Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 58
22
Kírópraktík, sem einnig er stundum
kölluð hnykklækningar, hefur verið
stunduð í heiminum í þúsundir ára.
Til skamms tíma voru þeir sem
ástunduðu slíkar lækningar ekki hátt
skrifaðir innan læknavísindanna og
jafnvel settir í fangelsi fyrir skottu-
lækningar. Kírópraktorar hafa þó
fengið uppreisn æru og í Bandaríkj-
unum og Skandinavíu vinna kíró-
praktorar með sjúkrahúsunum. Hér
á landi eru kírópraktorar samþykkt
heilbrigðisstétt.
Sandra Sigmundsdóttir fór til
Bandaríkjanna til að spila fótbolta og
læra líffræði. Hún heillaðist af kíró-
praktíkinni og er nýkomin heim til
Akureyrar eftir framhaldsnám í fag-
inu. Hún starfar nú sem kírópraktor
með aðstöðu í Bak og fyrir, beint á
móti Hótel Kea.
„Þetta er frekar langt nám, eða
alls sjö ár,“ segir Sandra sem hafði
aldrei heyrt um kírópraktík fyrr en
hún kom til Bandaríkjanna. „Ég vissi
ekkert hvað kírópratkorar gera.“ En
hún heillaðist fljótt af þessari lækn-
ingaaðferð. „Kírópraktík er svo nátt-
úruleg. Við notum hendurnar, engin
lyf eða skurðaðgerðir. Þetta býður
upp á svo marga möguleika sem og
nálægð við sjúklinginn og tengsl við
hann. Við vinnum helst að liðlosun
en ég nota líka staðbundið nudd,
líkamslosun og teygjur og kenni fólki
að vinna með líkamann og hjálpa sér
sjálft.“
Hún segir Akureyringa hafa tekið
vel á móti sér þó að hægt hafi farið
af stað. „Það var smá efi í mér að
koma heim og vera fyrsti og eini
kírópraktorinn hérna á AKureyri. Í
Reykjavík eru starfandi fimm eða sex
kírópraktorar og þar hefur verið góð
reynsla af þessu svo það var mjög
spennandi að koma heim og kynna
fólk fyrir þessu.“
Hún segir fólk koma til sín að
meðaltali í fjögur til sex skipti.
„Sumir koma einu sinni tvisvar en
aðrir koma oftar. Svo er misjafnt
hvað fólk vill fá út úr þessu, vill það
láta sér líða aðeins skár eða vill það
verða alveg verkjalaust og vinna
að því að fyrirbyggja vandamálið?“
Helstu vandamálin sem fólk kemur
með til Söndru tengjast stoðkerfinu
en höfuðverkir, brjósklos og vöðva-
bólga hrjá æ fleiri.
Hún segir samskiptin við heil-
brigðisstéttirnar hafa verið mjög
góð. „Margir heilbrigðisstarfsmenn
eru áhugasamir um eitthvað nýtt. Ég
vísa fólki til læknis ef ég tel að ég
geti ekki aðstoðað með vandamálið
en svo bendi ég fólki á að fara í nudd,
til læknis eða líkamsrækt meðfram
því að vera hjá mér. Auðvitað eru
einhverjir tortryggnir, en það er líka
skemmtilegt að vinna með því fólki
og sýna því hvað möguleikarnir eru
margir.“ - bb
Úr fótbolta í liðlosun
Sandra Sigmundsdóttir kírópraktor fór út til að spila fótbolta en er nú komin heim til
Akureyrar eftir langa námsdvöl í Bandaríkjunum.
Með því að borða fjölbreytt fæði
á líkaminn að fá flest þau vítamín
sem hann þarfnast en þó benda
næringar- og lyfjafræðingar á það
að gott sé að taka lýsi reglulega
þar sem fáar fæðutegundir inni-
haldi nógu mikið D-vítamín, en
það fæst úr lýsinu.
Ef fæðið er ekki nógu fjöl-
breytt og líkaminn fær ekki öll þau
vítamín sem hann þarfnast getur
verið nauðsynlegt að taka þau inn
í töfluformi. Best er að fá faglega ráðgjöf um það hvaða vítamín ætti
að taka því ekki er sama hvað er
tekið inn. Fituleysanlegu vítamínin
geta til dæmis safnast fyrir í
líkamanum og valdið eitrunum
og því er alveg jafn slæmt
að fá of mikið af þeim eins
og of lítið. Eins getur inn-
taka ákveðinna vítamína
haft áhrif á önnur lyf sem
eru tekin inn og því nauð-
synlegt að vita hvað fer
saman og hvað ekki.
Í verslunum Lyfja og
heilsu er boðið upp á
ókeypis einstaklingsráðgjöf
við val á vítamínum og þeir
sem hafa hugsað sér að fara
að taka inn vítamín á nýju
ári ættu því að notfæra sér það
áður en þeir hefja átakið.
Ekki sama hvaða
vítamín eru tekin
Vítamín eru líkamanum nauðsynleg og til þess að fá nóg
af öllum vítamínum er mikilvægt að borða fjölbreytt fæði.
Fitusog án skurðaðgerðar
• Á aðeins 10 dögum færðu árangur sem jafnast á við fitusog
• Húðin stinnist og appelsínuhúðin hverfur
• Öflugasta cellómeðferð hingað til sem stittir biðtímann um margar vikur
• 6 mismunandi aðferðir notaðar á þig til að skila sem mestum árangri
• 100% ánægja þegar meðferðinni er lokið...
Verð: 37.400,-
Ef þú pantar strax í dag Minna Mál grenningarmeðferðina færðu hana
á tilboðsverði kr: 24.900,-
Hringdu núna, síminn er: 577 7007
Kínastofan • Stórhöfði 17 • 110 Rvk
Skíðaíþróttin er góð hreyfing
fyrir alla fjölskylduna. Skíða-
svæði víðsvegar um land hafa
opnað. Hlíðarfjall á Akureyri
er vinsælt svæði fyrir heima-
menn og aðra sem koma í lengri
eða styttri ferðir á Norðurland:
www.hlidarfjall.is. Á Ísafirði er
eina skíðasvæði Vestfjarða sem
má finn á heimasíðunni: www.
isafjordur.is/ski/. Á Sauðár-
krók er vinsælt svæði þar sem
íþróttafélagið Tindastóll æfir
sína skíðakappa. En í Böggvis-
staðafjalli við Dalvík er að finna
fleiri norðlenska skíðagarpa:
http://www.skidalvik.is/. Upp-
lýsingar um skíðasvæði á Siglu-
firði eru á síðunni www.siglo.is.
Nánari upplýsingar um Bláfjöll
og skíðasvæði sunnan heiða er
að finna á vef yfir skíðasvæði
landsins á www.skidasvaedi.is.
Á skíðum
skemmti mér