Fréttablaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 98
Dúkkurnar hans Jóhanns
Torfasonar vega salt á
mörkum listaverka og
fjöldaframleiðslu en í starfi
sínu leitast hann við að
kanna möguleika listar-
innar. Sýning á stafrænum
sköpunarverkum hans
verður opnuð í Listasafni
ASÍ í dag.
Hugmyndina að baki dúkkunum
rekur Jóhann til ársins 1995 þegar
hann var búsettur á Spáni og inn
um lúguna flæddu auglýsingar og
ruslpóstur um leikföng og barna-
dót. „Ég var í einhverju millibils-
ástandi í myndlistinni og fór að
rýna í þetta. Þá kviknaði á ein-
hverju ljósi og ég ákvað að það
væri spennandi að taka þennan
efnivið fyrir.“ Jóhann hafði fengist
við myndasögugerð og kveðst mik-
ill aðdáandi hvers kyns barnamenn-
ingar og því hafi sér reynst auðvelt
að stíga þetta skref.
Síðan þá hafa leikföng verið eitt
aðalviðfangsefni Jóhanns, sem til
dæmis er þekktur fyrir myndir
sínar af frumherjum íslensku
myndlistarinnar sem hann færði
bæði í myndasögubúning og gerði
úr þeim listræna „aksjónkarla“.
Jóhann segir að raunsæið í
verkum hans hafi aukist með árun-
um, sér í lagi eftir að hann tók
tölvutæknina í sína þjónustu og
fjarlægðist hið hefðbundna mál-
verk því hann prentar nú verkin
sín á stafrænu formi. „Það er part-
ur af því að viðhalda eða auka við
þá blekkingu að hluturinn sé mögu-
lega raunverulegur. Ég stíg aðeins
út fyrir þessa naflaskoðun mynd-
listarinnar – spyr fremur hvað sé
hægt að gera með myndlist fremur
en hvað myndlistin getur gert
fyrir sjálfa sig.“
Verk Jóhanns eru afar pólit-
ísk og sjálfur kveðst hann ávallt
hafa haft áhuga á því að kanna þær
hliðar myndlistarinnar. „Ég hef
aldrei getað gert „bara eitthvað“.
Ég hef alltaf þurft að hafa ein-
hverja skírskotun, til dæmis til
heimspekilegra eða siðferðislegra
vangaveltna um mannlega tilveru
án þess þó að taka endilega pólit-
íska afstöðu.“
Hluti þess er tengdur því að
verkin á sýningunni nú eru unnin
fyrir fyrirtækið Pabba kné sem
framleiðir þau og hefur með þeim
umsýslu. „Ég er í raun aðeins vinnu-
dýr þess fyrirtækis,“ segir Jóhann
og áréttar að sú fyrirtækjavæðing
sé ekkert spaug og þar á bæ vonist
menn til þess að Sigurður Einars-
son taki að sér stöðu stjórnarfor-
manns.
Jóhann játar að sig hafi dreymt
um að ganga lengra og hefja fram-
leiðslu á dúkkunum. „Það hefur þó
stoppað mig að í mér býr lítið Lata-
bæjareðli og ennfrem-
ur að ég er svo inni-
lega heillaður af
þessum anarkisma
sem býr í mynd-
listinni. Ég hef kosið
að stíga ekki út fyrir
þann sérviskulega og
hálf týnda heim
að svo
stöddu. Ef
dúkkurn-
ar færu
í fram-
leiðslu yrðu þær leikföng en ekki
myndlist. Ég myndi hins vegar
hugsa mig tvisvar um ef Mattel
gerði mér alvöru tilboð,“ segir hann
hlæjandi.
Fólk á öllum aldri hefur hrifist
af dúkkunum hans Jóhanns og börn
taka verkunum vel. Hann segist
líka eiga hauka í horni hjá dætrum
sínum tveimur og sambýliskonu
sem eru sérlegir álitsgjafar hans.
„Ég hef alltaf borið leikföngin undir
dætur mínar því ég vil að þau geti
virkað sem alvöru leikföng og mér
finnst mikilvægt að þær geti hugs-
að sér að nota þau. Þau verða að
vera trúverðug þó þau séu kannski
vafasöm í einhverju uppeldislegu
tilliti.“
Sýning Jóhanns verður opnuð í
Listasafni ASÍ kl. 15 í dag en þar
eru aukinheldur grafíkverk sem
Jóhann hefur unnið að undanförnu.
„Mér fannst tilhlýðilegt að sýna
þau einnig, það er sjaldgæft að slík
verk séu sýnd annars staðar en hjá
Grafíkfélaginu. Þau eru í raun sýnd
til höfuðs tölvutækninni,“ segir
hann og útskýrir að verkin séu
silkiþrykk af myndgátum og fleiru
í svipuðum dúr. „Grafíkin hefur
ekki verið inni nokkuð lengi en nú
er að kvikna áhugi hjá nemendum
og fleirum sem vilja snúa sér aftur
að handverkinu,“ útskýrir hann.
Á sama tíma í dag opnar sýning
á verkum Hlyns Helgasonar í arin-
stofu og gryfju safnsins við Freyju-
götu. Sýningarnar verða opnar til
28. janúar.
3 4 5 6 7 8 9
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Í dag lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 örfá sæti laus og kl. 14:00 uppselt, sun. 7/1 kl.
11:00 örfá sæti laus, kl. 12:15 nokkur sæti laus og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00 örfá sæti
laus, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt, sun. 14/1 kl. 11:00 örfá sæti laus, kl. 12:15 og
kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Í kvöld lau. 6/1 örfá sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti
laus, þri. 16/1 kl. 20:00 uppselt, mið. 17/1 kl. 14:30 uppselt, lau. 20/1, mið. 24/1 kl. 14:30
uppselt.
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Í kvöld lau. 6/1 nokkur sæti laus, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Í dag lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00 örfá
sæti laus, lau. 13/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 27/1 kl. 14:00 nokkur sæti
laus, sun. 28/1 kl. 14:00.
BAKKYNJUR eftir Evrípídes
6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
Stóra sviðið kl. 20:00
Patrekur 1,5