Fréttablaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 71
23 24 25 26 27 28 29
Sársaukafull fjölskyldumynd
Systurnar Kate og Anna eru eins og
hverjar aðrar unglingsstúlkur, 16
og 13 ára, að vakna til lífsins og vit-
undar um sjálfa sig, fáandi áhuga á
útliti sínu og hinu kyninu. Þær deila
herbergi, eru trúnaðarvinkonur,
eru ósammála um ýmsa hluti, rífast
og sættast og eru á margan hátt
mjög venjulegar. Í lífi þeirra er þó
fátt venjulegt.
Kate hefur verið með sjaldgæft
afbrigði af hvítblæði frá tveggja
ára aldri og Anna var bókstaflega
framleidd til að halda halda lífi í
Kate eftir nákvæmt glasafrjóvgun-
arval – sjá henni fyrir varahlutum.
Á þeim þrettán árum sem hún hefur
lifað hefur hún margoft þurft að
ganga undir erfiðar aðgerðir og nú
stendur hún frammi fyrir því að
gefa Kate annað nýra sitt. Hún neit-
ar. Í fyrsta sinn – og fær sér lög-
fræðing til að verja rétt sinn.
Í fjölskyldu þeirra snýst allt um
veika barnið Kate. Anna er vara-
hlutalager, eldri bróðir þeirra,
vandræðaunglingurinn Jesse, er,
löngu týndur í stríði móðurinnar
við sjúkdóminn. Það er hún sem
stjórnar öllu og stýrir, faðirinn
setur ekki spurningarmerki við
ákvarðanir hennar. Það rís enginn
gegn þessari sterku, ákveðnu konu
– fyrr en Anna segir nei.
Frásagnarmáti sögunanr er
óvenulegur. Anna er ekki ein um að
segja hana, heldur fær lesandinn
að skyggnast inn í hugarheim Kate,
móðurinnar, föðurins, Jesses, lög-
manns Önnu, og konunnar sem er
skipuð réttargæslumaður hennar.
Anna þarf ekki einungis að taka
ákvörðun sem varðar eigið líf og
verður til þess að systir hennar
deyr, heldur þarf hún að standa á
ákvörðuninni gagnvart móður sem
virðist all óbilgjörn. Átökin eru
fyrst og fremst á milli þeirra
tveggja. Til að byrja með er erfitt
að hafa samúð með móðurinni sem
virðist fátt kunna betur en að þrýsta
á sektarkenndarhnappinn hjá fjöl-
skyldumeðlimunum. En smám
saman verður þreyta hennar skilj-
anleg; hún er við það að bugast í
stríðinu við sjúkdóminn. Ef ekki
væri fyrir varahlutalagerinn Önnu,
væri Kate löngu dáin. En það er
enginn að nærast í þessari fjöl-
skyldu, enginn til að veita næringu.
Það eru allir að tapa einhverju
stríði. Fjölskyldan fer í gegnum
réttarhöld þar sem úrskurða á um
læknisfræðilegan sjálfsákvörðun-
arrétt Önnu og í því ferli koma upp
flóknar sið- og lögfræðilegar spurn-
ingar sem er stillt upp andspænis
tilfinningalegum spurningum og
því flókna mynstri sem ríkir í fjöl-
skyldu sem ekki hefur stjórn á
aðstæðum sínum.
Á ég að gæta systur minnar er
virkilega áhrifarík saga. Það er
síður en svo að orðræðan í henni sé
um lagaflækjur og heimspeki. Það
segja allir söguna eins og þeir séu á
trúnaðarstigi við lesandann, út frá
sínum leyndustu tilfinningum. Það
reynir enginn að fegra sig, heldur
afhjúpa persónurnar varnarleysi
sitt. Fyrir bragðið verða þær allar
áhugaverðar og framvindan aldrei
fyrirsjáanleg. Síst af öllu endirinn.
Þýðingin er prýðisvel unnin, text-
inn laus við að vera á nokkurn hátt
enskuskotinn, þvert á móti er oft
fallega unnið úr honum og alger-
lega án þess að fallið sé í væmna
pyttinn. Bók sem erfitt er að leggja
frá sér eftir að lestur er einu sinni
hafinn.
Hjartasjúkdómar og of há blóðfita - Ein helsta meinsemd samtímans?
Udo Erasmus heldur fyrirlestur á
Grand hótel Reykjavík 28. nóvember
kl. 10:00 - 12:00 fyrir fagfólk
og kl.19:30 - 22:00 fyrir áhugafólk.
Aðgangur er ókeypis!
Þetta er fyrirlestur fyrir alla þá sem glíma
við of háa blóðfitu, þá sem er umhugað um
meltingarstarfsemi sína og alls áhuga- og
fagfólks um þessi málefni.
Nánari upplýsingar hjá Heilsu í síma 533 3232
eða heilsa@heilsa.is
Udo‘s Choice vörurnar fást í Heilsuhúsinu, Lyfju og flestum heilsubúðum
Udo Erasmus er alþjóðlegt nafn í umræðunni um Omega-3 fitusýrur, kólesteról,
meltingu og almennt heilbrigði. Hann er í hópi helstu næringarfræðinga heims og
keppast vísindamenn um að vitna í rannsóknir hans. Einna þekktastur er hann fyrir
framlag sitt og þróun á Omega fitusýrum. Hann hefur ritað fjölda greina og bóka
um þessi viðfangsefni. Þekktust er bókin: „Fats that Heal Fats that Kills“
Afmælistónar 15:15
Tónlistarhópurinn Camerarctica
leikur á tvennum afmælistónleik-
um 15:15 í Norræna húsinu á
sunnudaginn. Á efnisskránni eru
verk eftir Wolfgang Amadeus
Mozart og Dimitri Sjostakovitsj í
tilefni afmælis tónskáldanna en á
þessu ári fagna tónlistarmenn 250
ára afmæli Mozarts og 100 ára
afmæli Schostakovitsch.
Um er að ræða fjölbreytt
kammerverk með mismunandi
hljóðfæraskipan sem hópurinn
hefur getið sér gott orð fyrir að
leika á tónleikum í Reykjavík og
vítt og breitt um landið síðastlið-
inn áratug.
Á fyrri tónleikunum kl. 13.15
verður leikinn flautukvartett eftir
W.A. Mozart, rómönsur op. 127
fyrir sópran, fiðlu, selló og píanó
eftir Sjostakovitsj og víólukvint-
ett eftir Mozart. Sérstakir gestir
Camerarctica á þeim tónleikum
eru Marta G. Halldórsdóttir sópr-
ansöngkona og Daníel Þorsteins-
son píanóleikari.
Á seinni tónleikunum kl. 15.15
eru á efnisskrá strengjakvartett
eftir Sjostakovitsj og klarinett-
kvintett eftir W.A. Mozart.
Tónleikarnir eru um klukku-
stundarlangir hvor um sig og á
milli þeirra gefst því gott tæki-
færi til þess að njóta veitinganna á
kaffistofu Norræna hússins.
Camerarctica hópinn skipa þau
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleik-
ari, Ármann Helgason klarinettu-
leikari, fiðluleikararnir Hildi-
gunnur Halldórsdóttir og Martin
Frewer, víóluleikararnir Guðrún
Þórarinsdóttir og Jónína Auður
Hilmarsdóttir og Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari
Tónleikarnir fara fram kl. 13.15
og 15.15. í Norræna húsinu.