Fréttablaðið - 06.01.2007, Qupperneq 2
„Okkar niðurstaða er
sú að það hafi algerlega eðlilega
verið staðið að skoðun á mannin-
um og það hafi ekkert við skoðun-
ina bent til þess sem síðar átti sér
stað,“ segir Matthías Halldórsson
landlæknir um niðurstöður rann-
sóknar á aðdraganda þess að rúm-
lega fertugur íslenskur karlmaður
lést um borð í Norrænu í október.
Morguninn eftir að maðurinn
steig um borð í Norrænu á Seyðis-
firði sáu tveir erlendir klefafélag-
ar Íslendingsins að hann var lát-
inn í rúmi sínu. Krufning
landlæknis í Færeyjum leiddi í
ljós að banameinið var innvortis
blæðingar frá milta.
Þriðjudagskvöldið 17. október,
kvöldið áður en maðurinn fór um
borð í Norrænu, velti hann bíl
sínum í Berufirði. Sjúkraflutn-
ingamenn úr Djúpavogi óku
honum í kjölfar-
ið til skoðunar á
heilsugæslu-
stöðunni á Egils-
stöðum.
Móðir
mannsins ósk-
aði eftir því að
landlæknir
kannaði hvort
sonur hennar
hefði fengið við-
eigandi læknismeðferð.
Matthías segir bílveltuna ekki
hafa verið mjög harkalega.
Maðurinn hafi aðeins kvartað
undan lítilsháttar höfuðverk en
þess utan sagst vera í góðu lagi.
Eftir að vörubílstjóri sem kom að
slysinu hafi ekið honum til sjúkra-
flutningamannanna á Djúpavogi
hafi hann meira að segja óskað
eftir því að áður en farið væri með
hann til Egilsstaða yrði ekið til
baka að slysstaðnum eftir munum
úr bílnum.
Einnig segir landlæknir að
maðurinn hafi á engum tímapunkti
misst meðvitund eða virkað eins
og hann væri við skerta meðvit-
und.
Vakthafandi læknir á Egilsstöð-
um skoðaði manninn á heilsu-
gæslustöðinni. Eingöngu fundust
lítils háttar áverkar og skrámur á
manninum. Lungna- og hjarta-
hlustun sýndu ekkert óeðlilegt.
Þreifað var á kvið mannsins sem
reyndist ekki aumur.
Um nóttina gisti maðurinn á
hóteli á Egilsstöðum. Morguninn
eftir sást til hans taka saman far-
angur sinn, meðal annars þunga
steina sem hann hugðist flytja
með sér til Danmerkur þar sem
hann bjó. Hann sigldi síðar um
daginn með Norrænu frá Seyðis-
firði áleiðis til Færeyja.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins báru útlendingarn-
ir tveir sem voru með Íslendingn-
um í klefa að hann hafi verið undir
áhrifum áfengis þá um kvöldið.
Þeir munu hafa þurft að styðja
hann til rekkju eftir að hann hafi
fallið við inni á salerni. Um morg-
uninn hafi hann verið látinn.
„Í tilvikum sem þessu er afar
sjaldgæft að blæðing taki sig eftir
svo langan tíma en það er hugsan-
legt að hnjask við fall hafi getað
valdið áverka ofan í það sem áður
hafði gerst og komið af stað blæð-
ingu. Um það verður þó ekkert
fullyrt,“ segir Matthías Halldórs-
son.
Fékk jafnvel áverka
um borð í Norrænu
Matthías Halldórsson landlæknir segir algerlega eðlilega hafa verið staðið að
læknisskoðun á manninum sem lést um borð í Norrænu. Hugsanlega hafi hann
fengið áverka á ferjunni og innvortis blæðingar eftir bílveltu tekið sig upp.
Drengurinn sem fékk hjartastopp
í baði á heimili sínu á aðfangadag,
eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu, lést
miðvikudaginn
3. janúar
síðastliðinn á
Gjörgæsludeild
Landspítalans í
Fossvogi.
Hann hlaut
alvarlega
höfuðáverka
eftir að hafa
fengið hjarta-
stopp í baði sökum súrefnis-
skorts.
Sjúkraflutningamönnum og
lækni tókst að lífga drenginn við
á heimili drengsins og var hann í
skyndi fluttur á sjúkrahús.
Drengurinn hlaut alvarlega
höfuðáverka sem leiddu til ólækn-
andi veikinda.
Drengurinn var níu ára gamall
og hét Jón Ævar Ármannsson.
Lést vegna
höfuðáverka
Í dag, 6. janúar, er
þrettándinn haldinn hátíðlegur
víða um land. Í gegnum tíðina
hefur þótt til siðs að skjóta upp
flugeldum og kveikja brennur á
þessum síðasta degi jóla .
Tvær flugeldasýningar verða á
höfuðborgarsvæðinu; önnur við
Ráðhús Reykjavíkur klukkan hálf
sjö og hin klukkan níu á Rykvöll-
um í Mosfellsbæ.
Brennurnar eru fjórar og
verður kveikt í þeirri fyrstu við
Ægisíðu klukkan tuttugu mínútur
í fimm síðdegis. Á Valhúsahæð á
Seltjarnarnesi og við Brennu-
stæðið við gamla Gufunesbæinn
er stefnt að því að tendra bálið
klukkan sex og síðasta brenna
dagsins hefst klukkan korter yfir
átta neðan Holtahverfis í
Reykjavík.
Jólin kvödd á
þrettándanum
Óprúttnir sprelligosar hafa
skrumskælt auglýsingar frá
Kaupþingi sem birst hafa í fjöl-
miðlum upp á síðkastið. Í útgáfum
háðfuglanna á auglýsingunum
sést ungur maður allur útgrátinn
undir yfirskriftinni: „Skuldar
milljónir hjá Kaupþingi.“ Önnur
auglýsingin sýnir grátþrútna mið-
aldra konu, Svanhildi Nóadóttur,
sem er buguð yfir yfirdrætti með
22 prósenta vöxtum hjá Kaup-
þingi. Sú þriðja sýnir Tony Hall,
viðskiptavin Kaupþings í London,
og renna tárin í straumum niður
kinnarnar á honum.
Hallur Magnússon, sviðsstjóri
þróunar- og almannatengsla hjá
Íbúðalánsjóði, sendi tölvupóst
með myndunum óvart á stóran
hóp fólks í gær, meðal annars á
nokkra fjölmiðlamenn. „Ég get
ímyndað mér að það sé ólöglegt að
fara svona með höfundarverk
annarra, en ég hef ekki hugmynd
um hver skrumskældi auglýsing-
arnar,“ segir Hallur, en hann ætl-
aði aðeins að senda póstinn á
nokkra samstarfsmenn hjá Íbúða-
lánasjóði.
Hallur segir í gríni að hann sé
líklega í vondum málum fyrir að
senda auglýsingarnar til svona
margra manna af netfangi sínu
hjá Íbúðalánasjóði. „Þetta er
slæmt stöðu minnar vegna. En um
var að ræða mistök hjá mér en
ekki viljaverk,“ segir Hallur.
Frelsisverðlaun
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna (SUS) voru afhent í fyrsta
sinn við hátíðlega athöfn í Valhöll
í gær. Þau eru veitt í tveimur
flokkum, annars vegar í flokki
einstaklinga og hins vegar í flokki
félagasamtaka.
Í einstaklingsflokknum féllu
þau Andra Snæ Magnasyni
rithöfundi í skaut en í flokki
félagasamtaka hlaut Andríki,
útgefandi Vefþjóðviljans,
verðlaunin.
Verðlaunin eru kennd við
Kjartan Gunnarsson, sem nýlega
lét af störfum sem framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins eftir
áratuga starf.
Andri og And-
ríki verðlaunuð
Sorphirða Vesturlands urðaði samtals
179 tonn af hvalúrgangi vegna veiða á sjö langreyð-
um síðasta haust. Miðað við áætlaða meðalþyngd
langreyðanna er það rúmur helmingur af heildar-
þyngd þeirra.
Hrefna Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Sorphirðu Vesturlands, segir að úrgangurinn hafi
verið innyfli, afskorningar og bein. Úrgangurinn hafi
verið meðhöndlaður eins og hver annar sláturúrgang-
ur og grafinn á urðunarstað sorphirðunnar í Fíflholt-
um á Mýrum.
Hún segir að innheimt hafi verið gjald fyrir hvert
kíló, 8,70 krónur að viðbættum virðisaukaskatti.
Kostnaður við urðunina var því um tvær milljónir
króna. Hún segir það ekki óeðlilega mikið þar sem
mikið pláss fari undir úrganginn á urðunarsvæðinu.
Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur Hafrann-
sóknastofnunarinnar, segir að meðalþyngd á lang-
reyð sé um 40 tonn, en þar sem þau dýr sem veidd
voru hafi verið stór sé óhætt að reikna með að meðal-
þyngd þeirra hafi verið um 50 tonn. Því fór um helm-
ingurinn af þyngd langreyðanna sjö í úrgang.
Helmingurinn fór í úrgang
Karlmaður í Hafnar-
firði er ósáttur við að þurfa að
greiða eftirlitsgjald til bæjarins
vegna tveggja hunda. Maðurinn
er krafinn um gjaldið fyrir árin
2005 og 2006 en segir hundana
hafa verið aflífaða í mars 2005.
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar
og Kópavogssvæðis synjaði því
að fella niður eftirlitsgjöldin af
því að hann hefði ekki tilkynnt
aflífun hundanna fyrr en í
október síðastliðnum. Maðurinn
kveðst hins vegar á sínum tíma
bæði hafa hafa hringt í yfirvöld
og sent til þeirra tölvupóst um
málið þótt hann ætti ekki afrit af
póstinum lengur.
Rukkaður fyrir
dauða hunda
Tíðni ungbarnadauða
minnkaði umtalsvert milli ára á
Kúbu, niður í 5,3 látin börn á hvert
þúsund nýfæddra, en var 6,33 árið
2005.
Sambærilegar tölur eru ekki
komnar frá öllum ríkjum fyrir árið
2006, en miðað við tölur ársins 2005
er dánartíðnin minni á Kúbu en til
dæmis á Írlandi, Ítalíu og í
Færeyjum. Kanada er eina landið á
vesturhveli jarðar sem kemur
betur út úr samanburðinum, en þar
var hlutfall látinna ungbarna 4,75
af hverjum þúsund fæddum.
Þess má geta að á Íslandi var
hlutfallið 2,34 árið 2005.
Minni en í
Færeyjum
Árni, hefur þér verið boðin
kennarastaða?