Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 60
Eitt algengasta áramótaheit Vesturlandabúa er að gera átak í átt að heilbrigðari lífsstíl. Þessu
fylgir að yfirleitt er fjárfest í korti á líkamsræktarstöð og því er aldrei meira að gera á stöðv-
unum en í upphafi árs. Þetta er einnig sá tími sem ný námskeið fara af stað í stöðvunum og
meðan sum námskeið festast í sessi geta önnur dottið úr tísku. Blaðamaður hafði samband við
nokkrar líkamsræktarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og fræddist um það nýjasta sem boðið er
upp á í þessum geira nú í upphafi nýs árs.
Hippadans og lifandi tónlist í tímum
Líkamsræktarstöðvarnar bjóða upp á spennandi nýjungar árið 2007.
24 { heilsublaðið }
World Class
Herþjálfun, bardagalistir og barna- og unglingaþjálfun.
Í World Class fara af stað nokkrar áhugaverðar nýjunar á næstu vikum. Má þar meðal annars
nefna SHOKK sem er lyftingabraut ætluð börnum og unglingum á aldrinum 8-14 ára. „Þetta
er hugsað fyrir foreldra sem eru að fara í ræktina, því einhvers staðar þurfa börnin jú að vera
á meðan, auk þess sem öll börn hafa gott af því að styrkja líkamann og hreyfa sig. Það hefur
verið boðið upp á þetta í dönsku stöðvunum okkar, Equinox, og þar hefur þetta mælst mjög vel
fyrir,“ segir Unnur Pálmarsdóttir, deildarstýra hóptíma hjá World Class.
„World Class herþjálfun er annað nýtt námskeið hjá okkur en það býður upp á mjög fjöl-
breytt hreyfingarprógramm sem eykur úthald, styrk og þol, kennir fólki að vinna saman og
gefur færi á hreyfingu úti undir berum himni í Laugardalnum. Capoeira er afrísk-brasilísk bar-
dagalist sem kennd verður í fyrsta sinn á Íslandi á næstu vikum en svo verðum við með úrval
af átaksnámskeiðum að vanda, bæði fyrir karla og konur. Svo er það Sportskóli barna á aldr-
inum tveggja til sex ára á laugardagsmorgnum, en þar leiðbeina íþróttakennarar og þjálfarar
yngstu börnunum í tímum,“ segir Unnur að lokum og bendir lesendum á að á vefsíðu World
Class sé einnig að finna ítarlegar upplýsingar um dagskrána.
Hreyfing
Meðgönguleikfimi, sipp og stelputímar.
Í Hreyfingu er boðið upp á fjölbreytt úrval námskeiða enda er markmið þjálfara stöðvarinnar
að hvetja fólk til að leggja stund á reglulega hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.
„Betra form-námskeiðin hafa skipað sér fastan sess meðal viðskiptavina stöðvarinnar en
þau hafa verið starfrækt í sautján ár,“ segir Anna Eiríksdóttir, íþróttakennari og deildarstjóri
þolfimideildar í Hreyfingu. „Námskeiðið stendur yfir í átta vikur og er svokallað lokað aðhalds-
námskeið. Betra form sex, er hins vegar nýjung þar sem þátttakendum gefst kostur á að prófa
sex mismunandi þjálfunarleiðir: stott-pilates, pallaþjálfun, tækjaþjálfun, salsa, thai-bo og
hjólaþjálfun. Þetta er tilvalið fyrir konur sem kjósa að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi. Jump-fit
er önnur nýjung sem Hreyfing býður upp á, en jump-fit gengur út að sippa í takt við tónlist.
Þetta er ein heitasta nýjungin í þessum geira í dag. Tímarnir henta vel þeim sem vilja komast í
mjög gott form á skömmum tíma, enda er tíminn aðeins 40 mínútur,“ segir Anna og bætir því
við að hjá Hreyfingu gefist stelpum á aldrinum 13-15 ára einnig kostur á að mæta á sérstakt
námskeið sem hentar þeim hópi. Að auki er boðið upp á námskeið fyrir barnshafandi konur
sem vilja stunda markvissa og örugga líkamsrækt á meðgöngunni. „Þetta námskeið var hannað
af tveimur hjúkrunarfræðingum, en þær kenna báðar á námskeiðinu og leggja meðal annars
mikla áherslu á að styrkja kvið og grindarbotnsvöðva, auk þess sem þær miðla af þekkingu
sinni og reynslu í tímunum,“ segir Anna að lokum og tekur það fram að þetta námskeið hefjist
þann 15. janúar, en ítarlegri upplýsingar um öll námskeiðin má finna á heimasíðu Hreyfingar,
www.hreyfing.is.
www.bluelagoon.is
Orka