Fréttablaðið - 26.11.2006, Qupperneq 82
Enska úrvalsdeildin
England - Championship
Skoska úrvalsdeildin
Þýska úrvalsdeildin
ÍR gerði sér lítið fyrir
og lagði Íslandsmeistara Njarð-
víkur í 32-liða úrslitum bikar-
keppni KKÍ og Lýsingar í karla-
flokki, 71-68. Var þetta fyrsti
leikur ÍR síðan Jón Arnar
Ingvarsson tók við liðinu.
„Ég gerði engar róttækar
breytingar á liðinu. Menn mættu
bara tilbúnir í slaginn og með rétt
hugarfar. Menn voru einbeittir og
staðráðnir í að vinna og er hægt að
fara langt á því,“ sagði Jón Arnar.
Hreggviður Magnússon skoraði
16 stig fyrir ÍR og Eiríkur
Önundarson 15.
ÍR lagði Íslands-
meistarana
Það var stór stund hjá
Eggerti Magnússyni í gær þegar
West Ham tók á móti Sheffield
United á heimavelli sínum. Þetta
var fyrsti leikur liðsins síðan hann
eignaðist félagið og náði það með
naumindum að landa þremur stig-
um með 1-0 sigri. Fyrir leikinn var
Eggert kynntur fyrir stuðnings-
mönnum og er óhætt að segja að
hann hafi fengið góðar móttökur á
Upton Park þar sem stuðnings-
menn Hamranna klöppuðu honum
lof í lófa. Hayden Mullins skoraði
eina mark leiksins þegar tíu mín-
útur voru til hálfleiks en undir lok
leiksins var mark dæmt af Sheffi-
eld United.
„Það var mikil pressa á okkur í
dag, nýr eigandi mættur og
mótherjinn var lið sem erfitt er að
brjóta á bak aftur. Hurð skall
nærri hælum en ég er hæstánægð-
ur með að hafa náð öllum stigun-
um og hafa haldið hreinu. Óvissan
sem hefur verið í kringum félagið
hefur skapað erfitt andrúmsloft
en nú eru öll mál komin á hreint og
í okkar höndum að byggja upp,“
sagði Alan Pardew, knattspyrnu-
stjóri West Ham, en liðið er nú í
fimmtánda sæti deildarinnar.
Neil Warnock, stjóri Sheffield
United, var allt annað en sáttur
við að markið undir lokin var
dæmt af. „Dómarar ættu að læra
eitthvað um fótbolta af okkur
stjórunum. Annars gerðum við
dýrkeypt mistök í vörninni og
fórum illa með okkar færi. En
úrvalsdeildin er frábær, ég veit að
við eigum í vandræðum en ég
elska þetta starf,“ sagði Warnock.
Argentínumaðurinn Carlos Tevez
var tekinn af velli úr liði West
Ham og var allt annað en sáttur.
Hann hélt rakleiðis heim á leið og
sá ekki sína menn landa sigrinum.
„Ég er mjög ósáttur við þessa
framkomu hans. Hann sýndi mér,
mínum starfsmönnum og öðrum
leikmönnum óvirðingu. Ég ætla að
hlusta á hans hlið, ég býst við að
þetta hafi bara verið vonbrigði hjá
honum en samt sem áður er það
engin afsökun. Hann var ekki tek-
inn af velli af því að mér fannst
hann lélegur, hann stóð sig mjög
vel í leiknum. Ég setti Teddy Sher-
ingham inn á til að verjast föstum
leikatriðum,“ sagði Pardew en
Tevez hefur enn ekki náð að skora
fyrir West Ham frá því hann kom
til félagsins.
Ívar Ingimarsson spilaði allan
leikinn fyrir Reading sem vann
Fulham 1-0 á útivelli. Á sautjándu
mínútu fékk Ian Pearce dæmda á
sig vítaspyrnu og jafnframt rautt
spjald en Kevin Doyle skoraði
eina mark leiksins úr vítinu.
Brynjar Björn Gunnarsson kom
inn sem varamaður eftir rúmlega
hálftíma leik hjá Reading en Heið-
ar Helguson sat allan leikinn á
varamannabekk Fulham. Her-
mann Hreiðarsson lék allan leik-
inn fyrir Charlton sem gerði 1-1
jafntefli gegn Everton en Her-
mann varð fyrir því óláni að skora
sjálfsmark. Charlton er enn í
neðsta sæti deildarinnar.
Steven Gerrard kom Liverpool
til bjargar og skoraði sitt fyrsta
deildarmark á leiktíðinni þegar
liðið vann Manchester City 1-0.
„Hann er kominn í gang og það er
mjög mikilvægt fyrir okkur.
Hann er leikmaður í heims-
klassa og með spilamennsku sinni
í síðustu leikjum eykst sjálfs-
traust hans,“ sagði Rafael Benítez,
knattspyrnustjóri Liverpool.
West Ham vann nauman sigur á Sheffield United en fyrir leikinn var Eggert Magnússon kynntur fyrir
stuðningsmönnum og hlaut góðar móttökur. Carlos Tevez rauk heim eftir að hafa verið tekinn af velli.
Keppni IFSA um
sterkasta mann heims lauk í
Reiðhöllinni í Víðidal í gær og bar
Litháinn Zydrunas Savickas sigur
úr býtum annað árið í röð eftir
harða keppni við Rússann Mikhail
Koklyaev. Þeir voru jafnir eftir
fyrri keppnisdaginn og fyrir
síðustu keppnisgreinina þar sem
Savickas hafði betur.
Benedikt Magnússon var eini
íslenski keppandinn sem komst í
úrslit og lenti hann í sjöunda sæti
eftir að hafa verið í því fjórða
eftir fyrri keppnisdaginn. Alls
komust tólf keppendur í úrslit.
Benedikt í sjö-
unda sæti
Arsenal hefur lengi átt í
erfiðleikum með Bolton og sú varð
raunin í viðureign liðanna á
Reebok vellinum í gær. Abdoulaye
Faye kom Bolton yfir með skalla á
níundu mínútu en Kevin Davies
var heppinn að fá ekki rauða
spjaldið í fyrri hálfleik eftir að
hafa hrint Emmanuel Eboue.
Nicolas Anelka var að mæta sínu
gamla félagi og sýndi hann enga
vægð. Hann skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Bolton í úrvalsdeild-
inni á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Það var algjört gull af marki,
óverjandi þrumuskot af löngu
færi.
Strax í næstu sókn á eftir
minnkaði Arsenal muninn með
skallamarki frá Gilberto Silva og
staðan því 2-1 í hálfleik. Eitt mark
kom í síðari hálfleik og aftur var
Anelka á ferðinni. Arsenal fékk
sín færi í seinni hálfleik en liðið
komst næst því að skora þegar
Emmanuel Adebayor og Cesc
Fabregas áttu skot sem höfnuðu í
tréverkinu á marki Bolton.
„Þetta var virkilega sætur
sigur og mörkin hjá Anelka mjög
mikilvæg fyrir hann. Eftir að hafa
gengið erfiðlega að finna net-
möskvana er hann vonandi kom-
inn í rétta gírinn,“ sagði Sam All-
ardyce, knattspyrnustjóri Bolton.
Arsenal er í sjötta sæti deildarinn-
ar eftir leiki gærdagsins en liðið
er tólf stigum á eftir toppliði
Manchester United. Bolton hefur
leikið einum leik meira en Arsen-
al, er í þriðja sæti og tíu stigum
frá efsta sætinu.
Anelka í ham gegn Arsenal