Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 52
16
„Rope Yoga eftir barnsburð einblínir
á svokallaðar flæðiæfingar, sem eru
samblanda af kvið- og grindarbotns-
æfingum,“ segir Guðni Gunnarsson,
upphafsmaður Rope Yoga.
„Það er nefnilega þannig að
tilteknir vöðvar eru undir miklu
álagi meðan á barnsburði stendur,“
heldur Guðni áfram. „Segja mætti
að sumir vöðvar verði hreinlega
ofvirkir á meðan aðrir verða óvirk-
ir. Til að virkja óvirku vöðvana og
fá aftur flatan og stinnan maga er
besta ráðið að gera flæðiæfingarn-
ar sem fyrst eftir fæðingu. Líkt og
farið er með Rope Yoga eru bönd
notuð í þessum æfingum, þar sem
talið er að þau hjálpi að slaka á
tilteknum vöðvum á meðan aðrir
eru virkjaðir.“
Að sögn Guðna er einnig fjall-
að um næringartengsl móður og
barns á námskeiðinu. „Í Rope Yoga
er áhersla lögð á mikilvægi ásetn-
ingsins sem býr að baki næringu,“
útskýrir hann. „Gengið er út frá því
að hann skipti eins miklu máli og
fæðan sjálf, það er að segja hvaða
tilfinningar verið sé að næra hverju
sinni.“
Sem dæmi segir Guðni að
menn næri neikvæðar tilfinning-
ar eins og reiði neyti þeir fæðu
reiðir. „Að sama skapi næra þeir
kærleika, umhyggju, þakklæti eða
aðrar jákvæðar tilfinningar séu
þeir þannig stemmdir á meðan
þeir borða mat. Brjóstagjöf er ekki
undanskilin frá því en þá berst
líðan móðurinnar hverju sinni með
móðurmjólkinni og yfir til barnsins.
Það þarf þó ekki endilega að vera
bara í gegnum brjóstagjöf þar sem
tilfinningatengsl móður og barns
eru ákaflega mikil. Þess vegna er
alltaf mikilvægt að vera meðvitaður
um tilfinningar sínar, hvort sem
maður gefur fæðu eða þiggur.“
Hægt er að fræðast betur um
Rope Yoga eftir barnsburð og önnur
spennandi námskeið sem eru í boði
í Rope Yoga-setrinu á vefsíðunni
www.ropeyogasetrid.is og eins með
því að hafa samband í síma 535
3800 eða 843 6200. - rve
Móðir og barn í fyrirrúmi
Í Rope Yoga-setrinu í Listhúsinu í Laugardal er boðið upp á fjölda spennandi nám-
skeiða. Þar á meðal Rope Yoga námskeið miðað að þörfum nýbakaðra mæðra.
„Á síðunni má finna upplýsingar
um allt það sem styður okkur í átt
að heilbrigðari lífsstíl,“ segir Hildur
Jónsdóttir, ritstjóri www.heilsu-
bankinn.is. „Vefsíðan er hugsuð sem
daglegur fjölmiðill og sett er inn nýtt
efni á hverjum degi. Það eru aðilar
innan heilsugeirans sem skrifa fyrir
síðuna ásamt lausapennum.“
Á vefsíðunni má finna fimm
meginflokka sem eru matar-
æði, hreyfing, heilbrigður lífsstíll,
umhverfisvernd og ýmsar meðferðir
utan hins almenna heilbrigðiskerfis.
Unnið er að því að setja undirvef
fyrir hvern flokk þar sem farið verð-
ur enn dýpra í allt það er tengist
þessum fimm meginefnum. „Þang-
að inn munu þá safnast upplýsingar
yfir alla þá aðila sem bjóða þjónustu
sem tengjast inn á heilsugeirann,
jafn stór og hann er. Á endanum
verður síðan eins og stór regn-
hlíf yfir allt það sem hvetur okkur
í átt að betri heilsu og heilbrigðari
lífsstíl.“ - jóa
Heilsubankinn.is
Heimasíðan www.heilsubankinn.is fór í loftið um miðjan
nóvember og hefur fengið góðar viðtökur. Síðunni er
ætlað að vera gagnabanki um heilsutengd efni.
{ heilsublaðið }
Árskort, sem gilda í sal og sund í Sundlaug Kópavogs,
veita einnig aðgang að íþróttamiðstöðinni í Salahverfi.
Tilboðið gildir til 5. febrúar 2007.
Bjóðum upp á ókeypis prufutíma
undir leiðsögn þjálfara.
Panta þarf tímann með fyrirvara.
16 ára aldurstakmark.
Árskort gildir á báðum stöðum.
www.nautilus.is · Salalaug · Sími 570 0480 · Sundlaug Kópavogs · Sími 570 0470
AR
GU
S
/
06
-0
71
9
Árskort í líkamsrækt
og sund á aðeins
eða 2.333 kr. á mánuði.
Bjóðum VISA/EURO-léttgreiðslur.
27.990 kr.
Meira fjör, styttri
tími og skemmti-
legur félags-
skapur.
Hjá okkur færðu,
aðhald og stuðning
hvort sem þú þarft
að grennast eða
styrkjast. Regluleg-
ar líkamsmælingar
svo þú getir fylgst
með árangrinum.
Líkamsrækt fyrir konur
Betri heilsa á 30 mínútum
Hringdu og pantaðu
prufutíma og líkamsmælingu
50% afsláttur af þjónustugjaldi
Fyrir a
llar
konur
Curves, Bæjarlind 12 - Sími 566 6161 - curves@simnet.is