Fréttablaðið - 26.11.2006, Síða 4
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknar-
flokksins, deilir þeirri skoðun Valgerðar Sverrisdótt-
ur utanríkisráðherra að það væri minna skref að stíga
fyrir Íslendinga að ganga í Evrópusambandið en
aðildin að Evrópska efnahagssvæðinu var á sínum
tíma.
„Það var stórkostlegt framfaraskref þegar við
gengum í Evrópska efnahagssvæðið og það hefur haft
stórkostleg áhrif á þróunina á Íslandi,“ segir Jón.
Hann ítrekar um leið fyrri orð sín um að fyrst sé að ná
langvarandi og varanlegum stöðugleika í efnahagslíf-
inu áður en spurningar um hugsanlega aðild að ESB
komi á dagskrá. „Þetta tekur fjögur til fimm ár. Á
þeim tíma breytist veröldin; bæði Ísland og Evrópu-
sambandið, en þá getum við fjallað um þetta út frá
styrkleika okkar og metnaði.“
Guðni Ágústsson, varaformaður flokksins, segir
ummæli Valgerðar hluta af fræðilegri umræðu um
málið. „Margir héldu fram að EES væri forstofan og
fyrst við hefðum sagt A þyrftum við að segja B. EES-
samningurinn var stórt skref og honum hafa fylgt
mikil tækifæri sem hafa breytt íslensku samfélagi
mikið.“ Aðild að Evrópusambandinu sé hins vegar
gríðarlega stórt og pólitískt mál. „Það kemur auðvitað
fram hjá Valgerði að það snýr að okkar auðlindum og
sjálfsákvörðunarrétti þannig að á meðan okkur líður
vel og ráðum okkar auðlindum sjálf sé ekki að neitt
knýi á um átök um þetta mál.“
Sigurgeiri Þorgeirssyni, framkvæmdastjóra
Bændasamtakanna, líst svo á áform Alþjóðaviðskipta-
málastofnunarinnar (WHO) um aukið frelsi í viðskipt-
um með búvörur að svo gæti farið að íslenskur land-
búnaður ætti skárra skjól innan Evrópusambandsins.
Guðni lítur málið öðrum augum og kveðst ekki sjá
fyrir sér að Evrópusambandið hafi, eftir inngöngu
margra stórra og fátækra ríkja, ráð á að styrkja land-
búnað með sama hætti og áður. Hann segir einnig að
landbúnaður í Finnlandi og Svíþjóð hafi lent í miklum
þrengingum við inngöngu ríkjanna í ESB. „Menn hafa
áhyggjur af alþjóðasamningunum en það er ekki hægt
að fullyrða um að okkur mundi ganga betur í Evrópu-
sambandinu. Íslenskum landbúnaði hefur vegnað vel
undir hægfara þróun þar sem tollar hafa lækkað stig
af stigi. Greinin hefur verið að búa sig undir framtíð-
ina og ég trúi að hún muni standast þessa WTO-samn-
inga.“
Guðni segir óþarfa að
takast á um ESB-mál
Varaformaður Framsóknarflokksins segir að á meðan Íslendingum líði vel og
ráði auðlindum sínum knýi ekkert á um átök um Evrópumál. Formaður flokks-
ins segir fyrst hægt að fjalla um hugsanlega aðild eftir fjögur til fimm ár.
Spurning er hvort
hagkvæmt sé að huga að nýjum
höfuðstöðvum fyrir lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu í tengslum
við nýtt gæsluvarðhalds- og mót-
tökufangelsi að því er kom fram í
svari Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra við fyrirspurn
Björns Inga Hrafnssonar, vara-
þingmanns Framsóknarflokksins
og formanns borgarráðs á Alþingi
á föstudag. „Slíkt sambýli er vel
þekkt í nágrannalöndum okkar og
hefur reynst vel bæði faglega og
fjárhagslega.“
Björn sagði nýbyggingar í þágu
fangelsa vera forgangsverkefni í
byggingarmálum hjá dómsmála-
ráðuneytinu, þar á meðal bygging
nýs fangelsis á höfuðborgarsvæð-
inu.
Valtýr Sigurðsson fangelsis-
málastjóri segir að rætt hafi verið
um að vel passaði að hafa lögreglu
í námunda við nýtt fangelsi sem
áformað er að rísi á svæðinu á
Hólmsheiði. „Það er núna verið að
gera forathugun og þarfagrein-
ingu og gert ráð fyrir tveimur
árum í þá vinnu. Áformað er að
fangelsið verði risið árið 2010.“
Valtýr gerir ekki ráð fyrir að
áform um staðsetningu breytist.
„En það er þó ekki heilagt, bara að
við fáum þessa vinnuaðstöðu.“
Björn Ingi segir heilmikil tíð-
indi felast í þessu svari dómsmála-
ráðherra og ljóst að þetta mál verði
tekið til umræðu milli borgaryfir-
valda og ríkisins í kjölfarið.
Sambýli lögreglu og fangelsis
Skógræktarfélag
Reykjavíkur hélt upp á sextíu ára
afmæli sitt í gær. Málþing var
haldið í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur þar sem Stefán P.
Eggertsson, formaður félagsins,
flutti ávarp ásamt fleirum.
Á þinginu var Páli Samúels-
syni, fyrrverandi eiganda Toyota-
umboðsins á Íslandi, veittur
þakklætisvottur vegna framlags
hans til skógræktar í Esjuhlíðum.
Skógræktarfélag Reykjavíkur er
eitt af fimmtíu og níu skógrækt-
arfélögum sem starfa undir
Skógræktarfélagi Íslands. Í
félaginu eru yfir þúsund manns.
Sextugsafmæli
í Ráðhúsinu