Fréttablaðið - 26.11.2006, Page 30
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
3
51
09
1
1/
06
- Lifið heil
www.lyfja.is
Lyfjafræðingur – Höfn í Hornafirði
Óskum eftir lyfjafræðingi til að veita lyfjaútibúi í flokki 1 á Höfn í Hornafirði forstöðu. Forstöðumaður ber ábyrgð
á faglegum rekstri lyfjaútibúsins, annast daglegan rekstur þess og ber ábyrgð á að unnið sé samkvæmt lögum og
reglugerðum um lyfjaútibú.
Hæfniskröfur: Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Sækja má um starfið á vefsetri okkar www.lyfja.is eða senda umsókn til starfsmannastjóra.
Nánari upplýsingar veitir Þorgerður Þráinsdóttir, starfsmannastjóri, í síma 530 3800, thorgerdur@lyfja.is
Umsóknarfrestur er til 10. desember. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því
að starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er
starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði
þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi.
Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.