Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 5
Evrópulönd og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafa
skrifað undir sáttmála um baráttuna við aukna tíðni
ofþyngdar.
Í sáttmálanum er kallað eftir enn meiri samstöðu og sam-
vinnu milli allra hagsmunaaðila en verið hefur. Til dæmis
opinberra aðila, einkamarkaðar, frjálsra félagasamtaka, ein-
staklinga og fjölskyldna bæði á innlendum vettvangi sem og
milli landa Evrópu.
Tíðni ofþyngdar í Evrópu hefur vaxið þrefalt á síðustu
tveimur áratugum, en afleiðingar offitu eru langvinnir sjúk-
dómar sem draga úr heilbrigði og minnka lífslíkur. Sérstak-
lega er varað við ofþyngdarþróun meðal barna og unglinga.
Þá er ljóst að ofþyngd og offita er algengari meðal þeirra sem
minna mega sín í samfélaginu sem eykur þannig enn á ójöfn-
uð. Ofþyngd hefur mikil áhrif á efnahag þjóða en almennt er
talið að allt að sex prósent af útgjöldum til heilbrigðismála í
Evrópu séu tilkomin vegna ofþyngdar og offitu.
Ráðamenn landanna eru sammála um að ofþyngdar-
þróunina sé hægt að stöðva og snúa henni við. Mikil-
vægt er að tekið sé mið af þyngdarþróun þjóðfélags-
þegnanna í öllu stefnumótandi starfi þjóða og
sveitarfélaga. Rík áhersla er lögð á samábyrgð allra
ráðuneyta þó hvatt sé til þess að heilbrigðisráðu-
neyti haldi utan um verkefnið.
Markmið sáttmálans er að styrkja samstarf innan
Evrópu í baráttunni við ofþyngdina þar sem rík
áhersla er lögð á bætta næringu, aukna hreyfingu og
almenna vellíðan meðal þegnanna.
Frétt af vef Lýðheilsustöðvar www.lydheilsustod.is
Evrópa sameinast gegn ofþyngd
Ofþyngd hefur mikil áhrif á efnahag
þjóða en almennt er talið að allt að sex
prósent af útgjöldum til heilbrigðismála
í Evrópu séu tilkomin vegna offitu og
ofþyngdar..Stjórnvöld í Englandi hafa
áhyggjur af ofdrykkju unglinga.
Ofdrykkja enskra unglinga hefur
leitt til tuttugu prósenta aukning-
ar á sjúkrahúsinnlögnum á síðustu
fimm árum. Um tuttugu mál sem
tengjast drykkju unglinga undir
18 ára aldri koma inn á borð
sjúkrahúsa á dag. Þetta eru mál á
borð við áfengiseitrun.
Yfirmaður sjúkrahúsa í
Cheshire- og Merseyside-héruð-
um segir ekki óalgengt að ungling-
ar sem komi á sjúkrahúsið hafi
drukkið allt að einum lítra af
vodka. Sami læknir telur nauðsyn-
legt að hækka verð áfengis til að
draga úr unglingadrykkju.
Af vef BBC
Aukin ungl-
ingadrykkja
Enskir unglingar drekka of mikið.
Fyrirburum er hættara við að
eiga í vandræðum með sjónina.
Ný rannsókn leiðir í ljós að aukin
hætta er á að börn sem fædd eru
fyrir tímann (fyrir 35. viku með-
göngu) eigi í meiri vandamálum
með sjón en þau sem fædd eru full-
burða. Þetta kemur fram á frétta-
vef Reuters-fréttastofunnar.
Rannsóknin gefur einnig vísbend-
ingar um að augnpróf sem tekin
eru við tveggja og hálfs árs aldur
hjá fyrirburum geti sagt fyrir um
vandamál í sjón við tíu ára aldur.
Rannsakaðir voru 198 fyrirburar
við sex mánaða, tveggja og hálfs
árs og tíu ára aldur.
Fyrirburar
sjá verr
Sjónin getur orðið vandamál hjá fyrir-
burum.
Fyrir utan að eyða
C-vítamíni úr líkaman-
um stuðla reykingar
við hjarta-, æða- og
lungnakvillum, svo ekki
sé minnst á hættuna
á lungnakrabbameini.
Reykingafólk þarf alla þá
aðstoð sem möguleg er
úr næringunni og þá sér-
staklega úr efnum á borð
við A-, C- og E-vítamín og
selen.
Næringarefni sem mælt er
með fyrir reykingamenn á
hverjum degi eru:
C-vítamín, 2.000 mg, fyrir
og eftir hádegi.
E-vítamín, 400-1.000 ae
daglega
Selen 50 mcg, 1-3 á dag
A-vítamín, 10.000 ae
daglega
Heimild: Ný og betri bætiefnabiblía
hollráð }
Bætiefni fyrir
reykingafólk
SéRhvER SígAREttA SEm
þú REykiR EyðiR 25 mg
AF C-vítAmíNi