Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 10
Árið 2004 lét Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri
kanna hvort mögulegt væri að
banna spilakassa í söluturnum en
þeir eru nú um 400 talsins. Alls
eru þeir tæplega 1000 á landinu
öllu. Borgarstjóri mun eftir helgi
fara fram á það við eigendur fyr-
irtækisins Háspennu að láta af
áformum um uppsetningu spila-
salar í verslunarmiðstöðinni í
Mjódd. Hafni þeir því ætlar borg-
arstjóri að grípa til aðgerða og er
tilbúinn að borga skaðabætur til
að ná sínu fram. Hann vill að sam-
félagið allt skoði hug sinn um
hvernig þessum málum verði fyrir
komið í framtíðinni.
Inntur eftir því hvort hann ætli
að beita sér gegn spilasölum ann-
ars staðar í borginni en í Mjódd, til
dæmis í öðrum verslunarmið-
stöðvum eða þar sem ungmenni
koma saman, segir Vilhjálmur að
ljóst sé að rekstur spilakassanna
sé löglegur og ómögulegt að aftur-
kalla þá starfsemi sem þegar er
hafin. „Ég sannreyndi að til að
banna spilakassa í söluturnum
þarf að grafa mjög djúpt lögfræði-
lega en mun hins vegar fara yfir
þessi mál heildstætt með eigend-
um spilakassanna og reyna að ná
sátt um að þeir séu ekki settir upp
í fjölskylduvænum fjölskyldu-
kjörnum í algjörri óþökk íbúanna.
Þetta er spurning um íbúalýðræði
og það á við í Mjóddinni.“ Vil-
hjálmur vill sjá spilasali einskorð-
aða við borgarhluta sem ætlaðir
séu fyrir atvinnustarfsemi. „Þeim
væri líka vel fyrir komið í Örfiris-
ey.“
Spilakössum hefur fjölgað
mikið á síðustu tveimur árum. Alls
voru spilakassar 492 í nóvember
2004. 266 kassar voru í eigu
Íslandsspils en 226 voru starf-
ræktir af Happdrætti Háskóla
Íslands. Nú rekur Íslandsspil 580
kassa og HHÍ 350. Borgarstjóri
segist vart trúa þessum tölum og
að samfélagið í heild verði að
skoða hug sinn um hvert það vilji
stefna í framtíðinni.
Brynjólfur Sigurðsson, for-
stjóri HHÍ, segist hafa sagt Vil-
hjálmi á fundi þeirra á fimmtu-
dag að hann féllist ekki á rök
hans, hvorki hvað varðar aðkomu
HHÍ að rekstri spilasalarins né
að salurinn hefði neikvæð áhrif á
þá sem þangað sækja. „Það átti
að banna fólki yngra en tvítugu
aðgang og þeim sem neytt höfðu
víns eða lyfja. Umsjónarmaður
er einnig í öllum spilasölum.“
Hann harmar að hafa ekki getað
kynnt starfsemina fyrir borgar-
yfirvöldum áður en borgarráð
ályktaði gegn starfseminni fyrir
jól.
Ekki náðist í eigendur
Háspennu við vinnslu fréttarinn-
ar.
Borgarstjóri tilbúinn
að borga skaðabætur
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri lét athuga árið 2004 hvort hægt væri
að banna spilakassa. Spilakössum hefur fjölgað um helming á tveimur árum.
Vilhjálmur er tilbúinn að borga skaðabætur til að koma í veg fyrir spilasal í
Landsbanki Íslands opnar
í dag sögusýningu á jarðhæð
gamla Morgunblaðshússins í Aðal-
stræti þar sem minnst er 120 ára
sögu bankans frá því hann hóf
rekstur sinn í gömlu Bakarabrekk-
unni, sem síðar varð Bankastræti,
til dagsins í dag. Björgólfur Guð-
mundsson, stjórnarformaður
bankans, og Björn G. Björnsson
sýningarhönnuður kynntu fjöl-
miðlum sýninguna í gær. Þar var
allt enn á fullu. Aldraðir fyrrver-
andi starfsmenn bankans voru í
óða önn að koma fyrir merkingum
á margs konar tækjakosti úr eign
bankans frá fyrri tíð, enn var verið
að hengja upp skýringarspjöld
sem rekja söguna í máli og mynd-
um.
Björgólfur hélt á blaðamanna-
fundinum tölu og lýsti því að saga
bankans væri í raun saga þjóðar-
innar, atvinnuhátta og þjóðlífs,
saga bankans væri saga Reykja-
víkur. Fyrir aftan hann var stórt
líkan af miðborginni eftir brun-
ann 1915 en á þeim rústum reis
endurbyggt hús bankans á horni
Austurstrætis og Pósthússtrætis.
Leiddi stjórnarformaðurinn síðan
blaðamenn um sali í gamla
prentsalnum. „Hér lýkur sagn-
fræðinni,“ hvíslaði Björn að
nálægum, „og framtíðin tekur
við“. Þar var enn verið að vinna,
en Björgólfur teymdi menn
áfram upp stiga og sýndi með
stolti líkan af fyrirhuguðum
nýbyggingum bankans við Læk-
inn, frá Lækjartorgi og niður að
Tónlistarhúsinu.
Líkan af miðbæ Reykjavíkur árið 1915
Hlýtt var um land allt árið
2006 og norðaustan- og austan-
lands var hitinn um 1,3 til 1,8 stig-
um yfir meðallagi en um sunnan-
og vestanvert landið var hitinn
víðast hvar um 1,1 stigi ofan við
meðallag.
Þetta kemur fram í veðurfars-
yfirliti Veðurstofu Íslands, skráðu
af Trausta Jónssyni veðurfræðingi.
Í inngangi segir Trausti að
tíðarfar ársins 2006 megi yfirleitt
teljast hagstætt, þrátt fyrir að
skakviðrasamt hafi verið með
köflum.
Þá kemur fram að ekki virðist
lát á þeim hlýindum sem byrjuðu
hérlendis fyrir tíu árum eða svo. Í
Reykjavík var
hiti ofan meðal-
lags í öllum
mánuðum nema
í apríl og á
Akureyri í öllum
mánuðum nema
maí og nóvem-
ber.
Úrkoma í
Reykjavík og á
Akureyri var
umfram meðallag og mun sólrík-
ara var í Reykjavík en í meðalári.
Hæsti hiti sem mældist á árinu
var í Ásbyrgi 3. ágúst, 25,7 stig en
lægsti hiti mældist á Brúarjökli
18. nóvember, -26,1 stig.
Mesta sólarhringsúrkoma sem
enn hefur frést af á árinu mældist
í Kvískerjum í Öræfum 20. desem-
ber, 175,3 millimetrar.
Síðastliðinn vetur var mjög
hlýr, í Reykjavík og á Akureyri sá
fjórði hlýjasti frá upphafi mæl-
inga. Sömuleiðis var snjólétt.
Fjöldi farþega
Flugfélags Íslands árið 2006 var
30 þúsundum meiri en árið á
undan. Forsvarsmenn Flugfélags-
ins segja þessa aukningu nema
um 8 prósentum. Flugfélagið
flýgur til fjögurra staða innan-
lands en millilandaáfangastaðir
þess eru á Grænlandi og í
Færeyjum. Alls ferðuðust 380
þúsund manns með áætlunarflugi
flugfélagsins á nýliðnu ári þar af
voru um 18 þúsund farþegar í
millilandaflugi. Mesta aukning
farþega varð á leiðinni milli
Reykjavíkur og Egilsstaða eða
um tæplega 9 prósent.
Fjölgun í inn-
anlandsflugi
Enn er á huldu hvað
varð um indónesísku farþegaþot-
una sem hvarf á mánudag með
102 manns innanborðs.
Engin hjálparbeiðni barst frá
flugmanninum, sem breytti
flugstefnunni tvisvar vegna
slæms veður áður en vélin hvarf
af ratsjám. Ekkert neyðarstað-
setningarmerki hefur borist frá
vélinni til að leiðbeina þúsundum
björgunarmanna sem leita á
eynni Sulawesi, þar sem seinast
spurðist til flugvélarinnar.
Leitarsvæðið hefur verið
stækkað í átt að eyjunni Balí, þar
sem mögulegt er að á fimm
dögum hafi sterkir hafstraumar
getað borið brak og lík hundruð
kílómetra.
Hvorki finnst
tangur né tetur
Reykvíkingar eiga þess
kost að láta starfsmenn Fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar
hirða gömlu jólatrén að loknum
þrettándanum og til 12. janúar.
Fólk er beðið um að skilja trén
eftir við lóðarmörk á áberandi
stað og þannig að sem minnstar
líkur séu á að þau fjúki, því
fjúkandi jólatré geta valdið
skemmdum.
Þeir sem ekki nýta sér þessa
þjónustu geta losað sig við trén á
gámastöðvum Sorpu.
Íbúar eru einnig vinsamlegast
hvattir til að hreinsa upp
útbrunna flugelda og leggja
þannig sitt af mörkum til að halda
borginni hreinni. -
Starfsmenn
sækja jólatrén
Fyrsti fundur um að
senda starfsmenn í fíkniefnapróf
var haldinn nýlega með stjórn-
endum Norðuráls og formönnum
verkalýðsfélaga. Ragnar Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri hjá
Norðuráli, segir að með fundinum
hafi ákveðið samráðsferli hafist.
Málið sé í vinnslu og ekki meira
um það að segja fyrr en niður-
staða liggi fyrir.
Ragnar sagði fundinn haldinn
til að ræða útfærsluna á fyrirhug-
uðu eiturlyfjaprófi og fara yfir
það hvort það sé gert í samræmi
við þær reglur sem gilda hér á
landi. „Hugsanlega þurfa
opinberar stofnanir að koma að
þessu,“ segir Ragnar og telur að
prófið komi til framkvæmda á
fyrri hluta ársins. „Við klárum að
útfæra þetta í rólegheitum.“
Prófið útfært í
rólegheitum
Scandic-hótelkeðjan í
Noregi neitar að hýsa gesti frá
Kúbu í samræmi við stefnu nýrra
bandarískra eigenda keðjunnar.
Þetta hefur vakið hörð viðbrögð
samkvæmt vef Aftenposten.
Þess hefur verið krafist að
stjórnvöld neiti Scandic og öðrum
fyrirtækjum sem fara eftir
svipuðum reglum um leyfi til að
starfa í Noregi.
Málið hófst þegar kúbverskri
ferðamálasendinefnd var neitað
um gistingu á Scandic Edder-
koppen-hótelinu í Ósló.
Vilja ekki hótel-
gesti frá Kúbu