttatil-
kynningu frá stofn-
uninni.
Undirbúningur
er hafinn að frekari
tilraunum og innan
skamms ætti tæknin að vera
komin á það stig að hægt sé að
nota hana á mannfólk.
-tg
Æðaveggir í þrívídd
Vonir standa til að nýja
tæknin minnki þörf á
uppskurðum.
nordicpHoTo/geTTy imAgeS
Bæklingurinn ráðleggingar um
mataræði og
næringarefni
– fyrir full-
orðna og börn
frá tveggja ára
aldri er komin
út á vegum
Lýðheilsu-
stöðvar.
ráðleggingarnar eiga að auðvelda
fólki að velja fæði í samræmi við
næringarefna- og orkuþörf sem og
ráðlagða dagskammta af ýmsum
vítamínum og steinefnum.
Í ráðleggingunum er lögð áhersla
á að fólk njóti vel samsettrar
og fjölbreyttrar fæðu í hæfilegu
magni. www.lydheilsustod.is
útgáfa }
Ráðleggingar um
mataræði
LýðHeiLSuSTöð STendur fyrir
úTgáfu BækLingS
Næstu fyrirlestrar og námskeið hjá Maður lifandi
21. nóv. Kundalini hugleiðsla. Hvað er það?
kl. 17:30. kristbjörg kristmundsdóttir
22. nóv. Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
-Uppselt.
23. nóv. Heilsukostur - Kökur og eftirréttir
kl. 18:00.
28. nóv. Þorvaldur Þorsteinsson fyrirlestur
kl. 17:30.
29. nóv. Heilbrigði og hamingja
kl. 18:30. Benedikta Jónsdóttir - heilsuráðgjafi
Nánari uppl. á madurlifandi.is og í síma 585 8703
vinnur gegn fílapenslum og bólum.
Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín.
Silicol Skin
Þannig getur þú haldið húð
þinni mjúkri og hreinni og
komið í veg fyrir bólur.
Fæst í apótekum.
S: 462 1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet/heilsuhorn
útsölustaðir: yggdrasill, fræið - fjarðarkaup, maður lifandi Borgartúni og Hæðarsmára, Lífsins Lind -
Hagkaup, Lyfjaval - mjódd og Hæðarsmára, nóatún Hafnarfi rði, krónan mosfellsbæ, Heilsuhúsið Selfossi
Póstsendum um land allt
Brennsluaukandi
betra úthald, góð næring
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja í það ef Fréttablaðið
kemur einhverntímann ekki.
550 5600
Ekkert blað?
- mest lesið