Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 61
25 { heilsublaðið }
ISF
Unnið með eigin líkamsþyngd.
„Við erum að taka upp nýja hóptíma hjá okkur
sem heita „gravity“, en þetta eru 30-45 mínútna
alhliða og mjög öflugir styrktarþjálfunartímar
þar sem unnið er í sérhönnuðum bekkjum undir
stjórn kennara. Þetta hentar öllum, bæði byrj-
endum og lengra komnum, og er bæði fljótlegt
og árangursríkt,“ segir Guðlaug Birna Aradóttir,
aðstoðarrekstrarstjóri Betrunarhússins og Þrek-
hússins en „gravity“ tímarnir verða kenndir í
Sporthúsinu til að byrja með. „Þjálfunin gengur
út á að það er unnið með eigin líkamsþyngd, sem
þýðir að það eru ekki notuð lóð við æfingarnar
heldur aðeins sá líkamlegi styrkur sem hver og
einn býr yfir. Eftir því sem styrkur einstaklings-
ins eykst, því meira getur hann gert í bekkjunum.
Við erum með tíu svona bekki núna og til þess að
nýta sér tímana er heppilegast að fólk skrái sig
á sérstök námskeið í „gravity“ þjálfun, þó að við
munum einnig vera með opna tíma í þessu þegar
fram líða stundir.“
Hress
Endorfínveisla Eddu.
Hjá Hress í Hafnarfirði er Edda Björgvinsdóttir með
skemmtilega tíma sem hún kallar Endorfínveislu
Eddu. Ásamt Margréti Ákadóttur og Helgu Thorberg
ætla þær leikkonurnar að hittast þrjá daga vikunnar
milli 7.30-8.00 og dansa við „60´s tónlist“. Árangur-
inn er sá að fólk fer út úr þessum tímum í endorf-
ín vímu og einkar góðu skapi eftir mikinn svita og
góða brennslu. Linda Hilmarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Hress, segist hafa prófað tímana og mælir með
þeim. „Maður er kannski svolítið feiminn við þetta
til að byrja með, en þær eru svo ófeimnar konurnar
að maður gleymir sér bara og endar á því að fara í
ótrúlega gott skap. Þetta er sérlega hressandi,“ segir
hún. Hjá Hress er líka boðið upp á tíma í Power jóga,
boltaleikfimi og Body jam en það eru danstímar ætt-
aðir frá Les Mills sem hafa notið mikilla vinsælda
undanfarin misseri á líkamsræktarstöðvum víða um
heim.
Veggsport
Lifandi tónlist í spinning.
Um þessar mundir heldur Veggsport í Stór-
höfða upp á tuttugu ára afmæli sitt og býður
upp á margs konar nýjungar af því tilefni.
„Hópeinkaþjálfun er það nýjasta hjá okkur
en þá erum við með litla hópa, sex til átta
manns, sem borga minna fyrir vikið en fá
samt sem áður mikið út úr þjálfuninni. Æfing-
arnar samanstanda af fjölbreyttum áherslum,
meðal annars tímum í skvassi, body pump,
lyftingum og fleiru,“ segir Hafsteinn Daní-
elsson, framkvæmdastjóri Veggsports. „Svo
höfum við verið með „live spinning“, en
hingað hafa komið hljómsveitir í húsið sem
fara upp á svið og spila lifandi tónlist undir
spinning tímum. Þetta hefur mælst ótrúlega
vel fyrir enda myndast góð stemning í þess-
um tímum. Í afmælisveislunni okkar í mars
ætlum við að vera með stórt svona dæmi sem
verður örugglega mjög skemmtilegt,“ segir
Hafsteinn og bætir því við að nýir sem gaml-
ir viðskiptavinir á afmælisárinu fái sérstakan
glaðning þegar þeir ganga til liðs við stöðina
eða þegar þeir endurnýja kortin sín. „Stóri
spinning tíminn verður einhverntíma um
miðjan mars en allt bendir til þess að Eiríkur
Hauksson og félagar spili undir í spinning-
veislunni.“