Fréttablaðið - 17.01.2007, Síða 12
Stjórnarandstæðingar
gagnrýndu Pál Magnússon
útvarpsstjóra á þingfundi í gær og
sögðu hann á mála hjá ráðherra og
ríkisstjórninni.
Ögmundur Jónasson, Vinstri
grænum, sagði ráðherra og
útvarpsstjóra vera eitt þegar um
áróður í málinu ræddi. „Þau hafa
komið saman fram í fréttaþáttum
Ríkisútvarpsins til að tala máli
ríkisstjórnarinnar. Það er mis-
notkun og það er óeðlilegt.“
Tilefni umræðunnar var grein
Páls í Morgunblaðinu á mánudag
en í henni gagnrýndi hann forystu-
greinar Fréttablaðsins um málið
og sagði rangt sem þar væri full-
yrt að stefna ríkisstjórnarinnar
ætti sér ekki formælendur. Páll
sagði Starfsmannasamtök Ríkis-
útvarpsins styðja breytingar á
rekstrarformi RÚV – þó ekki
hefðu þau tekið afstöðu til þess
hvaða form skyldi verða fyrir val-
inu. Þá sagði hann könnun Gallup
sýna að um 60 prósent þjóðarinnar
væru hlynnt breytingu RÚV í
opinbert hlutafélag.
Ögmundur sagði þetta rangt
hjá Páli, stéttarsamtök starfs-
manna væru frumvarpinu algjör-
lega ósammála og vildu að því yrði
vísað frá. Að auki sagði hann skoð-
anakönnun Gallup misvísandi.
Steingrímur J. Sigfússon VG
sagði umhugsunarefni hvernig
Páll beitti sér „grímulaust“ í mál-
inu og kvað hann fara „hamförum
í áróðri fyrir þessu umdeilda
stjórnarfrumvarpi“.
Mörður Árnason Samfylking-
unni sagði Pál koma fram sem
flokksmaður í stjórnarflokkunum
og upplýsingafulltrúi ríkisstjórn-
arinnar. „Hann hefur greinilega
fengið stöðu sína í þeim krafti og
með því skilyrði að vera blaðafull-
trúi Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur þegar á hana hallar.“
Þorgerður Katrín sagði ekkert
óeðlilegt við að útvarpsstjóri léti í
ljós skoðanir sínar á frumvarpinu
um Ríkisútvarpið.
Útvarpsstjóri sagður vera á
mála hjá menntamálaráðherra
Stjórnarandstæðingar saka útvarpsstjóra um að draga taum ríkisstjórnarinnar í málefnum Ríkisútvarps-
ins. Útvarpsstjóri hafnar því og segir það skyldu sína að tjá sig um hagsmuni Ríkisútvarpsins.
Hert lög um innflytj-
endur hafa nú tekið gildi í Rússlandi
en talið er að á milli tíu og tólf millj-
ónir ólöglegra innflytjenda séu í
landinu. Margir hafa lýst áhyggjum
yfir að þetta geti leitt til alvarlegs
skorts á láglaunastarfsfólki.
Nýju reglurnar gera borgurum
fyrrum Sovétlýðvelda auðveldara
að fá atvinnuleyfi í Rússlandi en
hækka sektir á fyrirtæki sem hafa
ólöglega innflytjendur í vinnu.
Um síðustu áramót tóku gildi ný
lög um að innflytjendur megi aðeins
vera fjörutíu prósent vinnuafls í
smásöluiðnaði, að verslunum
undanskildum, og 1. apríl á þetta
hlutfall að vera komið niður í núll.
Beinist þetta sérstaklega gegn
mörkuðum þar sem margir ólögleg-
ir innflytjendur starfa.
Árásum og hatursglæpum vegna
kynþáttafordóma og útlendingahat-
urs fer fjölgandi í Rússlandi og við-
horf almennings í garð innflytjenda
verður æ neikvæðara. Beinist þessi
óbeit sérstaklega gegn fólki sem er
dökkt á brún og brá og kemur frá
fyrrum Sovétlýðveldum í Kákasus
og Mið-Asíu, en þaðan kemur
meginþorri láglaunastarfsfólks í
Rússlandi.
Stefna stjórnvalda í innflytj-
endamálum hefur verið gagnrýnd
og telja margir að hún kyndi enn
frekar undir kynþáttafordómum og
útlendingahatri, leiði til verðbólgu
og flýti þeirri fólksfækkun sem sé
að eiga sér stað í Rússlandi. Rúss-
um fækkar um 700.000 árlega.
Hert lög um innflytjendur taka gildi
Forsvarsmenn nýju
dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2
eru í vanda staddir vegna gruns
um að þeir hafi lofað auglýsendum
að þeir gætu haft áhrif á frétta-
flutning stöðvarinnar. Fyrir utan að
loforðið stríði gegn dönskum
lögum um sjónvarps- og útvarps-
rekstur er talið að það dragi úr
trausti áhorfenda á fréttastofu
sjónvarpsstöðvarinnar. Eru ásakan-
irnar meðal annars byggðar á
viðtali Extra-blaðsins við forstjóra
Siemens Hvidevarer, sem sagðist
geta arkað með fréttatilkynningar
beint inn á fréttastofuna.
Forráðamenn TV2 segja málið
hins vegar byggt á misskilningi.
Auglýsendum
heitið áhrifum?
Flugmála-
stjórn Keflavíkurflugvallar festi
nýverið kaup á mjög öflugu
snjóruðningstæki. Tækið, sem er
af gerðinni OSHKOSH P-2526, er
fyrsta tækið sem keypt er fyrir
nýstofnaða flugvallaþjónustudeild
flugvallarins, sem annast meðal
annars snjóruðning og hálkuvarnir
á flugvellinum. Tækið kostar
tæplega 25 milljónir króna með
aðflutningsgjöldum. Flugvalla-
þjónustudeildin starfrækir nú 35
sérhæfð tæki og er meðalaldur
þeirra um 22 ár. Nánast öll tækin
eru í eigu Bandaríkjaflota og leigð
af honum.
Snjóplógur af
öflugustu gerð
Ævintýralegar fiskbúðir
F ISK ISAGA Hamraborg 14a / Sk ipho l t i 70 / Höfðabakka 1 / Nesveg i 100 (Vegamótum) / Sund laugaveg i 12 / Háa le i t i sbrau t 58–60 / f i sk i saga . i s
890 kr./kg
Ýsa með roði
Tilboð dagsins