Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 50

Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 50
 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 Sufjan Stevens er án efa með merkustu tónlistarmönnum sem komið hafa fram á sjónarsviðið í alllangan tíma. Heimsóknar hans hingað til lands hefur því verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda hefur svo mikið verið skrifað og sagt um þennan mikla meistara og þá ekki síst um tónleika kapp- ans. Væntingarnar voru því meiri en góðu hófi gegnir. St. Vincent, gítar- og hljóm- borðsleikari Sufjans, sá um að hita mannskapinn upp og gerði það ágætlega. Lögin hennar voru reyndar ekkert sem maður tók andköf yfir en St. Vincent sýndi skemmtilega takta á gítarnum sem hljómaði vel í Fríkirkjunni. St. Vincent var jafnframt sæt, krúttleg og einlæg og ég sé ekki að hægt sé að lasta hana fyrir slíkt. Því næst tók við stutt bið eftir Sufjan sem síðan steig upp á sviðið (sem var vel upphækkað þannig að allir sáu almennilega) ásamt prúðu liði níu meðleikara sem allir voru í fallegum búning- um, skreyttum stórum vængjum og höfðu auk þess glamúrlegar fiðurandlitsgrímur. Fyrstu tón- arnir tóku að hljóma og gæsahúð- in gerði vart við sig. Hún hélt sér síðan sleitulaust næstu tvo tím- ana eða svo. Tónleikarnir voru nefnilega allir magnþrungnir og í raun væri það alltof tímafrekt að fara út í öll þau smáatriði sem gerðu tónleik- ana að þeirri upplifun sem þeir reyndust vera. Hvert lag fyrir sig var frábærlega vel útsett, keyrt af krafti og fágun. Sufjan sjálfur sýndi svo allar sínar bestu hliðar. Sagði skemmtilegar sögur, söng undurfallega en var umfram allt mannlegur og hélt áhorfendum þétt að sér. Þegar upp er staðið stóð Sufjan svo sannarlega undir öllum þeim væntingum sem til hans voru gerðar og það sem meira er, hann fór langt fram úr þeim. Eini mínusinn við tónleik- ana var sá að maður var frekar lengi að komast út úr Fríkirkjunni (Sykurmolarnir biðu) en maður getur nú varla hirt fimmtu stjörn- una af Sufjan fyrir slíkt smáræði. Steinþór Helgi Arnsteinsson Sufjan sveif vængjum þöndum TónleikAr Sufjan Stevens Fríkirkjan, föstudagurinn 17. nóv- ember 2006 HHHHH Tónleikar sem höfðu allt sem góðir tónleikar hafa upp á að bjóða. STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:00 Þjóðleikhúsið fyrir alla! Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 25/11 nokkur sæti laus, sun. 26/11 nokkur sæti laus, fös. 1/12 nokkur sæti laus, lau. 2/12. Síðustu sýningar fyrir jól. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Fös. 29/12 kl. 20:00 örfá sæti laus, lau. 30/12 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 17:00 örfá sæti laus, lau. 6/1 kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus. PÉTUR GAUTUR eftir Henrik Ibsen. Leikgerð Baltasar Kormákur. Fim. 23/11 örfá sæti laus, fös. 24/11 örfá sæti laus. Aukasýningar fös. 8/12 örfá sæti laus og lau. 9/12 örfá sæti laus. Allra síðustu sýningar! LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson Lau. 25/11 kl. 13:00 uppselt og kl. 15:00 uppselt, sun. 26/11 kl. 13:00 uppselt og kl. 15:00 uppselt, lau. 2/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 nokkur sæti laus og kl. 16:00 örfá sæti laus, sun. 3/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 örfá sæti laus, lau. 9/12 kl. 13:00 örfá sæti laus, kl. 14:30 örfá sæti laus og kl. 16:00, sun. 10/12 kl. 13:00 örfá sæti laus og kl. 14:30 uppselt, lau. 16/12 kl. 13:00 og kl. 14:30, sun. 17/12 kl. 13:00 og kl. 14:30. LEIKHÚSLOFTIÐ aðalbyggingu UMBREYTING – brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Fös. 24/11 kl. 20:00 uppselt. Allra síðasta sýning! SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. KÚLAN Lindargötu 7, kl. 17:00 og 20:00 SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ aðalbyggingu Lindargötumegin, kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Fös. 24/11 nokkur sæti laus, sun. 26/11 uppselt. Síðustu sýningar fyrir jól! Lau. 6/1, lau. 13/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is HVERS VEGNA LÁTA KONURNAR SVONA? Námskeið fyrir almenning um Bakkynjur hefst í kvöld 21/11. Skráning á midasala@leikhusid.is eða í síma 551 1200. Nánari upplýsingar á www.leikhusid.is. Sigurjón Magnússon lét lítið fyrir sér fara á rit- vellinum framan af og var kominn á miðjan fimmtugsaldur þegar Bjartur gaf út frumraun hans, Góða nótt Silja, rétt fyrir aldamót. Síðan þá hafa þrjár bækur eftir hann litið dagsins ljós, Hér hlustar aldrei neinn (2000), Borgir og eyði- merkur (2003) sem er söguleg skáldsaga byggð á ævi Kristmanns Guðmundsson- ar rithöfundar, og nú Gaddavír. Sögur Sigurjóns eiga það sammerkt að vera tiltölulega stutt- ar; Gaddavír sker sig ekki frá að því leyti, fyllir tæpar 150 síður með drjúgu línubili. Höfundurinn nýtir hins vegar plássið vel, í stað þess að hlaupa langt kafar Sigur- jón djúpt. Hér segir frá Hrafni, drykkfelldum presti sem er að skríða á miðjan aldur í ótilgreindri sveit fyrir austan, þvinguðum samskiptum hans og Þrúðar org- anista. Skuggalegir atburðir settu sitt mark á þeirra fyrstu kynni – og reyndar sveitina alla – og hafa vokað yfir allar götur síðan. Strax á fyrstu síðum slær Sig- urjón myrkan tón, helsti styrkur hans er lag á að láta að merkingunni liggja í stað þess að færa hana í orð. Sigurjón er afbragðs stílisti, text- inn er kjarnyrtur og snyrtilegur en jafn- framt hlaðinn táknum og háska. Dýptin liggur í hinu ósagða og eftir því sem dimmmir kemur meira í ljós. Þetta er afskaplega íslensk saga, bæði hvað tungutakið snertir og umhverfið sem höfundur velur sögunni; jafn- vel dálítið gamaldags en í góðum skilningi þess orðs. Persónur bókarinnar eru lask- aðar manneskjur; fólk sem hefur orðið fyrir hnjaski einhvern tím- ann á lífsleiðinni og ekki borið sitt barr síðan. Gaddavír hefur líka samfélagslegan undirtón því þetta er áleitin og sterk saga um þögg- un; meinsemd sem fær að taka sér bólfestu og heldur áfram að eitra út frá sér. Þá er ástæða til að hrósa vel heppnaðri kápuhönnun, sem við fyrstu sýn kann að virðast frá- hrindandi en leggst á eitt með innihaldinu og þyngir undiröld- una. Bergsteinn Sigurðsson Skuggalegt víravirki Bækur Gaddavír Sigurjón Magnússon Bjartur HHHH Frábærlega skrifuð og áleitin saga um laskaðar manneskjur og undirliggjandi meinsemdir. SiGurjón MAGnúSSon HVAÐ? HVenær? HVAr? NÓVEMBER 18 19 20 21 22 23 24 Þriðjudagur n n leikliST c 20.30 Leikfélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sýnir um þessar mundir söngleikinn Draumalönd eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson sem leikstýrir einnig verkinu. Sýningar fara fram í sal skólans. n n SÝninGAr c 10.00 Yfirlitssýningin Málverkið eftir 1980 stendur yfir í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Á sýning- unni er rakin þróunin í málverkinu frá upphafi níunda áratugs tuttug- ustu aldar fram til dagsins í dag. Á sýningunni eru á annaðhundrað verk eftir 56 listamenn. Sýningarstjóri er Laufey Helgadóttir, listfræð- ingur og aðstoðarsýningarstjóri dr. Halldór B. Runólfsson. c 11.00 Georg Guðni sýnir ný mál- verk og kolateikningar í Gallerýi Turpentine við Ingólfssstræti. c 14.00 Helga Óskarsdóttir og Kristinn Már Pálmason sýna verk sín í Galleríi Kling & bang um þessar mundir. Sýningarnar eru opnar fimmtudaga til sunnudaga milli 14-18 Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.