Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 96

Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 96
ÞAR SEM ALLT SNÝST UM FÓTBOLTA! NÝTT Á GR AS.IS Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun NÚ FÆRÐU GRAS.IS FÉTTIR Í SÍMANN! Ég var spurð að því í gær hvort ég væri í raun jafn fáranlega glöð í lífinu og pistlarn- ir mínir bera með sér. Ég sagði nú að svo væri og brosti Colgate- brosi því til sönn- unar. Kannski er málum svo hátt- að að ég birtist ykkur hér á síðum blaðanna sem valhoppandi Heiða með fléttur og austurrísk lömb í eftirdragi en ég á líka mína daga sem ég geng myrkvu öflunum á hönd. Síðasta miðvikudag tók ég til dæmis æðiskast. Ég varð alveg svaka reið. Arkaði um gólfin heima hjá mér alveg brjáluð en varð bara reiðari og reiðari því það er svo erfitt að taka reiðiark í svona lítilli íbúð. Þannig að ég byrjaði að skella hurðum, fleygði inniskónum í vegginn þar sem skógeymslan er en var allt annað en ánægð með hversu lítið hljóð kom þegar skórnir skelltu á vegg- inn og því trylltist ég enn frekar og lét það bitna á skápahurðunum í svefnherberginu enda hægt að skella þeim með látum. Svo mikil varð reiðin á endanum að ég strunsaði út með djöfulinn sjálfan á bakinu, fór út að hlaupa og hlust- aði á Egó meðan ég hljóp í hringi þar sem ég var í of miklu uppnámi til að vita hvert ég ætti að stefna. Þegar heim var komið kvartaði ég sáran við vinkonu mína undan bauninni undir prinsessudýnunni minni og varð yfir mig hissa þegar ég var spurð hvort ég væri ekki að gera of mikið úr reiðimáli kvölds- ins. „Ég?! Dramatísk?! Held nú síður,“ hrópaði ég og féll í stól með andvarpi yfir baunum lífsins á mínum herðum og heyrði angur- væra erfiðleika tónlist hljóma í höfði mér. Eftir tíu mínútur var ég svo farin að flissa yfir eigin fárán- leika. Þetta er allt spurning um við- horf krakkar mínir. Baunin popp- ar alltaf reglulega upp en þess á milli er best bara að valhoppa og jóðla. Góða helgi. Og munið að sá sem síðast hlær... hann hugsar hægast.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.