Fréttablaðið - 21.11.2006, Qupperneq 59
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 43
FótboltI Sænski landsliðsmaður-
inn Johan Elmander hefur verið
orðaður við Evrópumeistara
Barcelona. Hann leikur með
Toulouse í frönsku úrvalsdeild-
inni og hefur þótt standa sig vel
sem og í leikjum sænska lands-
liðsins. Hann skoraði tvö mörk
fyrir liðið gegn Sedan um
þarsíðustu helgi.
Börsungar eru fáliðaðir í sókn
vegna meiðsla Samuel Eto‘o og
Lionel Messi en Henrik Larsson
var orðaður við nokkurra mánaða
endurkomu í félagið vegna þessa.
Fleiri sóknarmenn hafa verið
sagðir vera í sigti Börsunga. - esá
Nýr Svíi hjá Barcelona?
Elmander orð-
aður við Barca
johan elmander Hefur þótt standa sig
vel í Frakklandi. nordic pHotos/aFp
FótboltI Kevin Blackwell, fyrrver-
andi knattspyrnustjóri Leeds,
hyggst lögsækja félagið þar sem
að hann telur að uppsögn hans
fyrir skömmu hafi verið ranglát.
Blackwell stýrði félaginu í átta
mánuði en var rekinn fyrir
tveimur mánuðum. Sjálfur vildi
hann ekki tjá sig um málið en Ken
Bates, stjórnarformaður, neitaði
að eiga við hann viðræður um
uppbótargreiðslu. - esá
Kevin Blackwell:
Ætlar að lög-
sækja Leeds
FótboltI Ensku úrvalsdeildarfé-
lögin Blackburn og Tottenham
hafa bæði mótmælt rauðu
spjöldunum sem Tugay og
Hossam Ghaly fengu í leik
liðanna á sunnudag við enska
knattspyrnusambandið. Tugay
fékk rautt fyrir að brjóta á Ghaly
sem fékk sjálfur reisupassann
þegar hann virtist gefa Michael
Gray olnbogaskot undir lok
leiksins. Búist er við viðbrögðum
sambandsins í dag. - esá
Blackburn og Tottenham:
Mótmæla rauðu
spjöldunum
rautt phil dowd sýnir hér tugay,
leikmanni Blackburn, rauða spjaldið í
leiknum gegn tottenham.
nordic pHotos/getty
FótboltI Franski varnarmaðurinn
William Gallas verður frá keppni
í „nokkrar vikur“ eftir að hafa
meiðst á læri á æfingu hjá
Arsenal. Arsene Wenger, stjóri
liðsins, sagði að það væri slæmt
að missa Gallas sem hefur staðið
sig vel síðan hann kom til
félagsins í sumar. „Það er þó gott
tækifæri fyrir ungan leikmann að
fá að sanna sig,“ sagði hann.
Búist er við að Philippe Senderos
eða Johan Djorou taki hans stað.
Þá sagði Gallas í viðtali að
hann gæti frekar hugsað sér að
enda ferlinn á Ítalíu eða Spáni en
hjá Arsenal. - esá
William Gallas:
Verður frá í
nokkrar vikur
FótboltI Ólafur Garðarsson, lög-
maður og umboðsmaður knatt-
spyrnumanna, segir í viðtali við
fréttastofu BBC að Eggert Magn-
ússon muni færa West Ham vel-
gengi en búist er við að hann muni
í dag ganga frá kaupum á félag-
inu. „Hann er áhugasamur, kröft-
ugur og segir skoðanir sínar
umbúðalaust. Hann nýtur vana-
lega velgengni í hverju sem hann
tekur sér fyrir hendur og það er
erfitt að halda aftur af honum ef
hann tekur að sér nýtt verkefni,“
er haft eftir Ólafi.
Greinarhöfundur segir að undir
stjórn Eggert hafi Knattspyrnu-
samband Íslands skilað hagnaði
öll þau ár sem hann hafi gegnt for-
mennsku þar. Ólafur segir það
bera vitni um skarpskyggni hans í
fjármála- og viðskiptaheiminum.
„Það er stöðug stofnun og jafnvel
þótt að sjónvarpstekjur hafi
minnkað vegna slæms gengis
landsliðsins í forkeppnum fyrir
Evrópu- og heimsmeistarakeppnir
hafa þeir geta stólað á fjármuni
sem lagðir voru til hliðar árin
áður.“
Hann segir einnig að Eggert sé
klókur samningamaður og það
sýni sig í samskiptum hans við
ríkisstjórn Íslands, FIFA og UEFA.
„Fyrir sex árum voru engar knatt-
spyrnuhallir á Íslandi. Nú eru þær
sex talsins. Þá hefur KSÍ staðið að
byggingu allt að hundrað spar-
kvalla um allt land og endurbætur
á þjóðarleikvanginum í Laugardal
eru vel á veg komnar.“
Ólafur segir að hann þekki
einnig Björgólf Guðmundsson vel
en hann er aðalbakhjarl Eggerts í
tilboði sínu í West Ham. „Hann
var stjórnarformaður KR í mörg
ár. Hann er klókur, nýtur vel-
gengni og afar viðkunnanlegur.
Þrátt fyrir ríkidæmi hans kemur
hann eins fram við alla. Hann er
góður í mannlegum samskiptum.“
- esá
Ólafur Garðarsson segir að eggert
muni sóma sér vel sem stjórnarformað-
ur West Ham.
eGGert maGnússon Verður að öllum
líkindum næsti stjórnarformaður West
Ham. FréttaBlaðið/Hari
Ólafur Garðarsson umboðsmaður hefur trú á Eggerti Magnússyni:
Eggert færir West Ham velgengni
FótboltI Paul Scholes, leikmaður
Manchester United, viðurkennir
að hann íhugaði að gefa aftur kost
á sér í enska landsliðið sem hann
hætti að leika með að loknu
Evrópumeistaramótinu í Portúgal
árið 2004. Scholes er 31 árs
gamall og hefur nýr landsliðs-
þjálfari Englendinga, Steve
McClaren, tvívegis sett sig í
samband við hann með það fyrir
augum að fá hann til að endur-
skoða afstöðu sína.
„Það er mikill heiður að
landsliðsþjálfarinn bað mig um
að snúa aftur og íhugaði ég það
vandlega. En ég ákvað á endanum
að þess væri ekki þörf,“ sagði
Scholes. - esá
Paul Scholes og landsliðið:
Íhugaði að gefa
aftur kost á sér
scholes stendur fast á ákvörðun sinni
um að leika ekki aftur með enska lands-
liðinu. nordic pHotos/getty