Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 77
Mörg þúsund ferðatöskur bíða
þess á Heathrow að komast
aftur til réttra eigenda.
Raunum þeirra þúsunda flugfar-
þega sem urðu fyrir barðinu á
Lundúnaþokunni fyrir jólin og
komust ekki leiðar
sinnar frá Heathrow-
flugvelli er enn ekki
lokið. Þúsundir
ferðataskna liggja í
haugum í komusal
flugvallarins, marg-
ar sennnilega fullar
af jólagjöfum sem
komust aldrei til
skila, þar sem far-
þegum var ekki leyft að
taka með sér þann farangur
sem þegar hafði verið afhentur
starfsmönnum flugvallarins.
Þessir farþegar þurfa nú og
næstu daga að koma aftur á flug-
völlinn og láta tollskoða varning
sinn áður en þeim er leyft að fara
með hann heim. Ekki eru allar
töskurnar fórnarlömb jólaþokunn-
ar heldur eiga tölvubilanir sök á
einsemd sumra þeirra þar sem tvö
stór tölvukerfi brugðust í desem-
ber á Heathrowflugvelli, annað
þann 17. desember og hitt þann
29. desember og sendu þau
bæði farangur á vitlausa staði
á flugvellinum. Starfsmenn
stærstu flugfélaganna
vinna nú hörðum höndum
að því að koma far-
angrinum til réttra
eigenda.
Mörg þúsund töskur í óskilum
Nýliðið ár var metár í fjölda
farþega um Keflavíkurflugvöll.
Rúmlega tvær milljónir farþega
fóru um Keflavíkurflugvöll á síð-
asta ári samkvæmt tölum frá vell-
inum. Það er í fyrsta sinn sem svo
há tala sést í farþegafjölda á einu
ári.
Alls fóru 2.019.470 farþegar um
völlinn á árinu 2006, samanborið
við 1.816.905 farþega árið 2005,
sem þá var metár. Fjölgunin
nemur rúmum 11 prósentum. Þó
fækkaði um 21.500 farþega í hópi
þeirra sem skiptu hér um vélar en
farþegum á leið inn og út úr land-
inu fjölgaði hins vegar verulega.
Tvær millj-
ónir 2006
Ferðaáætlun fyrir 2007 er kom-
in á heimasíðu ferðafélagsins
Útivistar, www.utivist.is.
Á nýju ferðaáætluninni er fjöldi
spennandi ferða og markmiðið er
að allir finni eitthvað við sitt
hæfi.
Meðal nýjunga ársins 2007 er
aukið framboð ferða um svæðið
frá og í kringum Sveinstind að
Básum. Svæðið nýtur mikilla vin-
sælda en það þykir einstaklega
skemmtilegt yfirferðar. Tjaldferð
í kringum Langasjó í Skaftár-
hreppi er einnig ný á dagskránni
auk fjölda annarra áhugaverðra
ferða.
Auðvelt er að gerast félagi í
Útivist en skráning fer fram á
heimasíðunni þar sem einnig er
hægt að nálgast allar frekari upp-
lýsingar.
Ferðast inn-
anlands
Ferðafélag Íslands stendur
fyrir göngu um höfuðborgina á
morgun.
Borgarganga Ferðafélags Íslands
nefnist Óvissuhringur innan höf-
uðborgarsvæðisins og verður
farin um áhugaverða göngu- og
hjólaleið innan höfuðborgarsvæð-
isins sem margir vita ekki af.
Merkir sögustaðir leynast víða og
fá þátttakendur óvænt sjónarhorn
á kunnuglegt umhverfi meðan á
göngunni stendur.
Lagt verður af stað klukkan
10.30 frá aðalinngangi skiptistöðv-
ar SVR í Mjóddinni en gangan
tekur tvo og hálfan til þrjá klukku-
tíma og endar á upphafsstað. Leið-
sögumaður verður Pétur H.
Ármannsson arkitekt og eru allir
velkomnir og þátttaka ókeypis.
Óvissuferð
um Reykjavík