Fréttablaðið - 26.11.2006, Side 25
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
- vi› rá›um
Háskólinn á Bifröst óskar eftir að ráða
rektor til starfa.
Rektor á Bifröst
Starfssvið
• Rektor annast stjórnun og rekstur
háskólans í umboði stjórnar og ber
ábyrgð gagnvart henni. Hann ber
ábyrgð á að starfstilhögun öll sé í
samræmi við hlutverk, markmið og
gæðakröfur.
• Rektor ábyrgist öll fjármál
háskólans í umboði stjórnar.
• Rektor kemur fram fyrir hönd
háskólans gagnvart starfsmönnum,
nemendum og út á við og hefur
forgöngu um þróunarstarf og
stefnumótun.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is fyrir 11. desember nk.
Númer starfs er 6086.
Upplýsingar veita Þórir Þorvarðarson og
Katrín S. Óladóttir.
Netföng: thorir@hagvangur.is og
katrin@hagvangur.is
Háskólastjórn ræður rektor. Valnefnd mun meta umsóknir og skila tillögum til stjórnar.
Háskólinn á Bifröst á sér 88 ára
sögu sem stjórnendaskóli á breiðum
grundvelli. Hlutverk hans er að búa
nemendur undir ábyrgðar-, forystu-
og stjórnunarstörf í viðskiptalífi og
samfélagi, jafnt í innlendu sem
alþjóðlegu umhverfi. Bifröst vill veita
hæfum einstaklingum sem búa yfir
sköpunargleði, frumkvæði og
samskiptahæfni tækifæri til háskóla-
náms sem hentar þeirra þörfum. Við
inntöku nýrra nemenda leitast
háskólinn við að veita jöfn tækifæri til
náms, óháð kynferði, aldri, efnahag,
fötlun eða búsetu og skapa þannig
fjölbreyttan hóp nemenda með
ólíkan bakgrunn, menntun og
reynslu.
www.bifrost.is
Menntun og hæfniskröfur
• Doktorsgráða og/eða meistara-
gráða er nauðsynleg. Að öðru jöfnu
er reiknað með að umsækjandi með
doktorsgráðu verði ráðinn.
• Umtalsverð stjórnunarreynsla úr
íslensku atvinnulífi er nauðsynleg.
• Alþjóðleg reynsla er mikill kostur.
• Góð tengsl við atvinnulífið og
þekking á háskólaumhverfi er
mikilvæg.
• Við leitum að kraftmiklum og
hugmyndaríkum einstaklingi sem
hefur góða samskiptahæfni og
frumkvæði til að leiða skólann áfram
í alþjóðlegu og síbreytilegu um-
hverfi háskólastigsins.