Fréttablaðið - 26.11.2006, Page 12
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnd-
uð okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa
Andrésar Magnússonar
Kleppsvegi 10, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild B-4
á Landspítalanum í Fossvogi fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Svava Jónsdóttir
Jóna Andrésdóttir Sigurður Ingi Ingólfsson
Edda Andrésdóttir Stefán Ólafsson
Gunnar Andrésson Margrét Jónsdóttir
Barnabörn, langafabörn og langalangafabarn. Þökkum innilega samúð, hlýju og vináttu
við andlát og jarðarför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa okkar,
Jóns Guðmundssonar
frá Raufarhöfn.
Þökkum einnig starfsfólki á Seli frábæra umönnun.
Hrefna Friðriksdóttir
Sigurbjörg Jónsdóttir Þórarinn Stefánsson
Friðrik Jónsson Steinunn Leósdóttir
Gissur Jónsson
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurbjörn Þorleifsson
Maríubaugi 123, Reykjavík,
varð bráðkvaddur föstudaginn 17. nóvember.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 28.
nóvember kl. 15.00.
Hulda Fríða Ingadóttir
Þorleifur Sigurbjörnsson Catherine Elisabet Batt
Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Ármann Fr. Ármannsson
Ingi Guðmundsson Hildur Pálsdóttir
Jón Ó. Guðmundsson Erla Guðný Gylfadóttir
Andri Ingason Birta Ingadóttir
Sara Huld Ármannsdóttir Thelma Huld Ármannsdóttir
Alexander Batt Þorleifsson Guðný Dís Jónsdóttir
Ólafur Þorláksson
bóndi á Hrauni í Ölfusi,
er látinn. Útför hans fer fram frá Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn laugardaginn 2. desember kl. 13:30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeir
sem vilja minnast hans eru beðnir að láta dvalarheimil-
ið á Blesastöðum í Árnessýslu njóta þess.
Helga Sigríður Eysteinsdóttir
Þórdís Ólafsdóttir Ólafur Þór Ólafsson
Guðrún Ólafsdóttir Helgi Ólafsson
Hjördís Ólafsdóttir Origer Marc Origer
Ásdís Ólafsdóttir Sverrir J. Matthíasson
Þórhildur Ólafsdóttir Hannes Sigurðsson
Herdís Ólafsdóttir Þórhallur Jósepsson
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigríður Þorvarðardóttir
Dvalarheimilinu Seljahlíð,
andaðist laugardaginn 11. nóvember. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir til
allra sem hafa sýnt okkur samúð og vinarhug.
Eva D. Þórðardóttir Kristján J. Bjarnason
Valdís Þórðardóttir
Þórður Þórðarson
Þorvarður Þórðarson Guðríður Vestars
barnabörn og barnabarnabörn.
Gröf Tutankamons rofin
Ég lýg aldrei. Nema
kannski til að gera gaman-
sögu skemmtilegri.
Helgi Ólafsson stórmeistari varð fimm-
tugur í sumar og af því tilefni blása
vinir hans og velunnarar til afmælis-
skákmóts í Reykjanesbæ í dag.
„Ég er mjög ánægður með þetta,“
segir Helgi, fullur tilhlökkunar, en
hann mun í dag mæta mörgum göml-
um andstæðingum við skákborðið.
„Þarna verða flestir stórmeistarar
landsins og svo mætir Ivan Sokolov,
gamall vinur okkar.“ Sokolov er firna-
sterkur serbískur stórmeistari sem
hefur margoft sótt landið heim og lagt
þung lóð á vogarskálar skákvakningar-
innar á Íslandi með Skákfélaginu
Hróknum.
Auk Helga og Sokolovs taka stór-
meistararnir Margeir Pétursson, Jón L.
Árnason, Friðrik Ólafsson, Jóhann
Hjartarson og Friðrik Ólafsson þátt í
mótinu. Hendrik Danielsen, Þröstur
Þórhallsson, Helgi Áss Grétarsson,
Lenka Ptacnikova, Róbert Harðarson
og fleiri munu svo einnig blanda sér í
baráttuna.
Helgi segir því að það megi með
sanni kalla þetta stóran góðra vina
fund. „Þarna verða samankomnir
margir samferðamenn, vinir og fóst-
bræður. Gamlir skólafélagar mínir úr
Vestmannaeyjum, Árni Sigfússon bæj-
arstjóri og Ásmundur Friðriksson hafa
verið að bræða þetta mót með sér síðan
í sumar og ég er auðvitað til í tuskið.“
Helgi hefur oft teflt við Ivan
grimma, Sokolov, og segist alltaf hafa
gaman af því að mæta honum. „Ég hef
verið að vinna hann dálítið undanfarið
og það er alltaf jafnskemmtilegt en ég
hef það á tilfinningunni að hann verði
mjög harður núna.“
Helgi er skólastjóri Skákskólans og
hefur það að aðalstarfi að þjálfu upp
næstu kynslóðir íslensks skákfólks en
er þó ekki alveg hættur að keppa. „Við,
þessir gömlu fjórmenningar svoköll-
uðu, Margeir, Jóhann, Jón L. og ég,
höfum teflt miklu minna í seinni tíð en
ég keppi nú með Taflfélagi Vestmanna-
eyja. Við erum í öðru sæti núna á miðju
keppnistímabili og enduðum í öðru
sætinu í fyrra.“
Afmælisskákmótinu verður lýst
beint á sjónvarpsstöðinni Sýn og það
er enginn annar en sjálfur Hemmi
Gunn sem sér um lýsinguna.
„Við erum miklir vinir og höfum
brallað ýmislegt saman,“ segir Hemmi
um Helga. „Hann á þetta skilið, ekki
síst vegna þess hversu vel hann hefur
sinnt unglingastarfinu í skákinni.“
Hemmi spáir miklu fjöri á mótinu
og gengur að því vísu að einhverjar
flugeldasýningar verði á skákborðun-
um. „Þeir eru svo flinkir þessir meist-
arar og vilja allir vera með og það
verður gaman að fylgjast með svip-
brigðum þeirra enda er þetta sér þjóð-
flokkur. Þeir eru mikið í sínum heimi
en ég slapp þarna inn og nýt þess að
hafa kynnst þessu fólki.“
Afmælismót Helga Ólafssonar hefst
í Listasal Duus-húsa klukkan 12 og
stendur til klukkan 16. Keppendur
tefla hraðskákir á mótinu og aðgangur
að viðburðinum er ókeypis.