Fréttablaðið - 21.11.2006, Side 52
21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR36
Eitt stærsta brúðkaup
ársins fór fram í smábæn-
um Bracciano þegar Tom
Cruise gekk að eiga Katie
Holmes að viðstöddum 150
nánum vinum og fjölskyldu-
meðlimum.
Á Ítalíu hefur allt verið á öðrum
endanum eftir að Cruise og hans
hersing kom til Rómar en þá varð
ljóst að hann hygðist ganga í það
heilaga í Bracciano á laugardag.
Cruise er ákaflega vinsæll í Róm
og mætir vanalega á frumsýning-
ar á myndum sínum þar í borg.
Íbúar Bracciano voru ekki síður
kátir þegar Cruise pantaði fimmt-
ándu aldar kastala undir athöfnina
og hafa bæjarbúar varla getað
þverfótað fyrir útsendingarbílum
og ljósmyndurum auk blaða-
manna.
Samkvæmt fréttavef BBC klædd-
ist Katie Holmes glæsilegum kjól
frá Giorgio Armani eins og reikn-
að hafði verið með og Cruise var í
jakkafötum frá ítalska snillingn-
um. Stórsöngvarinn Andrea
Bocelli söng síðan nokkur vel
valin lög fyrir hin nýgiftu en þegar
öllu var lokið var gríðarlegu magni
af flugeldum skotið upp í loftið við
mikinn fögnuð viðstaddra, utan
veggja sem innan. Að sögn hönn-
uðarins Giorgio entist koss hinna
nýgiftu þó lengur en flestir eiga
að venjast og voru gestirnir farnir
að biðja parið um að hætta þessu
kossaflensi undir lokin.
Bæjarstjóri Bracciano var heldur
ekki par sáttur við Cruise og Hol-
mes. „Hér hafa bæjarbúar lagst á
eitt við að gera þetta að eftirminni-
legum degi en þau láta varla sjá
sig opinberlega,“ sagði bæjarstýr-
an Patrizia Riccioni og bætti því
við að hvorki Cruise né Holmes
kæmu til greina sem heiðursborg-
arar fyrir óliðlegheitin. Þá er því
haldið fram í bandarískum fjöl-
miðlum í gær að brúðkaupið hafi
eingöngu verið sett á svið fyrir
fjölmiðla því Vísindakirkjan geti
ekki gefið pör löglega saman. Þau
hafi því í raun látið gifta sig að
borgaralegum hætti í Los Angeles
fyrir tveimur vikum.
Varla varð þverfótað fyrir stór-
stjörnum í Bracciano en meðal
þeirra sem voru á gestalistanum
voru Will Smith, Jim Carrey,
Jennifer Lopez og Richard Gere.
Þá vakti það jafnframt furðu
margra að Brooke Shields var
boðið en Cruise og leikkonan áttu í
hörðum deilum vegna þunglyndis-
lyfja sem Shields tók inn eftir að
hafa eignast fyrsta barn sitt. Nær-
vera Davids Beckham olli hins
vegar töluverðum titringi innan
herbúða stórliðsins Real Madrid
og var kappinn sóttur aftur til
Madridar. Neyddist því fyrrver-
andi fyrrverandi fyrirliði enska
landsliðsins til að sitja uppi í stúku
þegar lið hans sigraði Racing Sant-
ander á meðan eiginkona hans,
Victoria, spókaði sig um í brúð-
kaupinu. Jafnframt vakti það
furðu fjölmiðla að spjallþátta-
drottningin Oprah Winfrey skyldi
ekki fá boðskort en það var ein-
mitt í þætti hennar sem vanga-
veltur um bresti í geðheilsu Tom
Cruise fóru á kreik. Þeir sem
græddu hins vegar mest á öllu
þessu fjaðrafoki voru íbúar smá-
bæjarins Bracciano sem nú selja
krukkur, glös, bolla og aðra minja-
gripi til minningar um þetta sann-
kallaða stjörnubrúðkaup.
Stjörnuskin í Bracciano
GlæsileG brúðhjón Katie Holmes og Tom Cruise eru án nokkurs vafa eitt vinsæl-
asta par síðari tíma.
horft til aðdáenda Katie Holmes
virðir fyrir sér þann mikla múg sem
safnaðist saman fyrir framan kastalann
í Bracciano.
david var sendur heim Victoria var
ein í brúðkaupinu eftir að eiginmaður
hennar, David Beckham, var kallaður til
æfinga hjá Real Madrid.
smith hjónin Will Smith og eiginkona
hans Jada Pinkett voru í sínu fínasta
pússi þegar þau komu í brúðkaupið
fluGeldasýnininG Hún var glæsileg
sýningin sem boðið var upp á eftir að
prestur úr Vísindakirkjunni hafði gefið
Cruise og Holmes saman.
óvæntur Gestur Margir hafa eflaust
ekki búist við því að Brooke Shields
fengi boðskort eftir orrahríðina á milli
hennar og Cruise en þau virðast hafa
grafið stríðsöxina og var Shields mætt
ásamt manni sínum Chris Henchy.
fRéTTaBlaðið/GeTTyiMaGeS
Það var búið að breyta Listasafni
Reykjavíkur í Casino á laugar-
dagskvöldið í tilefni af útgáfu-
partíi Senu. Fjöldi fólks mætti í
sínu fínasta pússi enda voru inn-
gangsskilyrði í partíið að vera í
kjól og hvítu.
Boðsgestir fengu að líta væntan-
legar útgáfur fyrirtækisins á sviði
kvikmynda og tónlistar sem vöktu
mikinn fögnuð auk þess sem gestir
gátu spreytt sig við spilaborðið.
Plötusnúðarnir Margeir og Jón
Atli héldu síðan uppi stuðinu fram
eftir nóttu.
Casino-kvöld hjá Senu
sæt oG fín Davíð Þór Jónsson var
mættur ásamt kærustu sinni, Þórunni
Grétu Sigurðardóttir.
Góðir Útvarpsmennirnir Bragi Guð-
mundsson og Heiðar austmann voru að
sjálfsögðu mættir til leiks klæddir svörtu
og hvítu.
tónlistarkonan lovisa betur þekkt
sem laylow hefur átt mikillar velgengi
að fagna og hafði því ástæðu til að
brosa á laugardagskvöldið.
hressir Siggi, hljómborðsleikari í
hljómsveitinni Hjálmum, var prúðbúinn
ásamt vini sínum sínum sem var ekki
síðri.
fR
éT
TB
la
ð
ið
/D
a
n
íe
l
Nýtt tilboð til allra
áskrifenda í Og1
BUBBI
06.06.06
Afmælistónleikar Bubba Morthens á DVD.
Upplifðu þessa mögnuðu tónleika, aftur og aftur.
Viðskiptavinir í Og1 fá þennan frábæra tónleikadisk
með rúmlega 40% afslætti eða á aðeins 1.690 kr.
í stað 2.990 kr.
Þetta er aðeins einn af mörgum ávinningum þess
að skrá sig í Og1.
Verið velkomin í næstu verslun.
Vodafone
gríptu augnablikið og lifðu núna
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
0
2
0