Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 48
 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR32 Ungfónían – Sinfóníuhljómsveit unga fólksins – frumflytur nýtt verk eftir Tryggva M. Baldvinsson á tónleikum annað kvöld. Verkið nefnist Sprettur og er sérstaklega samið fyrir hljómsveitina og er verkið tileinkað sveitinni og stjórn- anda hennar, Gunnsteini Ólafssyni. „Verkið hefur yfir sér tápmikið yfirbragð, enda fannst mér annað óhugsandi þegar um Ungfóníuna ræðir. Nafn verksins er því bein tilvísun í karakter þess. Sprettur hefst á hægri upphitun, en svo er rokið á stað yfir hæðir og hóla. Eftir nokkra hvíld á hæsta punkti, þar sem hljóðfæraleikararnir okkar kastar mæðinni, er loka- spretturinn tekinn og markinu náð á síðustu dropunum,“ segir tón- skáldið. Auk þess er konsert fyrir selló og hljómsveit í D-dúr eftir Joseph Haydn og sinfónía Mozarts nr. 40 í g-moll á efnisskrá kvöldsins. Ein- leikari með hljómsveitinni er Mar- grét Árnadóttir sellóleikari, en hún lauk nýverið námi frá Juilliard-tón- listarháskólanum í New York. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins er sjálfstætt starfandi hljómsveit, stofnuð fyrir réttum tveimur árum eða í nóvember 2004. Hún er skipuð nemendum á höfuðborgarsvæðinu sem lengst eru komnir í hljóðfæra- námi í tónlistarskólum á höfuðborg- arsvæðinu. Hljómsveitin hefur haldið tónleika í Reykjavík, á Sel- fossi, í Keflavík, Reykholti í Borgar- firði, á Þjóðlagahátíðinni á Siglu- firði og í sumar sem leið frumflutti hún hér á landi óperuna Galdra- skyttuna eða Der Freischütz eftir Weber í Þjóðleikhúsinu í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Tónleikarnir fara fram í Nes- kirkju og hefjast kl. 20 annað kvöld. -khh Sprettur fyrir Ungfóníu Christopher Paolini byrjaði að skrifa þegar hann var aðeins fimmtán ára gamall. Þremur árum seinna kom út eftir hann bókin Eragon, sem skaust upp í fyrsta sæti á metsölulista New York Times. Þess má geta að myndin eftir Eragon verður heimsfrum- sýnd 15. desember næstkomandi. Christopher vann í önnur þrjú ár að annarri bókinni og nú er hún loksins komin út í íslenskri þýð- ingu Guðna Kolbeinssonar. Drekariddarinn Eragon hefur fellt illmennið Durza í dvergaborg- inni Farthen Dur en ekki án þess að það skilji eftir sig mark á honum. Langt ör frá hægri öxl hans að vinstri mjöðm hefur gert hann bæklaðan. Ný stjórnarskipan verð- ur í uppreisnarmönnum Varðanna áður en Eragon fer úr Trónheimi til álfanna í Ellesméra til að halda þjálfun sinni áfram með drekanum Safíru og dvergnum Olrik. Á meðan koma Rasakkarnir til Carvahall með herflokk og byrja að spyrja þorpsbúa um Roran. Svo kemur til blóðugra átaka og íbúar Carvahall fylkja sér um Roran sem leiðtoga og halda burt úr Palancardal. Eragon: Öldungurinn er stór- fenglegt skáldverk þar sem stríð, töfrar og ástin ráða ríkjum og stendur svo sannarlega undir vænt- ingum. Hún er töluvert blóðugri og þroskaðri en fyrri bókin og hentar vel fyrir fólk 12 ára og eldri.  SigurþórEinarsson  Nemandií10.bekkHlíðaskólaogsérlegur áhugamaðurumbókmenntir. Eragon snýr aftur Bækur Eragon:Öldungurinn Christopher Paolini JPV HHHHH Niðurstaða: Spennandi og töfrandi ævintýrabók. Úrslitakeppni Skrekks, hæfileika- keppni grunnskólanna, fer fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þetta er í sextánda skipti sem keppni þessi fer fram, en umfang hennar hefur vaxið með hverju ári. Tuttugu og sjö skólar á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt og í kvöld keppa sex skólar til úrslita. Nemendur hafa lagt hart á sig undanfarnar vikur við að semja og æfa atriðin en þau eru jafn fjöl- breytt og skólarnir eru margir en oftast fela atriðin í sér leiklist, söng og dans. Hvert atriði má vera sjö mínútur að lengd og þrjátíu og fimm manns mega taka þátt í flutningi þess. Nem- endur skólanna semja atriðin sjálfir og aðeins þeir mega taka þátt í sýn- ingunni. Nemendur Álftamýrarskóla, Árbæjarskóla, Hagaskóla, Hvassa- leitisskóla, Langholtsskóla og Selja- skóla keppa um Skrekkinn, verð- launagripinn í keppninni, og verður án efa fjölmennt í Borgarleikhúsinu í kvöld og feikna stemning. Þeir sem fá ekki miða í Borgar- leikhúsið geta horft á beina útsend- ingu frá lokakvöldinu á sjónvarps- stöðinni Sirkus og hefst útsendingin kl. 20.  SigurþórEinarsson Úrslitin ráðast í Skrekk NEmENdurúrÁrBæjarSkólaDramatískur dauði. MyND/Itr SiNfóNíuHljómSvEituNgafólkSiNSNýtt verk. MyND/rafael PINho Félagarnir víðförlu Jón Eggert Guðmundsson og Sigfús Austfjörð lögðu að baki 3.446 km í svokölluð- um Strandvegagöngum í sumar og fyrrasumar þegar sá fyrrnefndi stikaði meðfram strandvegum landins til styrktar Krabbameins- samtökum Íslands. Nú hafa þeir Jón Eggert og Sig- fús gefið út ferðasögu sína á staf- rænu formi, ferðabók þeirra er nú fáanleg á geisladiski þar sem dag- bókarfærslur Sigfúsar úr ferðinni eru birtar ásamt fjölmörgum myndum og öðrum fróðleik. Sumarið 2005 gekk Jón Eggert tæpa þúsund kílómetra á rúmum fimm vikum en í sumar gekk hann 2.450 km á þremur og hálfum mán- uði. Víst var þetta mjög svo við- burðarríkur tími sem Sigfús skráði samviskusamlega og grein- ir hann bæði frá líðan þeirra félaga, samferðafólki og fram- vindu ferðalagsins. Lýsingarnar eru einkar litríkar en þar er ympr- að á jafn ólíkum hlutum og mikil- vægi góðs matarræðis, árásum „hins fljúgandi fjanda“ og lögu- legu selfyssku kvenfólki. Bókin er einkar aðgengileg en hún er vistuð á word-skjali og segir Sigfús Austfjörð það ekki til vansa ef fólk vill breyta henni, stækka letur eða hnika til mynd- um. Ferðasagan er nú fáanleg í verslunum Pennans Eymundsson.  -khh Stafræn Strandvegaganga jóNEggErtÁfartiNNiGengið yfir ána Gígju. MyND/SIGfúS auStfJörð V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 1 49 k r/ sk ey ti ð. Sendu SMS BTC PCD á númerið 1900 og þú gætir unnið! Aðalvinningur er DVD spilari + Pirates of the Caribbean Vinningar eru Pirates of the Caribbean, tölvuleikir, DVD myndir og margt fleira 9. hver vinnur! Í hádeginu á morgun heldur Guð- mundur Jónsson, prófessor í sagn- fræði við Háskóla Íslands, erindi í fyrirlestraröð Sagnfræðingafé- lagsins. Hann fjallar þar um hug- myndir sagnfræðinga um hlut- lægnishugtakið og spyr hvort því sé viðbjargandi á okkar póstmód- ernísku tímum. Í útdrætti Guðmund- ar segir: „Allt frá því að sagnfræðin gerði tilkall til þess að teljast til vísinda á 19. öld hefur hlut- lægnishugtakið verið miðlægt í þekkingarfræði greinarinnar. Sagn- fræðingar töldu að hægt væri að komast að öruggum, hlutlægum sannleika um fortíðina með rann- sóknum á heimildum og vönduð- um vinnubrögðum, umfram allt heimildarýni. Viðhorf og gildis- mat sagnfræðingsins kæmu þar ekki nærri. Þessi pósitíva vísinda- hugmynd hefur ekki staðist tím- ans tönn og á síðustu áratugum hafa verið uppi miklar efasemdir um að sagnfræðin geti yfirleitt fært okkur haldgóða þekkingu á fortíðinni. Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að söguleg frásögn sé bara sjónarmið þess sem hana skrifar, sagan sé því ekkert annað en aragrúi af sjón- armiðum.“ Fyrirlesturinn hefst kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminja- safnsins við Hringbraut og stendur í rétt klukkustund.   -pbb Aragrúi sjónarmiða guðmuNdur jóNSSoNSagN- fræðiNgurer söguleg frásögn alltaf sjónarmið?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.