Fréttablaðið - 21.11.2006, Síða 56
40 21. nóvember 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
KöRfUboltI Bárður Eyþórsson
sagði á föstudag upp störfum sem
þjálfari úrvalsdeildarliðs ÍR en
uppsögnin kemur nokkuð á óvart
enda tók Bárður við liðinu í sumar
og hans hlutverk var að rífa liðið
upp úr meðalmennskunni. Lítið
kom þó af liðsstyrk í kjölfar ráðn-
ingar Bárðar og gengið hefur held-
ur ekki verið gott. Leikmannahóp-
ur liðsins er þunnur og til að
mynda hefur ekki tekist að ná tíu
mönnum á skýrslu í síðustu leikj-
um.
„Þetta hefur haft smá aðdrag-
anda en það sem gerðist er að ég
gafst upp á mannskapsleysi enda
með lítinn hóp í höndunum. Ég var
orðinn þreyttur á þessu harki á
síðasta tímabili í Hólminum og
það sama var í gangi núna. Ég
ákvað þar af leiðandi að segja
þetta gott í bili enda var lagt upp
með aðra hluti í upphafi. Skilnað-
urinn er samt í góðu,“ sagði Bárð-
ur í gær en hann hefur ekki getað
styrkt hópinn með ungum leik-
mönnum þar sem slíkir leikmenn
eru ekki til taks enda vantar elstu
yngri flokkana hjá félaginu.
„Þetta eru auðvitað ákveðin
vonbrigði að verkefnið hafi ekki
gengið betur en svona er þetta
stundum. Lífið heldur samt áfram
hjá mér og næst á dagskrá er að
fara á sjóinn. Ég er samt ekkert
hættur í körfubolta og mun að
sjálfsögðu skoða öll tilboð sem ég
fæ í framtíðinni með opnum huga.
Ég mun meta hvert tilboð fyrir sig
og ef eitthvað spennandi kemur
upp þá er aldrei að vita hvað
maður gerir.“
Bárður fer á sjóinn í dag eða á
morgun. „Það er ágætt að komast
aðeins aftur á sjóinn,“ sagði Bárð-
ur léttur í lokin.
-hbg
Bárður Eyþórsson sagði óvænt upp störfum hjá ÍR fyrir helgi:
Farinn á sjóinn en er ekki
hættur í körfubolta
staldraðistuttviðBárður Eyþórsson hefur yfirgefið Breiðholtið eftir skamma við-
dvöl. Hann er farinn á sjó í Grundarfirði en er ekki hættur í körfubolta og mun skoða
öll tilboð vel. fréttaBlaðið/Gva
Handboltakonan alla Georgijsdóttir Gokor-
ian hefur nú neyðst til að hætta hand-
boltaiðkun með meistaraflokki vals vegna
þrálátra meiðsla á hné. Hún hefur síðustu
ár átt í miklum vandræðum, til að mynda
slitið krossbönd tvívegis en ekki gengist
undir aðgerð vegna þessa. Hún ætlaði
upphaflega að hætta að loknu tímabili
síðastliðið vor en ákvað að taka eitt ár til
viðbótar. En lengra kemst hún ekki.
„Þetta hefur verið mjög erfitt og sér-
staklega vegna þess hversu langan tíma ég
hef glímt við þessi meiðsli,“ sagði alla við
fréttablaðið. „ég fann mikið til eftir leiki og
sá að þetta gat ekki gengið lengur.“
Hún fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir
nokkrum árum en kom hingað fyrst árið
1999. Hún lék í þrjú tímabil með Gróttu/
Kr, önnur þrjú tímabil með ÍBv og svo val
undanfarið eitt og hálfa árið. Hún á
að baki nokkra leiki með íslenska
landsliðinu sem og aðal- og yngri
landsliðum Georgíu.
„ég bjóst kannski ekki við því
að ég yrði hér jafn lengi og ég hef
verið þegar ég kom hingað fyrst.
En maður ræður sinni ferð sjálfur
og þessi tími minn á Íslandi
hefur verið frábær. Enda hef
ég ekki annað í hyggju en að
vera hér áfram.“
Hún segir að íslenskur
handbolti hafi batnað mikið
undanfarin 2-3 ár, bæði
vegna góðra ungra leik-
manna og þeirra útlendinga
sem hafa hingað komið til
að leika með íslenskum liðum.
„Það þýðir að deildin er sterkari enda eru
nú fleiri lið að berjast um
titilinn en áður. Það er
afar jákvætt.“
alla hefur hug á
því að halda áfram að
starfa innan handbolta-
hreyfingarinnar þó svo
að leikmannaferli hennar sé
nú lokið. Hún hefur sérstaklega
hug á að þjálfa börn og unglinga.
„ég hef áhuga á að snúa mér að þjálfun,
sérstaklega þjálfun yngri flokka fyrst um
sinn. ég vil innleiða meiri tækni í þjálfun
yngri flokka, hvað varðar hreyfingar,
boltatækni og fleira í þeim dúr. Það er
vitanlega leiðinlegt að ljúka ferlinum
á þennan hátt en svona er einfald-
lega handboltinn.“
alla GEorGijsdóttir GoKorian: lEGGur sKóna á Hilluna vEGna mEiðsla á Hné
Vil snúa mér að þjálfun yngri flokka
fótboltI Breskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að samning-
ar munu takast með fjárfesta-
hópnum sem Eggert Magnússon
fer fyrir og eigendum enska
úrvalsdeildarfélagsins West Ham
í dag. Áætlað er að halda blaða-
mannafund síðar í dag þar sem
búist er við að þetta verði tilkynnt.
Á föstudag munu stjórnarmenn
félagsins hafa samþykkt óform-
legt tilboð Eggerts eftir að hans
hópur fékk að skoða bókhald
félagsins.
Eggert hitti um helgina Terry
Brown, núverandi stjórnarfor-
mann og eiganda stærsta hluta
félagsins, þar sem hann staðfesti
að hópurinn væri að undirbúa
formlegt tilboð í West Ham. Það er
talið hljóða upp á 75 milljónir
punda, rúmlega tíu milljarða
króna, auk þess sem skuldir upp á
þrjá milljarða verða yfirteknar.
Atkvæðamesti aðilinn í fjárfesta-
hópi Eggerts er Björgólfur Guð-
mundsson, bankastjóri Lands-
bankans.
Eggert verður samkvæmt
þessu næsti stjórnarformaður
West Ham og mun í kjölfarið láta
af formennsku í Knattspyrnusam-
bandi Íslands og gefa eftir sæti
sitt í framkvæmdanefnd Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA.
Hann hefur þegar hitt Alan
Pardew, knattspyrnustjóra West
Ham, að máli og kynnt honum fyr-
irætlanir sínar. Eggert hyggst
halda tryggð við Pardew en West
Ham hefur átt erfitt uppdráttar
undir hans stjórn í ensku úrvals-
deildinni í haust. Pardew hefur
margoft sagt að mikilvægt sé að
ganga frá eigendaskiptunum sem
fyrst til að binda enda á þá löngu
óvissu sem hefur verið um fram-
tíð félagsins.
Íraninn Kia Joorabchian var
helsti keppinautur Eggerts í kapp-
hlaupinu um West Ham en hann er
maðurinn sem stóð á bak við komu
Argentínumannanna Carlos Tevez
og Javier Mascherano til West
Ham í haust. Framtíð þeirra í West
Ham virðist blandin óvissu verði
Eggert næsti stjórnarformaður
félagsins.
West Ham er þegar dottið úr
UEFA-bikarkeppninni og deildar-
bikarkeppninni og situr í fimmta
neðsta sæti deildarinnar.
Á hinum ýmsu spjallsíðum í
Englandi kom fram skoðun stuðn-
ingsmanna West Ham um nýja
eigendur félagsins. Langflestir
fagna komu Eggerts og líst betur á
þann hóp en hóp Joorabchian. Einn
þeirra velti fyrir sér hvort þetta
þýddi að vallargestir fengju fría
kexköku í hálfleik heimaleikja
West Ham en Eggert er þekktur
bæði hér á landi og í Englandi sem
fyrrverandi eigandi kexverk-
smiðju. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
þeirelskafótboltaEggert magnússon og Björgólfur Guðmundsson eru næstu eigendur West Ham. fréttaBlaðið/ómar
Eggert kaupir West Ham í dag
Eggert Magnússon mun í dag festa kaup á meirihluta hlutabréfa í enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham.
Verður þetta tilkynnt á blaðamannafundi sem áætlað er að halda í dag. Eggert hættir í kjölfarið hjá KSÍ.
>eiðurlofaðuráspáni
frammistaða Eiðs smára Guðjohnsen í leik Barcelona
og real mallorca á sunnudagskvöldið
er lofuð mikið í spænskum fjölmiðlum
í gær en hann skoraði fyrstu tvö mörk
liðsins í 4-1 sigri. mikið er gert úr því að
fyrir leikinn hafði lið mallorca fengið á
sig fæst mörk allra liða í deildinni og
að Eiður hafi brotið þá sterku vörn
á bak aftur. Íþróttablöðin sport
og mundo deportivo fara einnig
mikinn í sínum umfjöllunum og
birta flennistórar myndi af Eiði á
forsíðum sínum.
SUnD Þrálátur orðrómur er á
kreiki um að ástralski sundgarp-
urinn Ian Thorpe muni senn
tilkynna, jafnvel í dag, að hann
muni hætta keppni í íþróttinni.
Thorpe er ekki nema 24 ára
gamall en hefur sett ófá heims-
met og unnið til fimm gullverð-
launa á Ólympíuleikum.
Meiðsli og veikindi hafa hrjáð
Thorpe undanfarin misseri og
hefur hann ekki keppt á stórmóti
síðan á Ólympíuleikunum árið
2004. -esá
Sundgarpurinn Ian Thorpe:
Ian Thorpe að
hætta keppni?
ianthorpeHér á samveldisleikunum
síðastliðinn vetur þar sem hann gat ekki
keppt. nordic pHotos/GEtty