Fréttablaðið - 21.11.2006, Side 51
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 35
Leikflokkur Vesturports fer til
Þýskalands á föstudag en þar mun
leikhópurinn sýna leikritið
Woyzeck á listahátíð í Ludwigs-
hafen. Þaðan liggur leiðin til
Stavanger í Noregi og verða þar
sýningar á Rómeó og Júlíu.
Vesturport-flokkurinn hefur
farið víða með sýningar sýnar, en
nýlega lauk sýningarhaldi í Lond-
on á Umbreytingunni eftir Kafka
sem hluti hópsins tók þátt í. Þá
hefur annar hluti leikflokksins
verið að sviðsetja á Pétri Gaut í
Kassa Þjóðleikhússins.
Kvikmynd leikflokksins, For-
eldrar, er nú á lokastigi í klippingu
og verður frumsýnd í febrúar á
næsta ári.
Listahátíðin í Ludwigshafen
stendur í sjö vikur í vetrarbyrjun
og þangað er boðið fjölda lista-
manna frá ýmsum löndum. Vest-
urport er þar í félagi við ítalskan
dansflokk sem sýnir sína útgáfu
af Rómeó og Júlíu, svissneskt
brúðuleikhús sem gerir sér mat úr
hinni fornþýsku mummenchanz-
hefð, þar verður Evripídes leikinn
á slóvensku og Shakespeare á
portúgölsku, Hunangsilmur eftir
Shelagh Delaney á þýsku, í stjórn
Peter Zadek, svo nokkur atriði séu
nefnd.
Sviðssetningar Gísla Arnar
Garðarssonar voru unnar í sam-
starfi við Leikfélag Reykjavíkur
en á bak við Vesturport stendur
framleiðslufyrirtækið Artbox.
Starfsemi Vesturports er studd
með styrkjum frá Reykjavíkur-
borg og leiklistarráði. Ekki er ljóst
á þessu stigi hvert framhald verð-
ur á starfsemi flokksins en hann
er háður framlagi einkaaðila og
opinberra styrkja.
Ótvírætt er að starfsemi þessa
hóps hefur hrist upp í íslensku
leikhússamfélagi, ekki síst með
tíðum dvölum flokksins erlendis
við sýningahald og samstarfi
þeirra við erlend leikhús. -pbb
Vesturportsleikhópurinn
á sífelldum faraldsfæti
Rómeó og Júlía eRu enn á feRð um evRópu Nína Dögg og Ólafur Darri í hlutverk-
um sínum sem Júlía og fóstra hennar. Frettablaðið/Sigurður Jökull
Markmið sjóðsins er að styðja við bakið á
menningar- og listalífi, auk þess að hlúa að
mannréttinda- og líknarmálum.
Það verður m.a. gert með framlögum til stofn-
ana, samtaka og félaga á Íslandi, sem hafa
framangreind málefni sem aðaltilgang sinn.
Formaður stjórnar sjóðsins er Jóhannes Jónsson, en aðrir stjórnarmenn
eru Hreinn Loftsson og Ingibjörg S. Pálmadóttir.
Ritari stjórnar sjóðsins er Soffía Lárusdóttir.
Áhugasamir aðilar sem uppfylla ofangreind skilyrði
eru hvattir til að senda inn umsókn ásamt stuttri
greinargerð.
Samanlögð lengd umsóknar og greinargerðar skal
takmarkast við eina vélritaða síðu (A4).
Umsóknum skal skilað fyrir 15. desember n.k. til:
Styrktarsjóður Baugs Group hf.,
b.t. Soffíu Lárusdóttur,
Túngötu 6, 101 Reykjavík
eða á netfangið styrktarsjodur@baugurgroup.com.
Úthlutun fer fram í janúar.
STYRKTARSJÓÐUR BAUGS GROUP HF.
AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI ÚR SJÓÐNUM
h
ze
ta
e
h
f
Þriðja úthlutun
Fim. uppselt 23. nóv.
Fös. örfá sæti 24. nóv.
Lau. örfá sæti 25. nóv.
“Fólk ætlaði hreint
vitlaust að verða úr
hlátri.”
S.A. TMM
Miðasala virka daga
frá kl. 11-16 og
2 tímum fyrir sýningar.
Sími 5629700
idno.is og midi.is
Sýningar kl. 20
Sýnt í Iðnó
Allra síðustu sýningar - Takk fyrir frábærar viðtökur!!
fim. 23. nóv. næstsíðasta sýning
fös. 24. nóv. allra síðasta sýning.
“Sýningin veitti mér bæði orku og bjartsýni til framtíðarinnar og
enginn ætti að láta hana fram hjá sér fara.” Birna Bergsdóttir
varaformaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Draumasmiðjan
og
Hafnarfjarðarleikhúsið
VIÐTALIÐ
Sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu
23. nóvember kl. 20:00
SÍÐASTA SÝNING
Miðapantanir: 555 2222
(símsvari) eða á midi.is
Allar nýjustu upplýsingar
og fréttir á ensku á
vefnum reykjavik.com og
í blaðinu Reykjavikmag.
Upplýsingar, viðburðir,
afþreying og fréttir