Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 41
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 25
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
icex-15 6.322 +1,12% Fjöldi viðskipta: 220
Velta: 13.185 milljónir
HLUtAbréF Í úrVALSVÍSitÖLU: Actavis 67,00 +0,15% ... Alfesca 5,03 -0,98% ... Atlantic
Petroleum 585,00 +0,00% ... Atorka 6,40 +0,31% ... Avion 32,20 -0,31% ... Bakkavör 60,00
-0,50% ... FL Group 23,00 +0,00% ... Glitnir 22,40 -0,44% ... Kaupþing 833,00 -1,77% ...
Landsbankinn 26,60 -1,48% ... Marel 79,00 +0,00% ... Mosaic Fashions 16,90 -0,59% ...
Straumur-Burðarás 17,60 +0,00% ... Össur 115,00 +0,00%
MeStA hæKKun
Atorka -0,31%
Actavis +0,15%
MeStA LæKKun
Kaupþing -1,77%
Landsbankinn -1,48%
Alfesca -0,98%
umsjón: nánar á visir.is
Eignarhaldsfélagið ehf., í eigu SP-
Fjármögnunar, Landsbankans og
SPV, hefur eignast 98 prósent
hlutafjár í Verði Íslandstryggingu.
Nýir eigendur sjá mikil tækifæri
til að efla Vörð Íslandstryggingu
með breyttu eignarhaldi.
Guðmundur Jóh. Jónsson tekur
við stöðu framkvæmdastjóra
Varðar Íslandstryggingar en hann
starfaði sem forstöðumaður hjá
SP-Fjármögnun og þar áður hjá
Sjóvá-Almennum. Eignarhlutföll í
Eignarhaldsfélaginu ehf. eru með
þeim hætti að SP-Fjármögnun fer
með 49 prósent, Landsbankinn
með 26 prósent og SPV heldur
utan um fjórðungshlut. - eþa
Eignarhaldsfélagið
ræður för í Verði
Stjórn þýsku kauphallarinnar í
Frankfurt hefur hætt við frekari
tilraunir til yfirtöku á samevr-
ópska hlutabréfamarkaðnum Eur-
onext. Kauphöllin í New York í
Bandaríkjunum, NYSE, bauð 10
milljarða bandaríkjadala eða rúm-
lega 692 milljarða íslenskra króna
í Euronext í maí og er stefnt að
sameiningu kauphallanna.
Þýska kauphöllin hefur þrátt
fyrir það horft til þess að hafa
betur í kapphlaupinu um markað-
inn og gerði um miðjan síðasta
mánuð samkomulag við ítölsku
kauphöllina um að gera sameigin-
legt yfirtökutilboð í Euronext.
Þýska kauphöllin hefur nokkr-
um sinnum á árinu mælt með sam-
runa við Euronext og lagði meðal
annars fram yfirtökutilboð í
markaðinn í júní síðastliðnum.
Stjórn Euronext, sem rekur kaup-
hallir í Amsterdam, Brussel, París
og Lissabon, felldi það hins
vegar.
Þá hefur kauphöllin þýska
sömuleiðis horft til þess að samein-
ast öðrum kauphöllum í Evrópu,
þar á meðal kauphöllinni í Lundún-
um í Bretlandi (LSE) og gerði yfir-
tökutilboð í alla hluti hennar á síð-
asta ári. Því var ekki tekið.
Breska ríkisútvarpið hefur
eftir tilkynningu frá stjórn þýsku
kauphallarinnar í dag, að stjórn
Euronext hafi ekki lengur hug á
samruna við Euronext og því verði
frekari yfirtöku- og sameiningar-
tilraunum hætt. - jab
eUroNext Þýska kauphöllin hefur fallið
frá frekari yfirtökutilraunum í samevr-
ópska hlutabréfamarkaðinn euronext.
Horfir í aðrar áttir
Vodafone hefur lokið við upp-
færslu á öllum símstöðvum
í kerfi fyrirtækisins sem
staðið hefur um skeið. Fyr-
irtækið segir að með þessu
hafi GSM-kerfi þess verið
eflt enn frekar með auknum
gæðum í þjónustu
fyrir viðskiptavini
og rekstraröryggi.
„Jafnhliða þess-
um áfanga hefur Vodafone þétt
GSM-kerfi sitt sem tryggir að við-
skiptavinir njóta enn betri þjón-
ustu. Fyrirtækið hefur meðal
annars sett upp senda í Öxna-
dal, Grenivík og á móts við
Hrafnagil,“ segir í tilkynn-
ingu. Þá kemur fram að búið
sé að bæta við þremur send-
um á Akureyri. „Enn-
fremur er verið að
ljúka við uppsetn-
ingu á GSM-sendi
austan Þjórsár sem bætir sam-
bandið við þjóðveginn.“ - óká
Hafa lokið uppfærslu
á öllum símstöðvum
Markaðsvirði 365 hf. lækkaði um
tæpa 1,2 milljarða króna í gær
þegar viðskipti hófust, annars
vegar með bréf fjölmiðlafélagsins
og hins vegar með hluti í upplýs-
ingatækni- og fjarskiptafélaginu
Teymi, eftir uppstokkun Dags-
brúnar.
365 var um fimmtán milljarða
króna virði við upphaf viðskipta
en lækkaði um tæp átta prósent á
fyrsta degi.
Markaðsvirði Teymis lækkaði
hins vegar mun minna eða um 135
milljónir króna á fyrsta viðskipta-
degi. Markaðsverðmæti Teymis
stóð í 12,5 milljörðum í gærmorg-
un.
Hluthafar í Dagsbrún fengu
bréf í félögunum tveimur í skipta-
hlutföllunum 55 prósent fyrir bréf
í 365 á móti 45 prósentum í bréf-
um í Teymi.
Upphafsgengið á bréfum
beggja félaga var 4,58 krónur á
hvern hlut. Hluturinn í 365 kostaði
4,22 krónur í lok gærdags en 4,53
krónur í Teymi. - eþa
365 LæKKAði á FyrStA Degi Þorsteinn M. Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og
Magnús Ármann á hluthafafundi Dagsbrúnar í liðinni viku. FréttABLAðið/GVA
Virði 365 lækkaði um milljarð
Fjármögnun vegna fyrstu íbúðakaupa getur oft reynst
erfið og flókin. Með láni fyrir allt að 90% af kaupverðinu*
geta viðskiptavinir DMK fjármagnað fyrstu íbúð sína með
einföldum og hagkvæmum hætti. Auk þess fylgja lánunum
sérkjör á brunatryggingum húseignar en slík trygging er
skylda samkvæmt lögum.
Aðrir þættir
DMK þjónustunnar eru:
• DMK Debetkort
• DMK Kreditheimild
• DMK Yfirdráttarheimild
• DMK Tiltektarlán
• DMK Léttlán
• DMK Ráðgjöf
• DMK Reglulegur sparnaður
• DMK Tilboð
Sæktu um DMK á spron.is
A
RG
U
S
/
06
-0
55
2
DMK 90% íbúðalán
– fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð!
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON,
í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
* skv. útlánareglum SPRON
Fram til áramóta fánýir viðskiptavinir í DMK gjafabréf fyrir tvo í Borgarleikhúsinu.